HEILBRIGÐISNEFND

HAFNARFJARÐAR- OG KÓPAVOGSSVÆÐIS

168. fundur – 30. janúar 2012

 

Fundargerð

Fundur var haldinn í heilbrigðisnefnd Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, mánudaginn  30. janúar 2012.  Fundarstaður skrifstofa   að Garðatorgi 7, Garðabæ.    Fundurinn hófst kl. 17.  Mættir voru undirritaðir nefndarmenn auk Páls Stefánssonar, heilbrigðisfulltrúa og Guðmundar H. Einarssonar, framkvæmdastjóra, sem ritaði fundargerð. Sunna Björg Helgadóttir boðaði forföll og í hennar stað mætti Bryndís Skúladóttir.

 

Fundargerð 167. fundar heilbrigðisnefndar frá 15. desember 2011 lögð fram.

1              Fundargerð 146. starfsmannafundar frá 25. janúar  2012

1.1         Starfsleyfi                                   

 Garðabær   

1.1.1       Lyngás 17, Garðabær – matstofa 

Lögð fram umsókn Erlu Sveinsdóttur f.h Matar og kaffis ehf., kt. 500304-2350 dags. 6.01.2012, þar sem sótt er um leyfi til reksturs matstofu að Lyngási 17, Garðabæ. Húshluti: 01 0101.

Ný starfsemi

Með vísun til ákvæða matvæla- og hollustuháttareglugerða er stafsleyfi samþykkt til 12 ára  að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.

Hafnarfjörður

1.1.2          Fjarðargata 11, Hafnarfjörður – innflutningur á salti 

Lögð fram umsókn Helga Más Reynissonar f.h Stólpavíkur ehf.,  kt. 450146-0139, dags. 16.01.2012, þar sem sótt er um leyfi til innflutnings á salti, skrifstofa að Fjarðargötu 11, Hafnarfirði.  Ný starfsemi.

Með vísun til ákvæða matvæla- og hollustuháttareglugerða er stafsleyfi samþykkt til 12 ára  að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.

1.1.3          Flatahraun 5a, Hafnarfjörður – tannlæknastofa

Lögð fram umsókn Magnúsar F. Ragnarssonar f.h. Apikal slf., kt. 680410-0110, dags. 2.01.2012, þar sem sótt er um leyfi til reksturs tannlæknastofu að Flatahrauni 5a, Hafnarfirði.

Húshluti:  01.02.  Ný starfsemi.

Með vísun til ákvæða hollustuhátta- og mengunarvarnareglugerða er stafsleyfi samþykkt til 12 ára. 

1.1.4          Hellisgata 26, Hafnarfjörður – daggæsla

Lögð fram umsókn Þórdísar M. Böðvarsdóttur, kt. 211159-2009, dags. 11.01.2012, þar sem sótt er um leyfi fyrir daggæslu fyrir allt að 10 börn að Hellisgötu 26, Hafnarfirði.

Húshluti: allt húsið.  Ný starfsemi.

Frestað þar sem upplýsingar vantar.

1.1.5          Hólshraun 1, Hafnarfjörður – matvöruverslun

Lögð fram umsókn Sigurbjartar Þórðardóttur f.h. Fjarðarkaups  ehf., kt. 650398-3359, dags. 3.01.2012, þar sem sótt er um leyfi til reksturs matvöruverslunar að Hólshrauni 1, Hafnarfirði.

Húshluti: allt húsið.  Endurnýjun.

Með vísun til ákvæða matvæla- og hollustuháttareglugerða er stafsleyfi samþykkt til 12 ára að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.

1.1.6          Lónsbraut 6, Hafnarfjörður – drykkjavöruframleiðsla

Lögð fram umsókn Snorra Jónssonar f.h Víngerðar Reykjavíkur ehf.,  kt. 470909-0800, dags. 30.12.2011, þar sem sótt er um leyfi til reksturs drykkjavöruframleiðslu að Lónsbraut 6, Hafnarfirði.  Húshluti: 01 0106. Ný starfsemi.

