HEILBRIGÐISNEFND

HAFNARFJARÐAR- OG KÓPAVOGSSVÆÐIS

158. fundur – 31. janúar 2011

 

Fundargerð

Fundur var haldinn í heilbrigðisnefnd Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, mánudaginn 31. janúar 2011.  Fundarstaður, skrifstofa heilbrigðiseftirlitsins að Garðatorgi 7, Garðabæ.  Fundurinn hófst kl. 17.15. Mættir voru undirritaðir nefndarmenn auk Páls Stefánssonar, heilbrigðisfulltrúa og Guðmundar H. Einarssonar, framkvæmdastjóra, sem ritaði fundargerð. 

 

Fundargerð 157. fundar heilbrigðisnefndar frá 3. desember 2010 lögð fram.

1         Fundargerð 136. starfsmannafundar frá 27. janúar 2011

1.1         Starfsleyfi                     

                                                            Garðabær       

1.1.1        Garðatorg 3,  Garðabæ – tannlæknastofa

Lögð fram umsókn Sigurgísla Ingimarssonar f.h. Skurðtækni ehf., kt. 690403-2850, dags. 26.01.2011, þar sem sótt er um leyfi til reksturs tannlæknastofu  að Garðatorgi 3, Garðabæ.

Yfirtaka á starfsleyfi frá 12.05.2003.

Með vísun til ákvæða hollustuhátta- og mengunarvarnareglugerða erindið samþykkt.

1.1.2        Kauptún 3,  Garðabæ – verslun og veitingastofa

Lögð fram umsókn Lindu Friðriksdóttur f.h. Night 4 ehf., kt. 500306-0920, dags. 27.12.2010, þar sem sótt er um leyfi fyrir verslun og veitingastofu (Asian) að Kauptúni 3, Garðabæ.

Húshluti.: hluti af húshluta J.  Ný starfsemi

Með vísun til ákvæða matvæla- og hollustuháttareglugerða er starfsleyfi samþykkt til 12 ára  með fyrirvara um að starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar.

1.1.3        Lyngás 20,  Garðabæ – bónstöð

Lögð fram umsókn Guðmundar Í. Róbertssonar  f.h. Hel ehf., kt. 700910-0830, dags. 28.12.2010, þar sem sótt er um leyfi fyrir bónstöð (Stjörnubón) að Lyngási 20, Garðabæ.

Húshluti.: 1/3 hluti vestast í kjallara.  Eigendaskipti.

Með vísun til ákvæða mengunarvarnareglugerða er starfsleyfi samþykkt til 12 ára.

1.1.4        Norðurhraun 1,  Garðabæ – múrvöruframleiðsla

Lögð fram umsókn Hólmsteins Hólmsteinssonar  f.h. BM Vallá ehf kt. 450510-0680, dags. 3.12.2010, þar sem sótt er um leyfi fyrir múrvöruframleiðslu að Norðurhrauni 1, Garðabæ.

Húshluti.: allt húsið.  Eigendaskipti.

Með vísun til ákvæða mengunarvarnareglugerða er afgreiðslu frestað þar sem unnið er að úrbótum.

Hafnarfjörður

1.1.5        Álhella 3,  Hafnarfjörður –  verslun, vörugeymsla og smíðaverkstæðir 

Lögð fram umsókn Ástvalds Óskarssonar f.h. Sindrason  ehf., kt. 510697-2009, dags. 8.12.2010, þar sem sótt er um leyfi til reksturs   járnvöruverslunar, vörugeymslu og smíðaverkstæði að Álhellu 3, Hafnarfirði.  Húshluti: 01 0101. Ný starfsemi.

Með vísun til ákvæða mengunarvarnareglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 12 ára  með fyrirvara um að starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar og að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.

1.1.6        Álhella 8,  Hafnarfjörður –  Málmsmiðja 

Lögð fram umsókn Sigurðar E. Einarssonar f.h. Málmsmiðju Ferrum ehf., kt. 460904-3070, dags. 18.11.2010, þar sem sótt er um leyfi til reksturs  málmsmiðju  að Álhellu 8, Hafnarfirði

Húshluti: 01 0102.  Ný starfsemi.

Með vísun til ákvæða mengunarvarnareglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 4 ára með fyrirvara um að starfsemin fái fullnaðarúttekt byggingafulltrúa.

