HEILBRIGÐISNEFND
HAFNARFJARÐAR- OG KÓPAVOGSSVÆÐIS
147. fundur – 1. mars 2010
Fundargerð
Fundur var haldinn í heilbrigðisnefnd Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, mánudaginn 1. mars 2010, og hófst hann kl. 17.15 að Garðatorgi 7, Garðabæ . Mættir voru undirritaðir nefndarmenn auk Guðmundar H. Einarssonar, framkvæmdastjóra, sem ritaði fundargerð.
Gestur Pétursson boðaði forföll og í hans stað mætti Guðrún Þóra Magnúsdóttir.
Eftirfarandi mál voru tekin fyrir samkvæmt dagskrá:
Samþykkt
Garðabær
Lögð fram umsókn Guðjóns Gunnarssonar f.h. ISS ehf., kt. 460999-2439,
dags. 19.02.2009, þar sem sótt er um leyfi til reksturs starfsstöðvar vegna
ræstinga að Austurhrauni 7, Garðabæ. Starfsstöðinni tilheyrir m.a. rekstur
eigin þvottahúss. Húshluti: 01 0101.
Ný starfsemi
Með vísun til ákvæða
mengunarvarnareglugerða er starfsleyfi samþykkt til 12 ára með fyrirvara um að
starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar og að lokinni úttekt
heilbrigðisfulltrúi.
Lögð fram umsókn Hjördísar Guðmundsdóttur, kt. 021256-5449, dags. 26.01.2010, þar sem sótt er um leyfi fyrir nuddstofu að Faxatúni 24, Garðabæ. Húshluti: forstofuherbergi
Ný starfsemi
Með vísun til ákvæða
hollustuháttarreglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 12 ára.
Lögð fram umsókn
Sverris Friðbjörnssonar, f.h. Íslandspósts hf., kt.701296-6139, dags.
27.01.2010, þar sem sótt er um leyfi til sölu á innpökkuðu sælgæti í pósthúsinu
að Litlatúni 3, Garðabæ. Ný starfsemi.
Með vísun til ákvæða
matvælareglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 12 ára.
Lögð fram umsókn Bjarna Guðmundssonar f.h. Topplausna ehf., kt. 680408-0840, dags. 24.02.2010, þar sem sótt er um leyfi til reksturs verslunar með efnavöru að Lyngási 8, Garðabæ. Húshluti: 01 0201. Ný starfsemi.
Með vísun
til ákvæða mengunarvarnareglugerða er starfsleyfi samþykkt til 12 ára með
fyrirvara um að starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar.
Hafnarfjörður
Lögð fram að nýju umsókn Magnúsar Karlssonar, f.h. Bergplasts ehf., kt. 430596-2339, dags. 2.03.2009, þar sem sótt er um leyfi til plastvinnslu að Breiðhellu 2, Hafnarfirði. Ný starfsemi.
Á fundi heilbrigðisnefndar þann 31.08.2009 var samþykkt, með vísun til ákvæða mengunarvarnareglugerða, að auglýsa tillögu að starfsleyfi til 12 ára.
Kynning fór fram dagana 19.12.2009 til 18.01.2010, engar athugasemdir bárust.
Með vísun til
ákvæða mengunarvarnareglugerða er starfsleyfi samþykkt til 12 ára að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.
Lögð fram umsókn Hafdísar Jónsdóttur f.h. Lauga ehf., kt. 631098-2079, dags. 23.02.2010, þar sem sótt er um leyfi til reksturs líkamsræktarstöðvar að Dalshrauni 1, Hafnarfirði.
Eigendaskipti
Með vísun til
ákvæða hollustuháttareglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 12 ára með fyrirvara um að starfsemin sé í
samræmi við samþykkta notkun fasteignar og að lokinni úttekt
heilbrigðisfulltrúa.
Lögð fram umsókn Hjördísar Arnbjörnsdóttur kt. 061166-3199, dags.
22.02.2010, þar sem sótt er um leyfi fyrir daggæslu fyrir allt að 10 börn, á
miðhæð í raðhúsi að Drekavöllum 36, Hafnarfirði. Ný starfsemi.