Með vísun til ákvæða matvælareglugerða er starfsleyfi samþykkt til 4 ára að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.

1.1.7          Lækjargata 34C, Hafnarfjörðu – snyrtistofa

Lögð fram umsókn Þóreyjar Gunnarsdóttur f.h. Makeover ehf., kt. 631211-0110, dags. 19.01.2012, þar sem sótt er um leyfi til  reksturs snyrtistofu að Lækjargötu 34C, Hafnarfirði.

Húshluti: 03-0102 (fastanr. 207-7664. Ný starfsemi

Með vísun til ákvæða hollustuháttareglugerða er stafsleyfi samþykkt til 12 ára með fyrirvara um að starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar og að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.

1.1.8          Reykjanesbraut við Straumsvík, Hafnarfjörður  - mötuneyti

Lögð fram umsókn Dofra Eysteinssonar f.h. Suðurverks hf., kt. 520885-0219, dags.12.01.2012, þar sem sótt er um leyfi til reksturs mötuneytis í vinnubúðum.

Húshluti: vinnubúðir í tengslum við gerð undirganga.  Tímabundin starfsemi.

Með vísun til ákvæða matvælareglugerða er stafsleyfi samþykkt að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.

Kópavogur

1.1.9          Digranesvegur 8, Kópavogur - bílaleiga

Lögð fram umsókn Smára Jónssonar f.h. Bílaleigu Kópavogs ehf., kt. 420802-3070, dags. 23.01.2012, þar sem sótt er um leyfi til reksturs bílaleigu að Digranesvegi 8, Kópavogi.

Húshluti: bílskúr.  Ný starfsemi.

Lagt er fram samþykki húseiganda fyrir aðstöðu til reksturs bílaleigu á staðnum.

Samkvæmt aðalskipulagi Kópavogs, 2000-2012, er starfsemin á íbúðasvæði Me(Ell).

Mælt er með frestun og óskað umsagnar byggingafulltrúa.

1.1.10      Hlíðasmári 8, Kópavogur  - snyrtistofa

Lögð fram umsókn Jóhönnu R. Hólmgeirsdóttur f.h. Snyrtikompanísins slf., kt. 550310-1200, dags. 22.12.2011, þar sem sótt er um leyfi til reksturs snyrtistofu að Hlíðasmára 8, Kópavogi.

Húshluti: 01 0102.  Ný starfsemi. 

Fyrir liggur eftirlitsskýrsla dags. 21.12.2011.

Með vísun til ákvæða hollustuháttareglugerða starfsleyfi samþykkt til 12 ára og að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.

1.1.11      Hlíðasmári 15, Kópavogur  - veitingahús

Lögð fram umsókn Lemlem Kahssay, kt. 280580-2959, dags.17.01.2012, þar sem sótt er um leyfi til reksturs veitingahúss að Hlíðasmára 15, Kópavogi. Húshluti: 01 0103.  Ný starfsemi.

Með vísun til ákvæða matvæla- og hollustuháttareglugerða  er samþykkt starfsleyfis til 12 ára með fyrirvara um að starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar og að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.

1.1.12      Kársnesbraut 96a, Kópavogur -  veislu- og mötuneytisþjónusta

Lögð fram umsókn Sturlu Birgissonar  f.h. H og K Veitingar ehf. kt. 430877-0119, dags. 19.12.2011, þar sem sótt er um leyfi til reksturs veislu- og mötuneytisþjónustu að Kársnesbraut 96a, Kópavogi. Ný starfsemi.

Með vísun til ákvæða matvælareglugerða er starfsleyfi samþykkt til 12 ára.

1.1.13      Langabrekka 25, Kópavogur  - orlofshús

Lögð fram umsókn Erlu Dísar Þórsdóttur f.h. Þórs Magnússonar, kt. 110658-2739, dags. 9.01.2012, þar sem sótt er um leyfi til reksturs orlofshúss að Löngubrekku 25, Kópavogi.

Húshluti: efri hæð í tvíbýli.  Ný starfsemi.

Með vísun til ákvæða hollustuháttareglugerða er stafsleyfi samþykkt til 2 ára.

