Neysluvatnið er auðlind
Liðlega áratugur er síðan svæðiskipulag um verndarsvæði vatnsbóla á höfuðborgarsvæðinu í núverandi mynd öðlaðist gildi.
Stöðugt þarf að fylgjast með og vakta þá auðlind sem felst í óspilltu neysluvatni og fór heilbrigðisnefnd m.a. í vettvangsferð um vatnsverndarsvæðið í Heiðmörk í gær þann 19. maí 2008 og heimsótti í leiðinni vatnsból vatnsveitu Kópavogs.
Vatnsveita Kópavogs sem sér um 40 þúsund íbúum auk nokkur þúsund fyrirtækja fyrir neysluvatni er með stærri matvæla dreifendum í landinu.

Heilbrigðisnefnd í vettvangsferð í Heiðmörk 19. maí 2008