Súpa
og brauð
Viðmiðunarreglur heilbrigðiseftirlits um aðbúnað í móttökueldhúsum
og mötuneytum, eingöngu með heita súpu og smurt brauð, með tilvísan
í reglugerð 522/1994
A: Eldhús
Frágangur á gólfum, loftum, veggjum, svo og tækjum og búnaði
skal vera þannig að auðvelt sé að þrífa Við hönnun og fyrirkomulag
á búnaði skal gæta þess að ekki sé hætta á krosssmiti vegna
matvæla, hrárra og soðinna, efna, hluta, lofts eða annars.
Æskileg lofthæð minnst 2,45 m.
Æskilegt er að eldhús sé a.m.k. 18 m2
Vinnuborð úr límtré eru ekki viðurkennd.
Eftirfarandi búnaður er nauðsynlegur:
Vaskar
1. Handlaug eingöngu ætluð fyrir handþvott starfsfólks. Við
hana sótthreinsandi sápulögur og einnota handþurrkur.
2. Uppþvottavaskur fyrir uppþvott á pottum og öðrum áhöldum,
sem notuð eru í eldhúsi.
3. Skolvaskur við uppþvottavél eingöngu ætlaður fyrir uppþvott
á borðbúnaði gesta. Þar sem notaður er einnota borðbúanður þarf
ekki þennan búnað. Skolvaskur og uppþvottavaskur getur verið
hinn sami, sé umfang lítið. H
itunarbúnaður sem tryggir að heitum mat sé stöðugt haldið yfir
60°C.
Kælar og frystar, stærð og fjöldi í samræmi við stærð og umfang
mötuneytis.
B. Starfsfólk
Fullnægjandi starfsmannaaðstaða, vel loftræst.
1. Snyrtiherbergi með fordyri (búningsherbergi nægir sem fordyri).
Salerni og handlaug, ásamt sápuskammtara og einnota handþurrkum.
Aðeins ætlað starfsfólki (V.3, 4.gr.)
2. Skápur fyrir hlífðarföt eða búningsherbergi.
3. Kaffiaðstaða starfsfólks aðskilið eldhúsi.
4. Notkun tóbaks óheimil í eldhúsi og þar sem matvæli eru geymd.
C. Loftræsting
1. Loftræstirásir frá eldhúsum mötuneyta skulu uppfylla ákvæði
byggingarreglugerðar
2. Loftræsting frá salernum skal vera lögð í sérstökum loftstokkum,
óháðum öðrum loftræstibúnaði.
D. Matsalur
1. Rými fyrir hvern gest er áætlað 0,9 fermetrar.
2. Snyrtiherbergi fyrir gesti. Lágmark tvö, þar af annað aðgengilegt
fyrir fatlaða í hjólastólum. Ef matsalur rúmar fleiri en 100
manns þarf fleiri snyrtiherbergi fyrir gesti, sé matsalur fyrir
færri en 30 nægir 1 salerni. Salerni skal ekki opnast beint
inn í matsal.
3. Tryggja skal reyklaust svæði í matsal.
E. Annað
1. Ræstitækjageymsla, vel loftræst með skolvaski.
2. Geymslur eins og þurfa þykir.
3. Matarleifar og annan úrgang skal setja í sorpílát eða gáma
sem hægt er að loka, ekki er leyfilegt að matarleifar og annar
úgangur safnist upp þannig að óþrifnaður stafi af.
4. Ávallt skal halda umhverfi þrifalegu.
Eigandi/forráðamaður skuldbindur sig til að sjá um að starfsemin
og rekstur mötuneytisins sé í samræmi við gildandi lög um hollustuhætti
og heilbrigðiseftirlit svo og önnur lög og reglur er starfsemina
varða. Brot á reglum þessum geta valdið afturköllun starfsleyfis.