1.1.14       Salavegur 2, Kópavogur  - sjálfsafgreiðslustöð

Lögð fram umsókn Helga Kristjánssonar f.h. N1 hf., kt. 540206-2010, dags. 4.01.2012, þar sem sótt er um leyfi til reksturs sjálfsafgreiðslustöðvar með bensín og gasolíu  að Salaveg, Kópavogi. Endurnýjun.

Með vísun til ákvæða mengunarvarnareglugerða er stafsleyfi samþykkt til 12 ára að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.

1.1.15      Smiðjuvegur 11, Kópavogur  - sala  á hreinsiefnum

Lögð fram umsókn Guðmundar E. Björnssonar f.h. Automatic  ehf., kt. 670808-0170, dags. 22.12.2011, þar sem sótt er um leyfi til sölu á hreinsiefnum að Smiðjuvegi 11, Kópavogi.

Húshluti: miðhluti norðanmegin 01 0101.  Ný starfsemi.

Með vísun til ákvæða hollustuháttareglugerða er stafsleyfi samþykkt til 12 ára  að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.

1.1.16      Smiðjuvegur 38, Kópavogur  - drykkjarvöruframleiðsla

Lögð fram umsókn Björns Inga Stefánssonar  f.h. Hpheilsu ehf., kt. 550911-0510, dags. 4.01.2012, þar sem sótt er um leyfi til framleiðslu á drykkjarvörum að Smiðjuvegi 38, Kópavogi.

Húshluti: 01 0101.  Ný starfsemi.

Með vísun til ákvæða matvælareglugerða er stafsleyfi samþykkt til 12 ára að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.

1.1.17      Ögurhvarf 2, Kópavogur  - veitingastofa

Lögð fram umsókn Jóns V. Magnússonar f.h. Skalla slf., kt. 651110-0760, dags.20.12.2011, þar sem sótt er um leyfi til reksturs veitingastofu að Ögurhvarfi 2, Kópavogi.

Húshluti: 01 0203.  Eigendaskipti.

Með vísun til ákvæða matvælareglugerða er stafsleyfi samþykkt til 12 ára að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.

1.2         Umsagnir           

Álftanes

1.2.1          Breiðamýri, Álftanesi,  íþróttahús, tækifærisleyfi 

Lagt fram bréf sýslumannsins í Hafnarfirði dags. 3.01.2012, þar sem óskað er umsagnar á umsókn Lionsklúbbs Álftaness  kt. 210763-3929, þar sem sótt er um tækifærisleyfi fyrir

þorrablót sem haldið verður íþróttamiðstöðinni við Breiðumýri, þann 28.01.2012 frá kl. 19:00-04:00 fyrir 300 manns.

Jákvæð umsögn staðfest.        

Hafnarfjörður

1.2.2          Dalshraun 11, Hafnarfjörður, veitingastaður, rekstrarleyfi

Lagt fram bréf sýslumannsins í Hafnarfirði dags. 23.01.2012, þar sem óskað er umsagnar á umsókn Serrano Íslandi ehf., kt. 411002-2840, þar sem sótt er um rekstrarleyfi fyrir veitingahús í flokki ll  að Dalshrauni 11, Hafnarfirði.

Eftirfarandi samþykkt var gerð:

 “Heilbrigðisnefnd samþykkti 27.08.2007 starfsleyfi til rekstur veitingahúss skv. matvæla og hollustuháttarreglugerðum. Í fyrirliggjandi umsókn er sótt um endurnýjun á rekstrarleyfi, samkvæmt ll. flokki reglugerðar nr. 585/2007. Mat m.t.t. grenndaráhrifa er að ólíklegt verði að teljast, að hávaði frá starfseminni valdi ónæði í nágrenninu.  Mælt er með veitingu rekstrarleyfis fyrir veitingahús.”

Kópavogur

1.2.3          Engihjalli 8, Kópavogur – veitingastaður, rekstrarleyfi

Lagt fram bréf sýslumannsins í Kópavogi dags 5.01.2012, þar sem óskað er umsagnar á umsókn Gull riddarans kt. 671211-0650, þar sem sótt er um rekstrarleyfi fyrir veitingastað í flokki Ill  að Engihjalla 8,  Kópavogi.

