EFNISYFIRLIT
Forsíða

Dýrahald
Eldri fréttir
Fundargerðir
Gjaldskrár
Hollustuhættir
Matvæli
Mengunarvarnir
Neysluvatn
Skipurit og Starfsemi
Starfsleyfi
Starfsmenn
Umhverfi
Vatnsvernd


Hér erum við

Senda tölvu-póst
 


Skipurit og Starfsemi         Ársskýrslur      Ársreikningar        Gjaldskrár
 

Skipurit

Starfsmenn

 

Hlutverk heilbrigðisnefnda og heilbrigðiseftirlits

Hlutverk heilbrigðisnefnda er skilgreint í lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, en þar segir í 13.gr: "Heilbrigðisnefnd ber að sjá um að framfylgt sé ákvæðum laga þessara og reglugerða settra samkvæmt þeim, samþykktum sveitarfélaga og ákvæðum í sérstökum lögum eða reglum sem nefndinni er eða kann að vera falið að annast um framkvæmd á. Nefndin skal vinna að bættu heilbrigðiseftirliti á svæði sínu, annast fræðslu fyrir almenning og efla samvinnu við önnur yfirvöld og aðila sem vinna að þessum málum".

Heilbrigðisnefnd er samsett þannig að: "Í hverri nefnd skulu eiga sæti sex menn, fimm kosnir af hlutaðeigandi sveitarstjórnum, þar af skal einn vera formaður, og einn tilnefndur af samtökum atvinnurekenda á eftirlitssvæðinu. Atkvæði formanns ræður úrslitum ef atkvæði falla jafnt í nefndinni. Náttúruverndarnefndir sveitarfélaga á eftirlitssvæðinu eiga rétt á að tilnefna einn fulltrúa í nefndina til viðbótar en hann hefur ekki atkvæðisrétt við afgreiðslu mála í nefndinni. Sömu reglur gilda um varamenn." (11. gr lög nr. 7/1998)

Heilbrigðiseftirlitið vinnur í umboði heilbrigðisnefndar.

Samkvæmt samkomulagi Álftaness, Garðabæjar, Hafnarfjarðar og Kópavogs skipa sveitarfélögin fulltrúa í nefndina á eftirfarandi hátt.

Garðabær: 1 fulltrúi
Hafnarfjörður: 2 fulltrúar
Kópavogur: 2 fulltrúar
Áheyrnarfulltrúi náttúruverndarnefnda er tilnefndur af sveitarstjórn Álftaness.
 

 

Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, Garðatorg 7, 210 Garðabær
Sími: 550 5400, Fax: 550 5409, Tölvupóst: hhk@heilbrigdiseftirlit.is