Kaffihús
Viðmiðunarreglur um aðbúnað:
Húsakynni staðarins, innréttingar og búnaður skal vera fullnægjandi
að mati heilbrigðiseftirlitsins og í samræmi við viðauka 4 í
reglugerð nr 522/1994.
A: Eldhús (Matv:Viðaukar 3, 4 og 5 )
· Aðskilið rými (eldhús) til baksturs og/eða smurbrauðsgerðar
skal vera í bakherbergi, sem auðvelt er að þrífa.
· Sérstakur starfsmaður þarf að annast bakstur og smurbrauðsgerð.
Nota skal hlífðarföt og höfuðföt.
· Óheimilt er að sinna afgreiðslu á sama tíma og starfsmaður
starfar við smurbrauðsgerð eða bakstur.
· Óheimilt er að útbúa smurða brauðið eða baka meðlætið í heimahúsi.
Eftirfarandi búnaður er nauðsynlegur:
Vaskar
1. Tækja og áhaldavaskur fyrir uppþvott á pottum og öðrum áhöldum,
sem notuð eru í eldhúsi.
2. Matvælavaskur. Í stórum eldhúsum er mælt með að hafa tvo
slíka vaska, annan fyrir grænmeti og hinn fyrir kjöt. Þar sem
ekki er vinnsla við matvæli þarf ekki matvælavask.
3. Handlaug eingöngu ætluð fyrir handþvott starfsfólks. Við
hana sótthreinsandi sápulögur og einnota handþurrkur.
4. Uppþvottavaskur við uppþvottavél eingöngu ætlaður fyrir uppþvott
á borðbúnaði gesta. Þar sem notaður er einnota borðbúnaður fyrir
gesti þarf ekki þennan búnað. Uppþvottavaskur og áhaldavaskur
getur verið hinn sami, sé umfang lítið. Kælar og frystar, stærð
og fjöldi í samræmi við stærð og umfang kaffihússins.
B. Starfsfólk
Fullnægjandi starfsmannaaðstaða, vel loftræst.
1. Snyrtiherbergi með fordyri (búningsherbergi nægir sem fordyri).
Salerni og handlaug, ásamt sápuskammtara og einnota handþurrkum.
Aðeins ætlað starfsfólki.
2. Búningsherbergi. Þar sem engin vinnsla er með óvarin matvæli
nægja skápar í stað búningsherbergja.
3. Kaffiaðstaða. Þar sem engin vinnsla er með óvarin matvæli
getur kaffiaðstaða verið inni í búningsaðstöðu.
C. Loftræsting
1. Loftræsting frá salernum skal vera lögð í sérstökum loftstokkum,
óháðum öðrum loftræstibúnaði.
D. Veitingasalur
1. Rými fyrir hvern gest er áætlað 0,9 fermetrar.
2. Snyrtiherbergi fyrir gesti. Lágmark tvö, þar af annað aðgengilegt
fyrir fatlaða í hjólastólum. Salernum sé fjölgað um 2 fyrir
hverja 50 gesti. Salerni skal ekki opnast beint inn í veitingasal.
3. Tryggja skal reyklaust svæði í veitingasal.
E. Annað
1. Ræstitækjageymsla, vel loftræst með skolvaski, skal vera
á hverri hæð.
2. Geymslur eins og þurfa þykir.
3. Sorpgeymsla.
4. Ávallt skal halda umhverfi þrifalegu. Ef misbrestur verður
þar á, er hægt að láta þrífa á kostnað eiganda.
Eigandi/forráðamaður skuldbindur sig til að sjá um að starfsemin
og rekstur kaffihússins sé í samræmi við gildandi lög um hollustuhætti
og heilbrigðiseftirlit, lög um matvæli, svo og önnur lög og
reglur er starfsemina varða. Brot á reglum þessum geta valdið
afturköllun starfsleyfis.