Afgreiðslu frestað þar sem starfsleyfi liggur ekki fyrir.

1.2.4          Hlíðasmári 15, Kópavogur –  veitingastaður, rekstrarleyfi

Lagt fram bréf sýslumannsins í Kópavogi dags 10.01.2012, þar sem óskað er umsagnar á umsókn Lemlem Kahassay Gere kt. 280580-2959, þar sem sótt er um rekstrarleyfi fyrir veitingastað í flokki Il  að Hlíðasmára 15,  Kópavogi.( Ethiopian Restaurant).

Eftirfarandi samþykkt var gerð:

Heilbrigðinefnd samþykkti í dag 30.01.2012 að veita Lemlem Kahassay Gere  kt. 280580-2959    starfsleyfi fyrir veitingastofu  samkvæmt ákvæðum laga um matvæli og laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Í fyrirliggjandi umsókn er sótt um rekstrarleyfi til reksturs veitingastofu samkvæmt  ll. flokki reglugerðar nr. 585/2007. Mat m.t.t. grenndaráhrifa er að ólíklegt verði að teljast, að hávaði frá starfseminni valdi ónæði í nágrenninu. Mælt er með veitingu rekstrarleyfis fyrir veitingahús að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.

1.2.5          Skálaheiði 2,  Kópavogur -  íþróttahús, tækifærisleyfi 

Lagt fram bréf sýslumannsins í Kópavogi dags. 10.12.2011, þar sem óskað er umsagnar á umsókn Handknattleiksfélags Kópavogs  kt. 630981-0269, þar sem sótt er um tækifærisleyfi fyrir árshátíð  HK sem haldin verða í íþróttahúsi HK Digranesi, þann 28.01.2012 frá kl. 19:00-02:00 fyrir 600 manns.

Jákvæð umsögn staðfest.

1.2.6          Ögurhvarf 2, Kópavogur – Skalli slf, rekstrarleyfi

Lagt fram bréf sýslumannsins í Kópavogi dags 4.01.2012, þar sem óskað er umsagnar á umsókn Skalla slf kt. 651110-0760, þar sem sótt er um rekstrarleyfi fyrir veitingastað í flokki I  að Ögurhvarfi 2,  Kópavogi.  Sjá starfsleyfisumsókn í tölul. 1.17

Eftirfarandi samþykkt var gerð:

Heilbrigðinefnd samþykkti í dag 30.01.2012 að veita Skalla slf, kt. 651110-0760   

starfsleyfi fyrir veitingastofu  samkvæmt ákvæðum laga um matvæli og laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Í fyrirliggjandi umsókn er sótt um rekstrarleyfi til reksturs veitingastofu samkvæmt l. flokki reglugerðar nr. 585/2007. Mat m.t.t. grenndaráhrifa er að ólíklegt verði að teljast, að hávaði frá starfseminni valdi ónæði í nágrenninu. Mælt er með veitingu rekstrarleyfis fyrir veitingastofu.

1.3         Tóbaksleyfi

1.3.1          Fjarðarkaup ehf, Hólshrauni 1, Hafnarfjörður - matvöruverslun

Lögð fram umsókn Fjarðarkaups ehf, kt. 650398-3359, dags. 3.01.2012, þar sem sótt er um   leyfi til tóbakssölu í stórmarkaði að Hólshrauni 1, Hafnarfirði.

Leyfisveiting samþykkt.

1.3.2          Skalli slf, Ögurhvarfi 2, Kópavogur – veitingastofa

Lögð fram umsókn Skalla slf, kt. 651110-0760, dags. 20.12.2011, þar sem sótt er um   leyfi til tóbakssölu í veitingastofu að Ögurhvarfi 2, Kópavogi.

Leyfisveiting staðfest.

