Forsíða
Starfsemi
Starfsmenn
Starfsleyfi
Hollustuhættir
Matvæli
Mengunarvarnir
Hundahald
Umhverfi
Gjaldskrá
Fundargerðir
Ýmislegt



Starfsleyfisferill
Starfsleyfisumsókn
Tóbaksleyfi




 


Leiðbeiningar til forsvarsmanna atvinnurekstrar varðandi starfsleyfismál og samþykkt teikninga af atvinnuhúsnæði

I. Starfsleyfi:
Fyrirtæki á sviði matvælaframleiðslu og -dreifingar, ýmiss konar þjónustu og iðnaðar er óheimilt að starfa nema að fyrir liggi útgefið starfsleyfi viðkomandi heilbrigðisnefndar. Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, annast útgáfu starfsleyfa fyrir fyrirtæki í Kópavogi, Garðabæ, Álftanesi og Hafnarfirði í umboði heilbrigðisnefndar. Umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar má fá á skrifstofu eftirlitsins.
Starfsleyfisskylda fyrirtækja byggir á lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir með síðari breytingum og lögum nr. 93/1995 um matvæli með síðari breytingum og reglugerðum settum samkvæmt ofanskráðum lögum. Starfsleyfi nær til staðsetningar, eðli og umsvifa starfseminnar. Við breytingar á ofanskráðu þarf að afla nýs starfsleyfis.

HEILBRIGÐISEFTIRLIT GEFUR ÚT EFTIRTALIN LEYFI TIL ATVINNUREKSTRAR:

1. Starfsleyfi v. matvælareglugerðar nr. 522/1994, m.s.br. Með umsókn til heilbrigðiseftirlitsins skulu fylgja samþykktar bygginganefndarteikningar miðað við núverandi notagildi húsnæðis.

2. Starfsleyfi v.
reglugerðar nr. 941/2002 um hollustuhætti, m.s.br. Með umsókn til heilbrigðiseftirlitsins skulu fylgja samþykktar bygginganefndarteikningar miðað við núverandi notagildi húsnæðis.

3. Starfsleyfi v. reglugerðar fyrir atvinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun nr. 785/1999, m.s.br. Heilbrigðiseftirlitið getur óskað eftir frekari gögnum með umsókn s.s. samþykktum bygginganefndarteikningum af húsnæði, fráveitulögnum og öðrum teikningum er varðar mengunarvarnir. Áður en leyfi er veitt þarf heilbrigðiseftirlit að afla staðfestingar byggingafulltrúa á því að starfsemin sé í samræmi við samþykkt skipulag og nýtingu húsnæðis.

4. Leyfi til að selja tóbak í smásölu til 4. ára í senn. Heimilt er að veita tímabundar undanþágur allt að 6 mánuðum fyrir 16 og 17 ára ef fyrir liggur að ekki sé unnt að ráða einstakling sem orðinn er 18 ára (staðfesting atvinnumiðlunar). Eingöngu veitt einstaklingum eða lögaðilum sem fullnægja almennum skilyrðum laga um verslunaratvinnu, þ.e.a.s. að með umsókn þarf að fylgja staðfesting um skráningu hjá Sýslumanni eða í fyrirtækjaskrá.

5. Eiturbeiðnir veita heilbrigðisfulltrúar sem er miðað við notkun eiturefna í eitt skipti og gildir í hálft ár. En eiturefnaleyfi v. laga nr. 52/1988, m.s.br.i veitir lögreglan, að fenginni umsögn Umhverfisstofnunar. Söluleyfi fyrir seljendur eða dreifendur eru veittar af Umhverfisráðherra að fenginni umsögn Umhverfisstofnunar Leyfi fyrir meindýraeyðingu og garðaúðun veitir Umvherfisstonun að undangegnu námskeiði.

Umsögn vegna veitingaleyfis
Rekstraraðila ber að sækja um starfsleyfi fyrir veitingarekstur samkvæmt reglugerð um veitinga- og gististaði nr. 288/1987 og 606/1997, m.s.br. hjá viðkomandi Sýslumanni.

Umsögn vegna vínveitingaleyfis
Rekstrarhafi sem óskar eftir leyfi til vínveitinga á samkvæmt áfengislögum nr. 75/1998 að sækja um á bæjarskrifstofu viðkomandi sveitarfélags.

II Samþykkt teikninga af atvinnuhúsnæði:

Nýbyggingar

Heilbrigðiseftirlit á að fá til umsagnar bygginganefndarteikningar sem sýna grunnmyndir hæða og lóðar af stofnunum og atvinnuhúsnæði, þar með talið óráðstöfuðu atvinnuhúsnæði, áður en þær fá samþykkt bygginganefndar. Sama gildir um lagnateikningar af atvinnuhúsnæði. Æskilegt er að hönnuðir eða byggingaraðilar leiti einnig álits Vinnueftirlits og eldvarnaeftirlits áður en teikningar eru lagðar fyrir byggingafulltrúa.

Breytingar á eldra húsnæði
Áformi húseigandi að breyta húsnæði þarf fyrir því leyfi byggingafulltrúa og umsögn heilbrigðiseftirlits.

Heimilsföng:

Sýslumaðurinn í Kópavogi,
Dalvegur 18, Kópavogur, s: 560-3000

Bæjarskrifstofa Kópavogs,
Fannborg 2, Kópavogur, s: 570-1500

Byggingafulltrúinn í Kópavogi,
Fannborg 6, Kópavogur, s: 570-1450

Sýslumaðurinn í Hafnarfirði,
Bæjarhraun 18, Hafnarfjörður, s: 565-2400

Bæjarskrifstofur Hafnarfjarðar,
Strandgötu 6, Hafnarfjörður, s: 585-5500

Byggingafulltrúinn í Hafnarfirði,
Strandgötu 6, Hafnarfjörður, s: 585-5600

Bæjarskrifstofa Garðabæjar,
Garðatorgi 7, Garðabær, s: 525-8500

Byggingafulltrúinn í Garðabæ,
Garðatorg 7, Garðabær, s: 525-8500

Sýslumaðurinn í Hafnarfirði,
Bæjarhraun 18, Hafnarfjörður, s: 565-2000

Álftanes, skrifstofa,
Bjarnastaðir, Álftanes, s: 550-2300

Byggingafulltrúinn á Álftanesi,
s: 585-9000 (Kristinn Alexandersson)