1.1.7        Breiðvangur 42,  Hafnarfjörður – leikskóli

Lögð fram umsókn Lilju K. Steinþórsdóttur f.h. Hafnarfjarðarbæjar, kt. 590169-7579, dags. 14.01.2011, þar sem sótt er um leyfi til reksturs leikskóla að Breiðvangi 42, Hafnarfirði.  Húshluti: 01 0104.  Ný starfsemi.

Með vísun til ákvæða matvæla- og hollustuháttareglugerða er starfsleyfi samþykkt til 12 ára að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.

1.1.8        Flatahraun 5a,  Hafnarfjörður – söluturn og veitingastofa

Lögð fram umsókn Arnar Arnarssonar  f.h. söluturnsins Burger-Inn kt. 650111-0360, dags. 31.01.2011, þar sem sótt er um leyfi til reksturs söluturns og veitingastofu að Flatahrauni 5a, Hafnarfirði.  Eigendaskipti

Með vísun til ákvæða matvæla- og hollustuháttareglugerða er starfsleyfi samþykkt til 12 ára.

1.1.9        Flatahraun 5a,  Hafnarfjörður – tannlæknastofa

Lögð fram umsókn Berglindar Sölku Ólafsdóttur  f.h. Tannlæknastofu Sölku Ólafsdóttur kt. 610905-1530, dags. 16.12.2010, þar sem sótt er um leyfi til reksturs tannlæknastofu  að Flatahrauni 5a, Hafnarfirði.  Húshluti.: 01 0203.  Ný starfsemi.

Með vísun til ákvæða hollustu- og mengunarvarnareglugerða er starfsleyfi samþykkt til 12 ára.

1.1.10     Flatahraun 5a,  Hafnarfjörður – tannlæknastofa

Lögð fram umsókn Sigrúnar Jónsdóttur  f.h. Tannréttinga sf, kt. 520307-2490, dags. 17.12.2010, þar sem sótt er um leyfi til reksturs tannréttingastofu  að Flatahrauni 5a, Hafnarfirði.

Húshluti.: 01 0203.  Ný starfsemi. 

Með vísun til ákvæða hollustu- og mengunarvarnareglugerða er starfsleyfi samþykkt til 12 ára að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.

1.1.11     Kvistavellir 15, Hafnarfjörður  -  orlofshús

Lögð fram umsókn Kolbrúnar Þorleifsdóttur f.h. Guesthouse Kvistur kt. 130261-3969, dags. 23.09.2010, þar sem sótt er um leyfi til reksturs orlofshúss  að Kvistavöllum 15, Hafnarfirði

Ný starfsemi

Með vísun til ákvæða hollustuháttareglugerða er starfsleyfi samþykkt til 12 ára.

1.1.12     Lindarberg 50,  Hafnarfjörður –  innflutningur á efnavöru

Lögð fram umsókn Kristjáns G. Matthíesen  f.h. Kasma ehf  kt. 531106-0400, dags. 30.12.2010, þar sem sótt er um leyfi fyrir netverslun með vistvænni loftsíuolíu  að Lindabergi 50, Hafnarfirði.  Húshluti: bílskúr.  Ný starfsemi.

Með vísun til ákvæða hollustuháttareglugerða er starfsleyfi samþykkt til 4 ára.

1.1.13     Lækjargata 34d,  Hafnarfjörður –  snyrtistofa

Lögð fram umsókn Heimis Péturssonar  f.h. DH föt ehf  kt. 521010-1770, dags. 1.12.2010, þar sem sótt er um leyfi til reksturs snyrtistofu  að Lækjargötu 34, Hafnarfirði.

Húshluti: 04 0101.  Ný starfsemi.

Með vísun til ákvæða hollustuháttareglugerða er starfsleyfi samþykkt til 12 ára að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.

1.1.14     Melabraut 17,  Hafnarfjörður – íþróttasalur 

Lögð fram umsókn Jóhanns Eyvindssonar  f.h. Jiu-Jitsu skóla Íslands. kt. 541100-2020, dags. 11.05.2010, þar sem sótt er um leyfi til reksturs íþróttasalar að Melabraut 17, Hafnarfirði.

Húshluti: efri hæð.  Ný starfsemi.