1.4             Annað 

Álftanes

1.4.1          Á bökkum norðan Gesthúsa, Álftanes, áramótabrenna

Lagt fram bréf Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu þar sem óskað er umsagnar um umsókn Björns Árna Ólafssonar f.h. Sveitafélagsins Álftanes kt. 440169-6869,  dags. 19.12.2011, þar sem sótt er um leyfi fyrir áramótabrennu á bökkunum norðan við Gesthús (sama staðsetning og undanfarin ár),  kl. 19.30 þann 31. desember 2011.

Jákvæð umsögn staðfest.

Hafnarfjörður

1.4.2          Tjarnarvellir, Hafnarfjörður, áramótabrenna

Lagt fram bréf Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu þar sem óskað er umsagnar um umsókn Geirs Garðarssonar, f.h. Knattspyrnufélagsins Hauka  kt. 600169-0419,  dags. 19.12.2011, þar sem sótt er um leyfi fyrir áramótabrennu við Tjarnarvelli 7, Hafnarfirði (sama staðsetning og undanfarin ár), kl. 20.30 þann 31. desember 2011.

Jákvæð umsögn staðfest.

 

                                                Kópavogur

1.4.3          Gulaþing, Kópavogur, áramótabrenna

Lagt fram bréf Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu þar sem óskað er umsagnar um umsókn Árna Þórs Árnasonar kt. 240366-5179,  dags. 13.12.2011, þar sem sótt er um leyfi fyrir áramótabrennu í Þinghverfi fyrir ofan Gulaþing,  kl. 20.30 þann 31. desember 2011.

Jákvæð umsögn staðfest.

1.4.4          Smárahvammur, Kópavogur, áramótabrenna

Lagt fram bréf Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu þar sem óskað er umsagnar um umsókn Kristjáns Jónatanssonar f.h. Breiðabliks  kt. 480169-0699,  dags. 13.12.2011, þar sem sótt er um leyfi til áramótabrennu á brennusvæði við Smárahvamm (sama staðsetning og undanfarin ár),  kl. 20.30 þann 31. desember 2011.

Jákvæð umsögn staðfest.

2        Stjórnsýslukæra vegna ákvörðunar um útgáfu starfsleyfi til Hvamms ehf. til rekstrar eggja- og kjúklingabús

Lagt fram erindi Umhverfisráðuneytis frá 21. desember 2011, vegna erindis (viðbótarmáls-ástæður) Helgu Lofsdóttur hdl., f.h. Boðaþings ehf. ofl. dags. 22. nóvember 2011, vegna stjórnsýslukæru sömu aðila frá 11. október sl. vegna ákvörðunar Heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar og Kópavogssvæðis um útgáfu starfsleyfis til Hvamms ehf. til reksturs eggja- og kjúklingabús.  Ráðuneytið óskar eftir afriti af umsókn umrædds starfsleyfishafa um starfsleyfi og þeim gögnum er fylgdu umsókninni eða varða málið að öðru leyti. Er þess einnig óskað að nefndin veiti umsögn um framangreint erindi Helgu Lofsdóttur, að undanskildri umfjöllun um veitingu ráðuneytisins á undanþágu til umrædds starfsleyfishafa eða hugsanlegt vanhæfni ráðherra vegna málsins.

 

Heilbrigðisnefnd hefur látið taka saman þau gögn er ráðuneyti óskaði og verða þau send ásamt  umsögn ,,Viðbótarmálsástæður vegna stjórnsýslukæru Boðaþings ehf. o.fl. á ákvörðun Heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis um útgáfu starfsleyfis til Hvamms ehf.”

3        Starfsemi ársins 2011

Farið yfir helstu mál og drög að ársskýrslu fyrir liðið starfsár.

4        Skipulagsmál

4.1         Waldorfskólinn Lækjarbotnum, Kópavogi.  Umhverfisáætlun

Lagt fram erindi Kópavogsbæjar, skipulags- og byggingardeildar, frá 3. janúar 2012, þar sem óskað er umsagnar um umhverfisáætlun fyrir Waldorfsskólann í Lækjarbotnum.  Umhverfisáætlun Sjálfseignastofnunar Ásmegins er ætlað að sýna hvernig stofnunin ætlar að lágmarka óæskileg áhrif á umhverfi sitt. Um leið er verið að undirbúa nýja skipulagsáætlun fyrir svæðið þar gert er ráð fyrir nokkurri uppbyggingu á bæði kennsluhúsnæði sem og fjölgun starfsmannabústaða.