Með vísun til ákvæða matvæla- og
hollustuháttareglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 12 ára með fyrirvara um að
starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar
Lögð fram umsókn Freyju Kjartansdóttur kt. 220377-2969, dags. 15.02.2010, þar sem sótt er um leyfi fyrir húðflúrstofu að Fífuvöllum 11, Hafnarfirði.
Ný starfsemi
Með vísun til
ákvæða hollustuháttareglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 12 ára með skilyrðum
um fullnægjandi aðgreiningu starfseminnar frá íbúðarhúsnæði, fyrirvara um að
starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar og að lokinni úttekt
heilbrigðisfulltrúa.
Lögð fram umsókn Sverris Friðbjörnssonar, f.h.
Íslandspósts hf., kt.701296-6139, dags. 27.01.2010, þar sem sótt er um leyfi
til sölu á innpökkuðu sælgæti í pósthúsinu að Fjarðargötu 13-15, Hafnarfirði. Ný starfsemi.
Með vísun til ákvæða matvælareglugerðar er starfsleyfi
samþykkt til 12 ára með fyrirvara um að starfsemin sé í samræmi við samþykkta
notkun fasteignar og að lokinn úttekt heilbrigðisfulltrúa.
Lögð fram umsókn Stefáns Hjaltasonar f.h. Særótar ehf., kt. 480197-2249, dags. 16.02.2010, þar sem sótt er um leyfi til reksturs almennrar fiskvinnslu að Gjáhellu 1, Hafnarfirði.
Húshluti: allt húsið. Ný starfsemi
Með vísun til
ákvæða mengunarvarnareglugerða er starfsleyfi samþykkt til 12 ára með fyrirvara um að starfsemin sé í
samræmi við samþykkta notkun fasteignar.
Lögð fram umsókn Jóhannesar Helgasonar f.h. Húsgagnasprautunar Jóhannesar, kt. 100957-7369, dags. 28.01.2010, þar sem sótt er um leyfi til reksturs trésmiðju með sprautulökkun að Gjótuhraun 6, Hafnarfirði. Endurnýjun
Með vísun til ákvæða mengunarvarnareglugerða er starfsleyfi samþykkt til 12 ára með fyrirvara um að starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar.
Lögð fram umsókn Flosa Karlssonar, kt.
260360-4859, dags. 25. febrúar 2010 þar sem sótt er um leyfi til reksturs
læknastofu að Háahvammi 13 í Hafnarfirði.
Húshluti; Forstofuherbergi í íbúðarhúsi.
Ný starfsemi.
Með vísun til ákvæða hollustuháttareglugerðar er
starfsleyfi samþykkt til 12 ára með fyrirvara um að starfsemin sé í samræmi við
samþykkta notkun fasteignar
Lögð fram umsókn Finnboga Ómarssonar f.h. SBA – Norðurleiðar hf., kt. 690190-1259, dags. 09.02.2010, þar sem sótt er um leyfi til reksturs bifreiða- og vélaverkstæðis ásamt þvottaaðstöðu fyrir fólksflutningabíla. Húshluti: hluti af 04 0101. Ný starfsemi.
Með vísun til ákvæða mengunarvarnareglugerða er starfsleyfi samþykkt til 12 ára með skilyrðum um að komið verði fyrir mengunarvarnabúnaði á fráveitu, fyrirvara um að starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar og að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.
Lögð fram umsókn Auðuns Óskarssonar f.h. Trefja ehf, kt. 420178-0269, dags. 09.02.2010, þar sem sótt er um leyfi til vinnslu úr trefjaplasti við Hjallahraun 2, Hafnarfirði.
Húshluti: 02 0101. Endurnýjun.
Með vísun til ákvæða mengunarvarnareglugerða er starfsleyfi samþykkt til 12 ára með fyrirvara um að starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar.