Fyrir liggur bréf dags. 20.01.2011, þar sem óskað er eftir teikningum af húsnæði.

Með vísun til ákvæða hollustuháttareglugerða er lagt fyrir rekstraraðila að skila inn umbeðinni teikningu og áætlun um úrbætur innan 14 daga að viðlagðir stöðvun starfseminnar.

1.1.15     Rauðhella 1, Hafnarfjörður  -  flutningur úrgangs

Lögð fram umsókn Trausta Finnbogasonar f.h. GT Verktaka ehf., kt. 530301-2570, dags. 20.01.2011, þar sem sótt leyfi fyrir flutningsstarfsemi með úrgang. Hreyfanleg starfsemi. Starfsstöð fyrirtækisins er að Rauðhellu 1,  Hafnarfirði.  Ný starfsemi.

Með vísun til ákvæða mengunarvarnareglugerða er starfsleyfi samþykkt til 12 ára.

1.1.16     Rauðhella 7,  Hafnarfjörður –  vörugeymsla og lagersala

Lögð fram umsókn Alfreðs M. Clausen f.h. A. Clausen Import ehf kt. 601299-7399, dags. 27.12.2010, þar sem sótt er um leyfi til verslunarreksturs /lagersölu   að Rauðhellu 7, Hafnarfirði

Húshluti: 01 0103.  Ný starfsemi.

Fyrirspurn send Matvælastofnun 11.01.2011 varðandi löggjöf um matvæli og þynningarsvæði stóriðjuvera.

Með vísun til ákvæða matvælareglugerðar er afgreiðslu frestað þar sem svar hefur ekki borist frá Matvælastofnun.

1.1.17     Reykjanesbraut, Hraungarðar,  Hafnarfirði  -  geymslusvæði.

Lögð fram að nýju umsókn Ástvalds Óskarssonar, fh. Geymslusvæðisins ehf., kt. 450791-1219, dags. 8.12.2010, þar sem sótt er um leyfi til reksturs geymslusvæðis að Hraungörðum, Hafnarfirði.  Endurnýjun.

Með vísun til ákvæða mengunarvarnareglugerðar er afgreiðslu frestað þar sem úrbótum hefur ekki verið lokið.

1.1.18     Selhella 5, Hafnarfjörður - átöppun á neysluvatni og heildsala       

Lögð fram umsókn Guðmundar Sigurðssonar, f.h Kerfis fyrirtækjaþjónustu ehf, kt. 541210-0400, dags. 10.01.2011, þar sem sótt er um leyfi til átöppunar og dreifingu á vatni í neytendaumbúðir og heildverslunar með matvörur og hreinlætisvörur að Selhellu 5, Hafnarfirði.

Húshluti: 01 0101.  Eigendaskipti.

Með vísun til ákvæða matvælareglugerða er starfsleyfi samþykkt til 12 ára með fyrirvara um að starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar og að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.

 

Guðmundur Sigurðsson vék af fundi við afgreiðslu þessa liðar.

1.1.19     Suðurstrandarvegur, Hafnarfjörður  -  námuvinnsla

Lögð fram umsókn Dofra Eysteinssonar  f.h. Suðurverks hf  kt. 520885-0219, dags. 06.12.2010, þar sem sótt er um leyfi til námureksturs, námu 7, í tengslum við gerð Suðurstrandarvegar.  Tímabundin starfsemi.

Með vísun til ákvæða mengunarvarnareglugerða er samþykkt starfsleyfi.

Kópavogur

1.1.20     Álfhólsvegur 32, Kópavogur-  niðurrif

Lögð fram umsókn Jóhannesar Ellertssonar  f.h Haffrúar ehf., kt. 530607-0700, dags. 3.01.2011, þar sem sótt er um tímabundið leyfi til niðurrifs á mannvirkjum að Álfhólsvegi 32, Kópavogi.

Tímabundnu starfsleyfi skv. ákvæðum mengunarvarnareglugerða staðfest.

1.1.21     Borgarholtsbraut 51, Kópavogur  -  sambýli

Lögð fram umsókn Félagsþjónustu Kópavogs kt. 700169-3759, dags. 20.01.2011, þar sem sótt er um leyfi til reksturs sambýlis að Borgarholtsbraut 51, Kópavogi. Húshluti: 01 0101.