 

Eftirfarandi umsögn er veitt varðandi umhverfisáætlun

,,Heilbrigðisnefnd fagnar framkominni umhverfisáætlun Sjálfseignastofnunar Ásmegins þar sem fram kemur vilji til að lágmarka óæskileg umhverfisáhrif bæði vegna staðsetningar og eins sem mikilvægs þáttar í almennu námi og vinnu nemenda og starfsfólks”. 

 

Eftirfarandi bókun er gerð í ljósi dreifingarpár vegna loftgæða:

,,Heilbrigðisnefnd beinir því til Skipulagsnefndar Kópavogs að lagt verði mat á nýtingu svæðisins í Lækjarbotnum til skólahalds með tilliti til áætlaðs mengunarálags.”

4.2         Starfsstöð þyrluþjónustu við Gunnarshólma, Kópavogi

Lagt fram erindi Kópavogsbæjar, skipulags- og byggingardeidar, frá 26. janúar 2012 þar sem kynnt er erindi sem lagt hefur verið fram hjá nefndinni varðandi mögulega starfsstöð þyrluþjónustu við Gunnarshólma.

Lagt fram til kynningar.

4.3         Hellisheiðavirkjun, ylræktarver, breytt deiliskipulag í sveitarfélaginu Ölfusi

Lagt fram erindi Kópavogsbæjar, skipulags- og byggingardeildar, frá 23. janúar 2012, þar sem óskað er umsagnar um tillögu Sveitarfélagsins Ölfuss, dags. 5. janúar 2012 um skipulagslýsingu og kynningargögn vegna deiliskipulags ylræktarvers við Hellisheiðarvirkjun.

Afgreiðslu frestað og óskað umsagnar framkvæmdastjórnar um vatnsvernd.

5        Uppsögn samninga um framsal eftirlits

Lagt fram til kynningar erindi Umhverfisstofnunar dags. 13. desember 2011, þar sem fram kemur að Umhverfisstofnun telur framsal eftirlits til heilbrigðisnefnda sé ekki heimilt og að frá og með 1 janúar 2012 mun Umhverfisstofnun sjá um eftirlit með fyrirtækjum sem falla undir fylgiskjal I og viðauka I (að undanskildum töluliðum 6.4 -6.6) í reglugerð nr. 786//1999 um mengunarvarnaeftirlit.

Heilbrigðisnefnd óskar eftir að stjórn heilbrigðiseftirlitssvæða skoði þessa stöðu.

6        Samþykkt um kattahald í Garðabæ

Lagt fram erindi umhverfisnefndar Garðabæjar ásamt tillögu að samþykkt um kattahald í Garðabæ dags. 6.12.2011.  Tillagan er unnin í samvinnu heilbrigðisnefndar og umhverfisnefndar.  Heilbrigðisnefnd mælir með að ekki verði teknar upp skráningar á köttum eða innheimt eftirlits- eða leyfisgjöld.

Með þeim breytingum á framlagðri tillögu og með vísun til ákvæða 25. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998, leggur heilbrigðisnefnd fyrir bæjarstjórn Garðabæjar tillögu að samþykkt um kattahald.

7        Vatnsvernd á höfuðborgarsvæðinu

7.1         Fundargerð framkvæmdastjórnar um vatnsvernd

Lögð fram fundargerð framkvæmdastjórnar um vatnsvernd á höfuðborgarsvæðinu frá 24. janúar 2012.

7.2         Tillaga SSH um heildarendurskoðun á vatnsvernd fyrir höfuðborgarsvæðið

Lagðar fram tillögur Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um heildarendurskoðun á vatnsvernd.  Framkvæmdastjórn um vatnsvernd fékk þær til umsagnar frá heilbrigðisnefnd Reykjavíkur.  Tillögunum fylgir m.a. skýrsla ISOR/Árna Hjartarsonar frá janúar 2011.  