Lögð fram að nýju umsókn Eiríks Orms Víglundssonar f.h. Vélsmiðju Orms og Víglundar ehf., kt. 480998-2789, dags. 25.08.2009, þar sem sótt er um leyfi til skipaviðgerða við Hvaleyrarbakka, Hafnarfirði í tveimur flotkvíum. Ný starfsemi
Á fundi heilbrigðisnefndar þann 31.08.2009 var samþykkt, með vísun til ákvæða mengunarvarnareglugerða, að auglýsa tillögu að starfsleyfi til 12 ára.
Kynning fór fram 29.9 til 28.10.2009.
Lögð fram umsögn Hafnarstjórnar dags. 7.10.2009. Fyrirliggur að deiliskipulagi hafnarsvæðis í
kringum flotkvíar er ekki lokið.
Með vísun til ákvæða mengunarvarnareglugerða er starfsleyfi
samþykkt til 12 ára með ákvæði til bráðabirgða um að greinar 1.3, 1.5, 1.6, 1.7
og 2.1 í starfsleyfi taki ekki gildi fyrr en 6 mánuðum eftir staðfestingu
deiliskipulags en þó ekki síðar en við næstu reglugerðarbundnu endurskoðun á
starfsleyfi.
Lögð fram að nýju umsókn Gunnars Valdimarssonar f.h. Hagbarða ehf., kt. 700401 3080 dags. 23.11.2009, þar sem sótt er um leyfi til reksturs þjónustustöðvar fyrir eigendur bíla að Hvaleyrarbraut 2, Hafnarfirði. Húshluti: 01 010(03-04). Ný starfsemi.
Með vísun til ákvæða mengunarvarnareglugerða er mælt starfsleyfis til 12 ára.
Lögð fram umsókn Sigríðar Ágústsdóttur, kt. 261157-5279, dags. 23.02.2010, þar sem sótt er um leyfi til reksturs gistiheimili án veitingasölu að Hverfisgötu 62, Hafnarfirði. Húshluti: allt húsið. Ný starfsemi
Með vísun til ákvæða hollustuháttareglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 12 ára með fyrirvara um að starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar.
Lögð fram umsókn Domingos Tavares Ferreira f.h. Domitafer ehf., kt. 460709-0400, dags. 27.01.2010, þar sem sótt er um leyfi til reksturs pylsuvagns að Kaplahrauni 2-4, Hafnarfirði.
Ný starfsemi
Umsækjandi lagði fram afrit af tímabundnu stöðuleyfi byggingafulltrúa fyrir matvagninn, dagsett 11.2.2010.
Afgreiðslu er frestað
þar sem handþvottaaðstaða er ekki fullnægjandi.
Lögð fram að nýju umsókn Þórarins Sverrissonar, f.h. BTC ehf kt. 440703-2750, dags. 28.04.2009, þar sem sótt er um leyfi til reksturs bílapartasölu, niðurrifs á bílum og sölu á varahlutum að Kaplahrauni 9, Hafnarfirði. Húshluti: 01 0101 syðri hluti. Ný starfsemi.
Á fundi
heilbrigðisnefndar þann 4.5.2009 var samþykkt, með vísun til ákvæða
mengunarvarnareglugerðar, að auglýsa tillögu að starfsleyfi til 12 ára. Fyrirvari var um að olíugildru yrði komið
fyrir á fráveitu. Kynning
fór fram 29.9 til 28.10.2009.
Athugasemdir bárust (dags. 14.10.2009) frá
fyrirtækjunum; Fasteignafélaginu Dal ehf. og GT Verktökum ehf. sem eru eigendur
og/eða leigjendur að hluta Kaplahrauns 9.
Lagt fram bréf umsækjanda dagsett 22.2.2010 vegna
framkominna athugasemda.
Lagt fram bréf frá eiganda húsnæðis umsækjanda, dags.
23.2.2010 þar sem fram kemur að olíugildru verður komið fyrir.
Með vísun til ákvæða mengunarvarnareglugerða er starfsleyfi
samþykkt til 2 ára með fyrirvara um að starfsemin sé í samræmi við samþykkta
notkun fasteignar og að skilyrðum er fram koma í starfsleyfi verði fullnægt á
tímabilinu.