Endurnýjun og eigendaskipti

Með vísun til ákvæða matvæla- og hollustuháttareglugerða er starfsleyfi samþykkt til 2 ára.   

1.1.22     Dalvegur 18, Kópavogur  -  hæfingarstöð

Lögð fram umsókn Félagsþjónustu Kópavogs kt. 700169-3759, dags. 20.01.2011, þar sem sótt er um leyfi til reksturs hæfingarstöðvar að Dalvegi 18, Kópavogi.  Yfirtaka á starfsleyfi frá 20.01.2005. 

Með vísun til ákvæða matvæla- og hollustuháttareglugerða er erindið samþykkt.   

1.1.23     Dimmuhvarf 2, Kópavogur  -  sambýli

Lögð fram umsókn Félagsþjónustu Kópavogs kt. 700169-3759, dags. 20.01.2011, þar sem sótt er um leyfi til reksturs sambýlis að Dimmuhvarfi 2, Kópavogi.  Húshluti: 01 0101.

Yfirtaka á starfsleyfi frá 4.10.2004.

Með vísun til ákvæða matvæla- og hollustuháttareglugerða er erindið samþykkt.   

1.1.24     Fannborg 6, Kópavogur  -  hæfingarstöð

Lögð fram umsókn Félagsþjónustu Kópavogs kt. 700169-3759, dags. 20.01.2011, þar sem sótt er um yfirtöku reksturs hæfingarstöðvar að Fannborg 6, Kópavogi. Yfirtaka á starfsleyfi frá 27.09.2010.

Með vísun til ákvæða matvæla- og hollustuháttareglugerða er erindið samþykkt.   

1.1.25     Hlíðasmári 2, Kópavogur  -  osteópatíu – stofa

Lögð fram umsókn Fríðu Daggar Hauksdóttur f.h. Liðleika ehf., kt. 580703-2830, dags. 13.12.2010, þar sem sótt er um leyfi til reksturs osteópatía -stofu að Hlíðasmára 2, Kópavogi.   Húshluti: 3. hæð.  Ný starfsemi.

Með vísun til ákvæða hollustuháttareglugerða er starfsleyfi samþykkt til 12 ára.   

1.1.26     Hrauntunga 54, Kópavogur  -  sambýli

Lögð fram umsókn Félagsþjónustu Kópavogs kt. 700169-3759, dags. 20.01.2011, þar sem sótt er um leyfi til reksturs sambýlis að Hrauntungu 54, Kópavogi.  Húshluti: 01 0101.  Eigendaskipti.

Með vísun til ákvæða matvæla- og hollustuháttareglugerða er starfsleyfi samþykkt til 12 ára að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.  

1.1.27     Kársnesbraut 110, Kópavogur  -  starfsþjálfun

Lögð fram umsókn Félagsþjónustu Kópavogs f.h. Örva verndað vinnustaðar, kt. 700169-3759, dags. 20.01.2011, þar sem sótt er um leyfi til reksturs starfsþjálfunar vinnustaðar fyrir fatlað fólk að Kársnesbraut 110, Kópavogi. Húshluti: 01 0101.  Ný starfsemi.

Með vísun til ákvæða hollustuháttareglugerða er starfsleyfi samþykkt til 12 ára.   

1.1.28     Marbakkabraut 14, Kópavogur  -  sambýli

Lögð fram umsókn Félagsþjónustu Kópavogs kt. 700169-3759, dags. 20.01.2011, þar sem sótt er um leyfi til reksturs sambýlis að Marbakkabraut 14, Kópavogi. Húshluti: 01 0101

Yfirtaka á starfsleyfi frá 4.10.2010.

Með vísun til ákvæða matvæla- og hollustuháttareglugerða er erindið samþykkt.   

1.1.29     Vallargerði 26, Kópavogur  -  sambýli

Lögð fram umsókn Félagsþjónustu Kópavogs kt. 700169-3759, dags. 20.01.2011, þar sem sótt er um leyfi til reksturs sambýlis að Vallargerði 26, Kópavogi.  Húshluti: 01 0101

Yfirtaka á starfsleyfi frá 4.10.2004.

Með vísun til ákvæða matvæla- og hollustuháttareglugerða er starfsleyfi samþykkt að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.   