 

Eftirfarandi samþykkt var gerð:

 „Heilbrigðisnefnd styður tillögu stjórnar SSH að farið verði í heildarendurskoðun á vatnsvernd fyrir höfuðborgarsvæðið. Endurskoðun á skipulaginu verður að hafa það leiðarljós að tryggja íbúum og atvinnulífi til framtíðar öruggt aðgengi að heilnæmu neysluvatni.  Að mati nefndarinnar þurfa niðurstöður rannsókna og úttekta að liggja til grundvallar nýrri skipulags-tillögu áður en farið er í formlegt skipulagsferli.

 

Heilbrigðisnefnd lýsir stuðningi við þá framkvæmd sem lögð er í skýrslu ISOR og vistun verkefnisins. Einnig óskar heilbrigðisnefndin eftir að gögn er varða rannsóknir og úttektir berist nefndinni eftir því sem slík gögn liggja fyrir.”

7.3         Endurskoðun á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar

Lagt fram bréf Grindavíkurbæjar frá 13. desember 2011 um niðurstöðu  endurskoðunar á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2010-2030. 

 

Lagt fram bréf heilbrigðiseftirlitsins, dags. 3. maí 2011 um athugasemdir við tillögu að skipulaginu og nauðsyn samræmingar á vatnsvernd í skipulagstillögu Grindavíkur og gildandi skipulagi vatnsverndar  á suðurhluta höfuðborgarsvæðisins.  Grindavíkurbær féllst á að verða við ábendingu varðandi þetta atriði. 

 

Einnig var óskað eftir að vatnsvernd yrði aukin til suðurs inn á norðurhluta Kleifarvatns og svæðið þar umhverfis vegna mikils innflæðis grunnvatns þaðan inn á vatnsverndarsvæði höfuðborgarsvæðisins.  Grindarvíkurbær taldi það mikla breytingu og að hún þyrfti að fara í gegnum sérstakan undirbúning.

 

,,Heilbrigðisnefnd beinir því til Hafnarfjarðarbæjar að teknar verði upp viðræður við Grindavikurbæ um stækkun á vatnsverndarsvæðinu til suðurs í tengslum við endurskoðun á svæðisskipulagi vatnsverndar sbr. lið 7.2 í fundargerð þessari.“

7.4         Stjórnunaráætlun fyrir Reykjanesfólkvang

Lagt fram erindi Björns H. Barkarsonar VSÓ ráðgjöf frá 19. janúar 2012 varðandi  kynningu á vinnu við stjórnunaráætlun fyrir Reykjanesfólkvang. Vatnsverndarsvæði höfuðborgarsvæðisins liggur að hluta innan fólkvangsins.

Eftirfarandi samþykkt var gerð:

„ Heilbrigðisnefnd óskar eftir að við vinnslu áætlunarinnar fái Fagridalur umfjöllun sem mögulegt vatnstökusvæði.“

8              Önnur mál

8.1         Úrskurður vegna kæru um að aflífa skuli hund

Lagður farm úrskurður í máli nr. 16/2011, kæra vegna ákvörðunar heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis um að aflífa skuli hundinn Golíat nr. 5126.  Staðfest var ákvörðun heilbrigðisnefndar.

8.2         Samtök heilbrigðiseftirlitssvæða

Lögð fram fundargerð Samtaka heilbrigðiseftirlitssvæða frá 26. janúar 2012.

8.3          

8.4         Reglulegir fundir heilbrigðisnefndar

Reglulegir fundir heilbrigðisnefndar til vors verða 27. febrúar, 19. mars, 23. apríl og 21. maí.

 

 

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:40

 

 

Guðmundur Sigurðsson                                                             Margrét Halldórsdóttir

 

 

Gísli Ó. Valdimarsson                                                                Bryndís Skúladóttir

 

 

Gísli Gíslason                                                                            Jón Bjarni Þorsteinsson

 

 

 

Steingrímur Steingrímsson