Lögð fram að nýju umsókn Reynis S. Markússonar f.h. Parta ehf., kt. 650703-2430, dags. 3.11.2009, þar sem sótt er um leyfi til reksturs bílapartasölu að Kaplahrauni 11, Hafnarfirði.
Húshluti: 01 01 (01 og 02). Endurnýjun.
Á fundi heilbrigðisnefndar þann 31.08.2009 var samþykkt, með vísun til ákvæða mengunarvarnareglugerða, að auglýsa tillögu að starfsleyfi til 12 ára.
Kynning fór fram dagana 19.12.2009 til 18.01.2010, engar athugasemdir
bárust.
Með vísun til
ákvæða mengunarvarnareglugerða er starfsleyfi samþykkt til 12 ára.
Lögð fram umsókn Valdísar B. Guðjónsdóttur f.h. Mál og tal, áhugamannafélags, kt. 601000-2960, dags. 16.02.2010, þar sem sótt er um leyfi til reksturs talþjálfunarstofu að Melabraut 29, Hafnarfirði. Húshluti: 01 0103. Ný starfsemi.
Með vísun til ákvæða hollustuháttareglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 12 ára með fyrirvara um að starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar og að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.
Lögð fram umsókn Halldórs Ö. Kristjánssonar f.h. Prótín punktur is slf., kt. 590210-1100, dags. 22.02.2010, þar sem sótt er um leyfi til reksturs netverslunar með fæðubótaefni og tengdar vörur að Lónsbraut 6, Hafnarfirði. Húshluti: 01 23. Ný starfsemi.
Með vísun til ákvæða matvælareglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 12 ára með fyrirvara um að starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar og að lokinni úttekt.
Lögð fram umsókn Finns Inga Hermannssonar f.h. Brettasmiðjunnar ehf, kt. 641109-1850, dags. 3.02.2010, þar sem sótt er um leyfi til reksturs trésmíðaverkstæðis að Óseyrarbraut 1, Hafnarfirði. Húshluti: 01 0101. Ný starfsemi.
Með vísun til ákvæða mengunarvarnareglugerða er starfsleyfi samþykkt til 12 ára með fyrirvara um að starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar.
Lögð fram umsókn Atla Más Bjarnasonar, f.h Nordic Water, kt. 641008-0440, dags. 12.02.2010, þar sem sótt er um leyfi til átöppunar og dreifingu á vatni og bragðbreytingu að Selhellu 5, Hafnarfirði. Ný starfsemi.
Fyrir liggur skýrsla dags. 12.2.2010 vegna
undirbúnings starfsleyfis.
Með vísun til ákvæða matvælareglugerða er starfsleyfi samþykkt til 12 ára með fyrirvara um að starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar og að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.
Lögð fram umsókn Bjarna Más Bjarnasonar, f.h Kerfis fyrirtækjaþjónustu ehf, kt. 510708-1210, dags. 15.01.2010, þar sem sótt er um leyfi til átöppunar og dreifingu á vatni í neytendaumbúðir og heildverslunar með matvörur og hreinlætisvörur að Selhellu 5, Hafnarfirði. Ný starfsemi.
Með vísun til ákvæða matvæla- og hollustuháttareglugerða er starfsleyfi samþykkt til 12 ára með fyrirvara um að starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar og að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.
Lögð fram umsókn Inga Gunnlaugssonar f.h. Tannlæknastofa Inga Gunnlaugssonar, kt. 190554-3339, dags. 10.02.2010, þar sem sótt er um leyfi til reksturs tannlæknastofu að Staðarbergi 2-4, Hafnarfirði. Húshluti: 01 0202. Ný starfsemi.
Með vísun til ákvæða hollustuhátta- og mengunarvarnareglugerða er starfsleyfi samþykkt til 12 ára með fyrirvara um að starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar.
Lögð fram umsókn Þóris Schiöth f.h. Tannlæknastofunnar Jaxlsins ehf, kt. 631007-1390, dags. 10.02.2010, þar sem sótt er um leyfi til reksturs tannlæknastofu að Staðarbergi 2-4, Hafnarfirði. Húshluti: 01 0202. Ný starfsemi.
