|
|
Brauð-og
kökugerðir
Brauð- og kökugerðir þurfa að hafa starfsleyfi heilbrigðiseftirlits
og starfrækja innra eftirlit.
Helstu lög og reglugerðir
-Lög nr. 93/1995 um matvæli.
-Reglugerð nr. 522/1994 um matvælaeftirlit og hollustuhætti
við framleiðslu og dreifingu matvæla. (= matvælareglugerð)
-Reglugerð nr. 588/1993 um merkingu, kynningu og auglýsingu
matvæla.* Reglugerð nr. 579/1993 um aukefni í matvælum.*
- Heilbrigðisreglugerð nr. 149/1990.*
- Mengunarvarnarreglugerð nr. 48/1994 .*
* með áorðnum breytingum.
Undirflokkar
Brauðverksmiðja
framleiðir brauð í miklum mæli og er aðallega með samfellda
vinnslu.
Bakarí
framleiða mismikið en eiga það sameiginlegt að um lotubundna
vinnslu er að ræða.
Smásala á brauði og kökum
eru sölustaðir sem selja óvarið brauð úr hillum líkt og bakarí,
en vinnsla fer ekki fram á staðnum. Þó er heimill bakstur á
tilbúnu deigi að uppfylltum skilyrðum heilbrigðiseftirlits.
Aðbúnaður
Húsakynni (matv.reglug: viðauki 3,4 og 9)
Lóð
Rykbundinn með niðurföllum og snyrtilega umgengin.
Húsnæði
Lofthæð skal vera 2,5m. Veggir, loft, og gólf slétt og auðþrífanleg.
Niðurföll.
Vinnslurými.
Nægjanlegt rými og skipan þannig að þrif séu auðveld og tryggt
sé að krossmengun geti ekki átt sér stað.
Starfsmannaaðstaða
a) Loftræst snyrtiherbergi (salerni og handlaug) sem eingöngu
er til afnota fyrir starfsfólk. Það skal vera með lokuðu forrými.
b) Kranar á öllum handlaugum skulu vera opnanlegir án handsnertingar
(fótstýring, fótósella).
c) Fullnægjandi fataskiptarými og kaffiaðstaða með vaski .
Loftræsting
Loftræstirásir frá ofnum skulu uppfylla ákvæði byggingareglugerðar.
Loftræsting frá salernum skal vera lögð í sérstökum loftstokkum
óháðum öðrum lofthreinsibúnaði.
Ræstiklefi
Sérstök vel loftræst geymsla fyrir ræstitæki og -efni, með skolvaski.
Búnaður (matv.reglug: viðauki 4 og 5)
Í vinnslurými skulu vera:
a) Tækja-og áhaldavaskur. Fyrir uppþvott á tækjum og áhöldum.
b) Matvælavaskur, þar sem við á.
c) Handlaug fyrir starfsfólk skal vera aðgengileg á vinnusvæði
og skulu gerileyðandi sápulögur og einnota handþurrkur ávallt
vera til staðar við handlaugina.
Matarleifar og úrgangur (matv.reglug: viðauki 6)
Sorpgeymsla/ílát:
(Vel loftræst), meindýraheld, auðveld í þrifum, með loki.
Aðkoma að sorpgeymslu skal vera aðskilin frá aðkomu að bakaríi/brauðverksmiðju.
Innra eftirlit
Brauðverksmiðjur og bakarí noti aðferðir GÁMES, eftir því sem
við á.
Starfsfólk (matv.reglug. viðauki 2 og 3)
· Starfsfólk sé í ljósum, vasalausum vinnufatnaði og ávallt
hreint og snyrtilegt til fara. Það hylji hár með höfuðbúnaði
ef vinna fer fram við óvarin matvæli. Einungis má vera á vinnusvæði
í tilheyrandi vinnufatnaði, en hvergi annars staðar. Starfsfólk
í afgreiðslu skal einnig hafa höfuðbúnað.
· Fatnað skal þvo við viðurkenndar aðstæður. Nóg skal vera til
af hreinum hentugum vinnufatnaði.
· Starfsfólk skal fá fræðslu og þjálfun við upphaf starfs. Áherslu
skal leggja á fræðslu um örverur og mikilvægi hreinlætis, hitastig
og tíma, hættu á krossmengun, smitsjúkdóma og sár.
Hreinlætisáætlanir
Krafa er gerð um skriflegar hreinlætisáætlanir er innihaldi
þrifalýsingu, í henni komi fram ábyrgðarmaður þrifa á hverju
svæði, tíðni þrifa og tegund hreinsi- og sótthreinsiefna sem
notuð eru.
Meindýravarnir
Áætlanir um varnir gegn meindýrum. Fara ársfjórðungslega yfir
öll op og hugsanlegar innkomuleiðir meindýra inn í húsnæðið.
Setja upp rafmagnsflugnadrepara þar sem við á og ganga vel frá
sorpílátum og þrífa reglulega þannig að ekki skapist skilyrði
til vaxtar meindýra við þau eða í þeim. Setja upp gildrur fyrir
nagdýr við hleðsludyr og aðrar hugsanlegar innkomuleiðir.
Viðbrögð við frávikum
Skriflegar áætlanir um viðbrögð við frávikum skulu vera til
staðar.
Meðferð matvæla ofl . (matv.reglug: gr. 4 og gr. 7-10, viðauki
1)
Hráefni, íblöndunarefni, aukefni og önnur efni séu viðurkennd,
óspillt og hæf til neyslu eða vinnslu.
Við innkaup/móttöku skal vara fara strax inn í rétta
geymslu. Við móttöku þarf að skoða hvort umbúðir séu heilar
og hvort ákvæði merkingareglugerðar og aukefnareglugerðar séu
uppfyllt.
Geymsla matvæla hæfi hverri tegund. Fyrst inn-fyrst út
regla sé viðhöfð. Matvæli í geymslum séu vel merkt geymsluþoli/dagmerkingu.
Þetta á bæði við um nýja vöru og afganga.
Kæligeymsla sé 0-4°C. Frystigeymsla sé a.m.k.
-18°C. Stærð þeirra samræmist umfangi starfsemi. Í þeim á vera
hitamælir og eðlileg vöruhleðsla. Hitastig skal skrá daglega.
Aðskilnaður skal vera milli hrárra og bakaðra/soðinna vara,
svo og ópakkaðra viðkvæmra matvæla.
Sérstakar kröfur
· Umstöflun á sekkjavöru v/móttöku.
· Ristar við sílótanka og frágangur við sílóin þannig að ekki
sé hætta á að vatn komist þar í.
· Sérstaka aðgát skal viðhafa við móttöku rifinna/götóttra/viðgerðra
mjölsekkja. Fyrirtækið þarf að setja sér reglur um hvenær eigi
að hafna/samþykkja slíkt.
· Brauð í endurnýtingu fari í sérstaka geymslu.
· Fullnægjandi aðstaða til að kæla brauð skal vera innandyra.
· Við afgreiðslu á óvarinni brauðvöru skal nota tengur eða sambærileg
áhöld.
· Ávallt skulu vera á útsölustöðum fyrirliggjandi skriflegar
upplýsingar um innihald ópakkaðrar brauðvöru (skylt er að merkja
innpakkað brauð eins og aðra innpakkaða matvöru).
|