|
Hávaði
Hvað er hávaðamengun Hljóð og hávaði eru allstaðar
í umhverfinu. Hávaði sem veldur ónæði og óþægindum telst vera
hávaðamengun. Hávaðamengun er að miklu leyti til komin vegna athafna
manna, svo sem iðnaðar, verslunar- og þjónustustarfsemi, tómstundaiðju
fólks, ásamt umferð bifreiða og annarra vélknúinna ökutækja. Hávaði yfir
ákveðnum mörkum er heilsuspillandi og getur valdið skemmdum á heyrn auk
truflunar og margvíslegra sálrænna áhrifa sem valdið geta andlegri
vanlíðan.
Markmið
reglugerðar
724/2008 um hávaða er að draga úr og koma í veg fyrir
hávaða. Þar koma einnig fram almennar kröfur um hljóðstig, skyldur og
réttindi almennings og rekstraraðila. Í reglugerð um hávaða og í
reglugerð nr. 941/2002 um hollustuhætti er hávaði skilgreindur sem
mengunar- og ónæðisvaldur sem bæði ber koma í veg fyrir og draga úr. Skylt
er að haga allri háværri starfsemi og athöfnum þannig að ekki valdi ónæði. |