1.1.30     Smiðjuvegur 62, Kópavogur  -  verslun með vörur sem innihalda hættuleg efni og eiturefni

Lögð fram umsókn Karls Óskars Þráinssonar  f.h. Ræstingaþjónustan ehf kt. 410295-2109, dags. 28.01.2011, þar sem sótt er um leyfi til sölu sóttvarna- og hreingerningaefna ásamt rekstri þvottahúss, að Smiðjuvegi 62, Kópavogi.  Húshluti: 01 0101.  Ný starfsemi

Með vísun til ákvæða mengunarvarnareglugerða er starfsleyfi samþykkt til 12 ára með fyrirvara um að starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar.

1.2         Umsagnir          

Álftanes

1.2.1        Álftanes, brennuleyfi

Lagt fram bréf Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu dags. 20.12.2010 þar sem óskað er umsagnar um umsókn Lárusar Ara Knútssonar f.h. Sveitafélagsins Álftanes kt. 440169-6869,  þar sem sótt er um leyfi fyrir áramótabrennu á bökkunum norðan við Gesthús (sama staðsetning og undanfarin ár),  kl. 20.30 þann 31. desember 2010.

Jákvæð umsögn staðfest.

1.2.2        Breiðamýri, Álftanesi, Álftanesi, -  tækifærisleyfi

Lagt fram bréf sýslumannsins í Hafnarfirði dags 3.01.2011, þar sem óskað er umsagnar á umsókn Gunnars Vals Gíslasonar , f.h. Lionsklúbbs Álftaness  kt. 690385-0669,   þar sem sótt er um leyfi til að halda þorrablót þann 22.01.2011 í Íþróttamiðstöð Álftaness.

Óskað er eftir leyfi fyrir 300 manna samkomu frá kl. 19.00 – 04.00

Jákvæð umsögn staðfest.

Garðabær

1.2.3        Sjávargrund, Garðabæ - brennuleyfi

Lagt fram bréf Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu dags. 14.12.2010, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Jóhanns Inga Jóhannssonar, f.h. Knattspyrnudeildar Stjörnunnar  kt. 580589-1389 þar sem sótt er um leyfi fyrir áramótabrennu við Sjávargrund í Garðabæ,  (sama staðsetning og undanfarin ár) kl. 21.00 þann 31. desember 2010.

Jákvæð umsögn staðfest.

1.2.4        Skólabraut, Garðabæ - tækifærisleyfi

Lagt fram bréf sýslumannsins í Hafnarfirði dags 20.12.2010, þar sem óskað er umsagnar á umsókn Sigurðar Guðmundssonar , f.h. Knattspyrnudeildar Stjörnunnar  kt. 580589-1389,   þar sem sótt er um leyfi til að halda þorrablót þann 21.01.2011 í íþróttahúsinu Mýrinni, Garðabæ. Óskað er eftir leyfi fyrir 1200 manna samkomu frá kl. 19.00 – 03.00

Jákvæð umsögn staðfest.

Hafnarfjörður

1.2.5        Ásvellir, Hafnarfjörður, flugeldasýning

Lagt fram bréf Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu dags. 28.12.2010 þar sem óskað er umsagnar um umsókn Dagbjartar Kr. Brynjarssonar, f.h. Björgunarsveitar Hafnarfjarðar  kt. 410200-3170,  þar sem sótt er um leyfi til flugeldasýningar við Ásvelli, Hafnarfirði, kl. 19.00 þann 6. janúar 2011.

Jákvæð umsögn staðfest.

1.2.6        Ásvellir, Hafnarfjörður - tækifærisleyfi

Lagt fram bréf sýslumannsins í Hafnarfirði dags 20.01.2011, þar sem óskað er umsagnar á umsókn Heimis Heimissonar, f.h. Knattspyrnufélagsins Hauka   kt. 101160-5649,   þar sem sótt er um leyfi til að halda þorrablót þann 29.01.2011 í Íþróttamiðstöðinni Ásvöllum, Hafnarfirði. Óskað er eftir leyfi fyrir 400 manna samkomu frá kl. 19.00 – 03.00.

Jákvæð umsögn staðfest.

