Mengunarvarnaeftirlit tekur til
eftirlits með þeim þáttum sem eiga að fyrirbyggja eða draga úr mengun
lofts, láðs eða lagar, eftirlits, með eiturefnum og hættulegum efnum og
fræðslu um þessi mál. Mest áhersla er lögð á að koma í veg fyrir mengun
með því að fylgja eftir kröfum um mengunarvarnir. Áríðandi er að
spilliefnum sé skilað til förgunar hjá réttum aðilum og að úrgangur sé
flokkaður þannig að endurnýta megi hann að sem mestu leyti.