|
|
Skipurit og Starfsemi
Ársskýrslur
Ársreikningar
Gjaldskrár
Hlutverk heilbrigðisnefnda og heilbrigðiseftilits
Hlutverk heilbrigðisnefnda er skilgreint í lögum nr. 7/1998 um
hollustuhætti og mengunarvarnir, en þar segir í 13.gr: "Heilbrigðisnefnd
ber að sjá um að framfylgt sé ákvæðum laga þessara og reglugerða settra
samkvæmt þeim, samþykktum sveitarfélaga og ákvæðum í sérstökum lögum eða
reglum sem nefndinni er eða kann að vera falið að annast um framkvæmd á.
Nefndin skal vinna að bættu heilbrigðiseftirliti á svæði sínu, annast
fræðslu fyrir almenning og efla samvinnu við önnur yfirvöld og aðila sem
vinna að þessum málum".
Heilbrigðisnefnd er samsett þannig að: "Í hverri nefnd skulu eiga sæti sex
menn, fimm kosnir af hlutaðeigandi sveitarstjórnum, þar af skal einn vera
formaður, og einn tilnefndur af samtökum atvinnurekenda á
eftirlitssvæðinu. Atkvæði formanns ræður úrslitum ef atkvæði falla jafnt í
nefndinni. Náttúruverndarnefndir sveitarfélaga á eftirlitssvæðinu eiga
rétt á að tilnefna einn fulltrúa í nefndina til viðbótar en hann hefur
ekki atkvæðisrétt við afgreiðslu mála í nefndinni. Sömu reglur gilda um
varamenn." (11. gr lög nr. 7/1998)
Heilbrigðiseftirlitið vinnur í umboði heilbrigðisnefndar.
Samkvæmt samkomulagi Álftaness, Garðabæjar, Hafnarfjarðar og
Kópavogs skipa sveitarfélögin fulltrúa í nefndina á eftirfarandi hátt.
Garðabær: 1 fulltrúi
Hafnarfjörður: 2 fulltrúar
Kópavogur: 2 fulltrúar
Áheyrnarfulltrúi náttúruverndarnefnda er tilnefndur af sveitarstjórn
Álftaness.
|
|
|
Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, Garðatorg 7, 210 Garðabær
Sími: 550 5400, Fax: 550 5409, Tölvupóst: hhk@heilbrigdiseftirlit.is
|