1.2.7        Flatahraun 5a, Hafnarfjörður - rekstrarleyfi

Lagt fram bréf sýslumannsins í Hafnarfirði dags 30.01.2011, þar sem óskað er umsagnar á umsókn Arnar Arnarssonar, f.h. Burger-Inn   kt. 650111-0360,   þar sem sótt er um rekstarleyfi í flokki II fyrir veitingastaðinn Burger-Inn, Flatahrauni 5a, Hafnarfirði.

Jákvæð umsögn samþykkt

1.2.8        Hafnarfjarðarhöfn, Hafnarfjörður, flugeldasýning

Lagt fram bréf Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu dags. 20.12.2010, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Dagbjartar Kr. Brynjarssonar, f.h. Björgunarsveitar Hafnarfjarðar  kt. 410200-3170,  þar sem sótt er um leyfi til flugeldasýningar við höfnina í Hafnarfirði, kl. 20.30 þann 29. desember 2010.

Jákvæð umsögn staðfest.

1.2.9        Tjarnarvellir, Hafnarfjörður - brennuleyfi

Lagt fram bréf Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu,  dags. 17.12.2010, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Geirs Garðarssonar, f.h. Knattspyrnufélagsins Hauka  kt. 600169-0419,   þar sem sótt er um leyfi fyrir áramótabrennu við Tjarnarvelli 7, Hafnarfirði (sama staðsetning og undanfarin ár), kl. 20.00 þann 31. desember 2010.

Jákvæð umsögn staðfest.

Kópavogur

1.2.10     Gulaþing, Kópavogur, brennuleyfi

Lagt fram bréf Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu dags. 16.12.2010, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Árna Þórs Árnasonar kt. 240366-5179,  þar sem sótt er um leyfi fyrir áramótabrennu í Þinghverfi fyrir ofan Gulaþing,  kl. 20.30 þann 31. desember 2010.

Jákvæð umsögn staðfest.

1.2.11     Smárahvammur, Kópavogur - brennuleyfi

Lagt fram bréf Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu dags. 13.12.2010, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Kristjáns Jónatanssonar f.h. Breiðabliks  kt. 480169-0699, þar sem sótt er um leyfi til áramótabrennu á brennusvæði við Smárahvamm (sama staðsetning og undanfarin ár),  kl. 20.30 þann 31. desember 2010.

Jákvæð umsögn staðfest.

1.2.12     Smárahvammur, Kópavogur - flugeldasýning

Lagt fram bréf Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu dags. 21.12.2010  þar sem óskað er umsagnar á umsókn Karls Emils Jónssonar, f.h. Hjálparsveitar skáta Kópavogi  kt. 410271-0289,  þar sem sótt er um leyfi til flugeldasýningar við áramótabrennu við brennusvæði hjá Smárahvammi, kl. 21.05 þann 31. desember 2010.

Jákvæð umsögn staðfest.

1.2.13     Furugrund, Kópavogur, flugeldasýning

Lagt fram bréf Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu dags. 4.01.2011, þar sem óskað er umsagnar á umsókn Valsteins Stefánssonar, f.h. Handknattleiksfélags Kópavogs  kt. 630981-0269,  þar sem sótt er um leyfi til flugeldasýningar við áramótafagnað  við Furugrund 83, kl. 18.00 þann 6. janúar 2011.

Jákvæð umsögn staðfest.

1.2.14     Dalvegur 10 – 12 Kópavogur – sala eiturefna

Lagt fram bréf Umhverfisstofnunar dags. 10.12.2010, þar sem óskað er umsagnar á umsókn  N1 ehf  kt. 540206-2010,  dags. 10.12.2010, þar sem sótt er um leyfi til sölu eiturefna í hættuflokki T og Tx. Um er að ræða metanól sem á að selja til iðnaðarframleiðslu.

Umsögn staðfest.

1.3         Tóbaksleyfi

1.3.1        Flatahraun 5a, Hafnarfjörður  -  Burger-Inn

Lögð fram umsókn Burger-Inn. kt. 650111-0360, dags. 31.01.2011, þar sem sótt er um  tóbaksleyfi í söluturni að Flatahrauni 5a, Hafnarfirði.

Samþykkt að veita umbeðið leyfi en heilbrigðisnefnd vekur athygli á að eftirlit verður aukið vegna kvartana almennt í umdæminu um sölu til unglinga yngri en 18 ára.

