EFNISYFIRLIT
Forsíða

Dýrahald
Eldri fréttir
Fundargerðir
Gjaldskrár
Hollustuhættir
Matvæli
Mengunarvarnir
Neysluvatn
Skipurit og Starfsemi
Starfsleyfi
Starfsmenn
Umhverfi
Vatnsvernd


Hér erum við

Senda tölvu-póst
 


,,Framkvæmd vatnsverndar á höfuðborgarsvæðinu’’
ritgerð eftir Pál Stefánsson heilbrigðisfulltrúa

Sumarið 2005 gaf Orkuveita Reykjavíkur út ritið ,,Framkvæmd vatnsverndar á höfuðborgarsvæðinu’’ eftir Pál Stefánsson heilbrigðisfulltrúa hjá Heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis.  Ritið er master ritgerð hans í umhverfisfræðum við Háskóla Íslands frá 2004. 

Ritið er á ,,PDF- formi’’ og er 5MB, meðfylgjandi er vatnverndarkort sem er 2MB.

Frá útgefanda.

Rit Páls Stefánssonar, Framkvæmd vatnsverndar og stjórnun vatnsauðlindar á höfuðborgarsvæðinu, er mastersritgerð í umhverfisfræðum við Háskóla Íslands frá vordögum 2004 með minni háttar breytingum.  Höfundur hefur um árabil starfað sem heilbrigðisfulltrúi á höfuðborgarsvæðinu og komið að umhverfisvöktun og framkvæmd vatnsverndar á svæðinu.

Fyrir frumkvæði Orkuveitu Reykjavíkur og með aðkomu Vatnsveitu Hafnarfjarðar, Vatnsveitu Garðabæjar o.fl. aðila var ákveðið að gefa ritgerðina út.  Með því vilja hlutaðeigandi stuðla að aukinni umræðu um mikilvægi vatnsverndar og bættrar stjórnunar á vatnsauðlindum landsins.  Útgáfunni er ætlað að styrkja umræðu innan stjórnsýslunnar um málefni sameiginlegrar vatnsauðlindar og stuðla að betri og samstilltari ákvarðanatöku. 

Það þarf vart að taka fram að skoðanir og sjónarmið sem fram koma í ritinu eru höfundar.  Tilgangur með útgáfunni er að stuðla að virkari skoðanaskiptum um mikilvægi vandsauðlindarinnar og vonandi stuðlar útgáfan að því.

F.h. útgáfustjórnar,
Loftur Reimar Gissurarson, Ph.D.
gæðastjóri Orkuveitu Reykjavíkur.

 

 

Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, Garðatorg 7, 210 Garðabær
Sími: 550 5400, Fax: 550 5409, Tölvupóst: hhk@heilbrigdiseftirlit.is