Forsíða
Starfsemi
Starfsmenn
Starfsleyfi
Hollustuhættir
Matvæli
Mengunarvarnir
Hundahald
Umhverfi
Gjaldskrá
Fundargerðir
Ýmislegt



Bakarí
Hlaðborð
Kaffihús
Kjötvinnslur
Móttökueldhús
Mötuneyti
Pizzastaðir
Skyndibitastaðir
Stóreldhús
Veitingahús
Örugg matvæli
Soja
Súrmatur


 


Veitingahús
Viðmiðunarreglur um aðbúnað:

A: Eldhús. (Matv:Viðaukar 3, 4 og 5)
Frágangur á gólfum, loftum, veggjum, svo og tækjum og búnaði skal vera þannig að auðvelt sé að þrífa. Við hönnun og fyrirkomulag á búnaði skal gæta þess að ekki sé hætta á krosssmiti vegna matvæla, hrárra og soðinna, efna, hluta, lofts eða vatns.
Lofthæð minnst 2,45 m. Æskilegt er að eldhús sé a.m.k. 18 m2.
Vinnuborð úr límtré eru ekki viðurkennd.

Eftirfarandi búnaður er nauðsynlegur:

Vaskar
1. Tækja og áhaldavaskur fyrir uppþvott á pottum og öðrum áhöldum, sem notuð eru í eldhúsi.

2. Matvælavaskur. Í stórum eldhúsum er mælt með að hafa tvo slíka vaska, annan fyrir grænmeti og hinn fyrir kjöt.

3. Handlaug eingöngu ætluð fyrir handþvott starfsfólks. Við hana sótthreinsandi sápulögur og einnota handþurrkur.

4. Uppþvottavaskur við uppþvottavél eingöngu ætlaður fyrir uppþvott á borðbúnaði gesta. Þar sem notaður er einnota borðbúnaður fyrir gesti þarf ekki þennan búnað.
Kælar og frystar, stærð og fjöldi í samræmi við stærð og umfang veitingahússins.

B. Starfsfólk. (Matv: Viðauki 3)
Fullnægjandi starfsmannaaðstaða, vel loftræst.

1. Snyrtiherbergi með fordyri (búningsherbergi nægir sem fordyri). Salerni og handlaug, ásamt sápuskammtara og einnota handþurrkum. Aðeins ætlað starfsfólki.

2. Búningsherbergi.
3. Kaffiaðstaða.


C. Loftræsting.
1. Loftræstirásir frá eldhúsum veitingahúsa skulu uppfylla ákvæði byggingarreglugerðar

2. Loftræsting frá salernum skal vera lögð í sérstökum loftstokkum, óháðum öðrum loftræstibúnaði.

D. Veitingasalur. (Heilbr: kafliVIII, Bygg: gr. 6.10.2.7. )
1. Rými fyrir hvern gest er áætlað 0,9 fermetrar.

2. Snyrtiherbergi fyrir gesti. Lágmark tvö, þar af annað aðgengilegt fyrir fatlaða í hjólastólum. Salernum sé fjölgað um 2 fyrir hverja 50 gesti. Salerni skal ekki opnast beint inn í veitingasal.

3. Tryggja skal reyklaust svæði í veitingasal.

E. Annað.
1. Ræstitækjageymsla, vel loftræst með skolvaski, skal vera á hverri hæð.

2. Geymslur eins og þurfa þykir.

3. Sorpgeymsla.

4. Ávallt skal halda umhverfi þrifalegu. Ef misbrestur verður þar á, er hægt að láta þrífa á kostnað eiganda.

Eigandi/forráðamaður skuldbindur sig til að sjá um að starfsemin og rekstur veitingastaðarins sé í samræmi við gildandi lög um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, lög um matvæli, svo og önnur lög og reglur er starfsemina varða. Brot á þessum reglum geta valdið afturköllun starfsleyfis.