1.3.2        Lækjargata 46, Hafnarfjörður  -  N1 þjónustustöð

Lögð fram umsókn N1 hf. kt. 540206-2010, dags. 24.01.2011, þar sem sótt er um  endurnýjun á leyfi til tóbakssölu í þjónustustöð N1 að Lækjargötu 46, Hafnarfirði.

Samþykkt að veita umbeðið leyfi en heilbrigðisnefnd vekur athygli á að eftirlit verður aukið vegna kvartana almennt í umdæminu um sölu til unglinga yngri en 18 ára.

1.3.3        Reykjavíkurvegur 54, Hafnarfjörður  -  N1 þjónustustöð

Lögð fram umsókn N1 hf. kt. 540206-2010, dags. 24.01.2011, þar sem sótt er um  endurnýjun á leyfi til tóbakssölu í þjónustustöð N1 að Reykjavíkurvegi 54, Hafnarfirði.

Samþykkt að veita umbeðið leyfi en heilbrigðisnefnd vekur athygli á að eftirlit verður aukið vegna kvartana almennt í umdæminu um sölu til unglinga yngri en 18 ára.

1.3.4        Stórihjalli 2, Kópavogur  -  N1 þjónustustöð

Lögð fram umsókn N1 hf. kt. 540206-2010, dags. 24.01.2011, þar sem sótt er um  endurnýjun á leyfi til tóbakssölu í þjónustustöð N1 að Stórahjalla 2, Kópavogi.

Samþykkt að veita umbeðið leyfi en heilbrigðisnefnd vekur athygli á að eftirlit verður aukið vegna kvartana almennt í umdæminu um sölu til unglinga yngri en 18 ára.

2         Athugasemdir við framkvæmd matvælaeftirlits

Lagt fram afrit af erindi Markarinnar lögmannsstofu hf. dags. 17. desember 2010 til Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis.  Í erindinu er fundið að eftirliti með matvælum á neytendavörumarkaði og eftirfylgni með lögum einkum á starfssvæði heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis.

Eftirfarandi samþykkt var gerð:

“Heilbrigðisnefnd telur í ljósi kvartana og niðurstaðna úr eftirliti að auka beri eftirlit og eftirfylgni varðandi vörumerkingar í matvöruverslunum í umdæminu.  Með vísun til markmiða I. kafla laga um matvæli nr. 93/1995, með síðari breytingum, leggur heilbrigðisnefnd áherslu á að  eftirlit með þessum þætti verði sem fyrst eflt og með viðbótareftirlit sbr. ákvæði 25. gr. laganna þar sem þörf krefur.  Að mati nefndarinnar verður að tryggja að neytendur fá bæði réttar og fullnægjandi upplýsingar og að ekki verði beitt blekkingum í vörumerkingum.”

3         Meint sala á tóbaki til unglinga

Farið yfir framkvæmd eftirlits með tóbakssölu og kvartanir árið 2010. Lagðar fram niðurstöður úr könnunum forvarnarnefndar Hafnarfjarðar á sölu tóbaks til unglinga.  Í könnun sem fram fór þann 30. september 2010 voru 18 útsölustaðir kannaðir.  Fram kom í könnuninni að tóbakssala til unglings átti sér stað í 6 tilvikum.

Eftirfarandi samþykkt var gerð:

Heilbrigðisnefnd telur í ljósi kvartana undanfarin misseri að auka beri eftirlit með tóbakssölu frá því sem verið hefur.

4         Skipulagsmál

Lagt fram erindi Skipulags- og umhverfissviðs Kópavogs frá 24. janúar 2010 varðandi Lækjarbotnaland 53, Kópavogi.  Endurskoðun aðalskipulags og áformuð uppbygging m.a. með tillit til vatnsverndar.

Samþykkt að kynna erindið fyrir framkvæmdastjórn um vatnsvernd á höfuðborgarsvæðinu.

5         Starfsemin á árinu 2010

Farið yfir helstu mál í starfseminni 2010 og drög að árskýrslu fyrir liðið starfsár.

6         Samningur um framsal eftirlits milli Umhverfisstofnunar og heilbrigðisnefndar

Lagt fram að nýju erindi Umhverfisstofnunar dags. 24. nóvember 2010 þar sem Umhverfisstofnun tilkynnir að uppsögn samnings um framsal eftirlits framlengist um eitt ár, þ.e. til 1. janúar 2012.

