|
|
Umhverfi
Eftirlitssvæðið markast af Fossvogi í norðri, Bláfjöllum í austri og
Krísuvíkurbjargi í suðri. Stór hluti þjóðarinnar býr í sveitarfélögunum
fjórum sem eru á þessu svæði og þar er að finna fjölbreytta framleiðslu og
þjónustu. Á stórum svæðum hefur umhverfið lítið raskast af athöfnum
mannsins og fjöldi fólks nýtur þar útivistar og náttúruskoðunar, auk þess
sem þar eru dýrmæt vatnsforðabúr. Hlutverk Heilbrigðiseftirlitsins er að
varðveita gæði lofts, vatns og lands á svæðinu og gæta hagsmuna almennings
með tilliti til heilbrigðis og hollustuhátta. Í þeim tilgangi er fylgst
með loftgæðum þar sem það á við, tekin sýni, og gerðar ýmsar aðrar mælingar. Meðal annars eru tekin sýni úr sjó, lækjum
og vötnum á starfssvæðinu.
Mengunarflokkun á Urriðavatni og ofanverðum Stórakrókslæk
Samþykkt um fráveitu á Álftanesi (nr.
305/2008)
Samþykkt um fráveitu í
Hafnarfjarðarkaupstað (nr. 199/2009).
Samþykkt um fráveitu í Garðabæ (nr. 282/2005)
Samþykkt um fráveitu í Kópavogi (nr.
730/2001) |
|
|
Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, Garðatorg 7, 210 Garðabær
Sími: 550 5400, Fax: 550 5409, Tölvupóst: hhk@heilbrigdiseftirlit.is
|