Ennfremur lagt fram afrit af erindi Umhverfisráðuneytisins frá 7. júlí 2010 þar sem fram kemur að ráðuneytið taki undir það að færa eigi eftirlit frá Umhverfisstofnun til heilbrigðisnefnda þegar slíkt hefur í för með sér aukna hagkvæmni i eftirliti, þar sem hlutaðeigandi heilbrigðisnefnd hefur óskað eftir því og þegar það tryggir fullnægjandi fagþekkingu varðandi umhverfiseftirlit með umræddri starfsemi.

 

Núgildandi samningur tekur til eins fyrirtækis af sjö sem heilbrigðisnefnd telur eðlilegt að eftirliti sé sinnt í nær umhverfi.

 

Eftirfarandi samþykkt var gerð:

“Heilbrigðisnefnd ítrekar vilja til að ganga til samninga við Umhverfisstofnun um eftirlit samkvæmt lögum nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og lögum nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir.”

7         Önnur mál

7.1         Hvaleyrarbraut 2, kvörtun

Lagt fram til kynningar erindi umráðamanns hluta húseignar að Hvaleyrarbraut 2 í Hafnarfirði frá 22. desember 2010 varðandi athugasemdir vegna starfsleyfis til Hagbarða ehf. að Hvaleyrarbraut 2 í Hafnarfirði.

Ljóst er að umgengni þarf að bæta á svæðinu og sérstaklega um lóðir Óseyrarbrautar 1 og Óseyrarbrautar 1B.

7.2         Smiðjuvegur 68 - 72, Kópavogur - leiga á íbúarhúsnæði sbr. húsaleigulög og umsókn um rekstur gististaðar

7.2.1        Smiðjuvegur 68 – 72, Kópavogur - Mál nr. 007-2010-7751

Lagt fram erindi Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu dags. 14. janúar 2011 þar sem tilkynnt er um að ekki sé ástæða til að halda áfram rannsókn á kæru heilbrigðiseftirlitsins frá 25. nóvember 2010 um rekstur gististaðar.

Heilbrigðisnefnd telur niðurstöðu lögreglustjóra hafa verulegt fordæmisgildi og beinir því til bæjarráðs að kanna málið nánar.

7.2.2        Smiðjuvegur 68 - 72, Kópavogur – gistiskáli, rekstrarleyfi

Lagt fram bréf sýslumannsins í Kópavogi dags. 27.1.2011, þar sem óskað er umsagnar á umsókn Blesugrófar ehf., kt. 560605 1100, Smiðjuvegi 68-72, Kópavogi um rekstrarleyfi samkvæmt lögum nr. 85/2007 til reksturs gistiskála í flokki 2, Blesugróf-Icelandguesthouse, að Smiðjuvegi 68-72, Kópavogi.

Erindinu frestað þar sem starfsleyfi liggur ekki fyrir.

7.2.3        Smiðjuvegur 68 -  72, Kópavogur – gistiskáli, starfsleyfi

Lögð fram umsókn Svavars Guðmundssonar f.h. Blesugrófar ehf. kt.560605 1100, dags. 27.01.2011, þar sem sótt er um leyfi til reksturs gistiskála, að Smiðjuvegi 68 - 72, Kópavogi.  Húshluti: 01 0101.  Ný starfsemi.  Umsókn fylgja teikningar þar sem gert er ráð fyrir handlaugum í gistiherbergjum en ekki verður á þeim séð á hvern hátt sorpmálum verður fyrir komið.

Afgreiðslu frestað og óskað  umsagnar skipulags- og byggingaryfirvalda í Kópavogi um hvort boðuð starfsemi samræmist skipulagi.  Ennfremur hvort framlagðar teikningar hafi fengið afgreiðslu og húsnæðið verið tekið út í samræmi við þær.

.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 19:00

 

 

Guðmundur Sigurðsson                                                             Margrét Halldórsdóttir

 

 

Jón Bjarni Þorsteinsson                                                            Gísli Ó. Valdimarsson  

 

 

Sunna Björg Helgadóttir                                                                        Gísli Gíslason

 

 

 

Steingrímur Steingrímsson