Með vísun til ákvæða hollustuhátta- og mengunarvarnareglugerða er starfsleyfi samþykkt til 12 ára með fyrirvara um að starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar.
Lögð fram að nýju umsókn Erlings Hafþórssonar, fh. Rafpoleringar ehf, kt. 420207-0930, dags. 8.03.2006, þar sem sótt er um leyfi til meðferðar og húðunar málma að Stapahrauni 3, Hafnarfirði. Eigendaskipti.
Á fundi
heilbrigðisnefndar þann 07.05.2007 var samþykkt, með vísun til ákvæða
mengunarvarnareglugerða, að auglýsa tillögu að starfsleyfi til 12 ára.
Kynning
fór fram dagana 19.12.2009 til 18.01.2010, engar athugasemdir bárust.
Með vísun til ákvæða mengunarvarnareglugerða er starfsleyfi samþykkt til 12 ára.
Lögð fram umsókn Sigmundar Dýrfjörð, fh. Te og kaffi, kt. 530484-0179, dags. 16.02.2010, þar sem sótt er um leyfi fyrir eldhúsi til framleiðslu á brauðmeti fyrir kaffihús.
Breyting á starfsemi.
Með vísun til ákvæða matvælareglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 12 ára með fyrirvara um að starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar.
Lögð fram umsókn Kristjáns Ólasonar, f.h. Furu ehf, kt. 621281-1009, dags.19.02.2010, þar sem sótt er um leyfi til niðurrifs á vélbátnum Kambaröst í Drafnarslipp, Hafnarfirði.
Tímabundin starfsemi.
Starfsleyfi staðfest.
Lögð fram umsókn Eiríks Mikkaelssonar f.h. Vélboða ehf., kt. 700307-0850, dags. 8.02.2010, þar sem sótt er um leyfi til reksturs vélsmiðju að Strandgötu 84 og 90, Hafnarfirði.
Húshluti: 02 0101 Strandgötu 84 og 02 0101 Strandgötu 90. Ný starfsemi.
Með vísun til ákvæða mengunarvarnareglugerða er starfsleyfi samþykkt til 12 ára með fyrirvara um að starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar.
Lögð fram umsókn Magnúsar Sigurðssonar, f.h. Apóteks Hafnarfjarðar, kt. 511109-0780 dags 24.02.2010, þar sem sótt er um leyfi til sölu matvörur og fegrunar- og snyrtivörum í apóteki að Tjarnarvöllum 11, Hafnarfirði samkvæmt teikningu Úti og Inni arkitekta, dags. 03.01.09.
Ný starfsemi
Með vísun til ákvæða matvæla- og
hollustuháttareglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 12 ára með fyrirvara um að
starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar og að lokinni úttekt
heilbrigðisfulltrúa.
Lögð fram umsókn Högna Gunnarssonar f.h. Bifreiðaverkstæði Högna, kt. 201158-2659, dags. 08.02.2010, þar sem sótt er um leyfi til reksturs bifreiðaverkstæðis við Trönuhraun 2, Hafnarfirði. Húshluti: 01 0102. Endurnýjun.
Með vísun til ákvæða mengunarvarnareglugerða er starfsleyfi samþykkt til 12 ára með fyrirvara um að starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar.
Kópavogur
Lögð fram umsókn Helga Harðarsonar f.h. Bílaskjóls bifreiðasmiðju, kt.
520390-2789, dags. 10.02.2010, þar sem sótt er um leyfi til rekstur
bifreiðaverkstæðis að Akralind 3, Kópavogi.
Húshluti: 01 0201.
Endurnýjun.
Samkvæmt aðalskipulagi Kópavogs, 2000-2012, er starfsemin á athafnasvæði. Me(D II).
Með vísan til ákvæða
mengunarvarnareglugerða er starfsleyfi samþykkt til 12 ára.
Lögð fram umsókn Guðmundar V. Sigurbjarnasonar, f.h.
Gljáa, kt. 040243-4619, dags. 25.01.2010, þar sem sótt er um leyfi til reksturs
bónstöðvar að Auðbrekku 26, Kópavogi.
Húshluti: 01 0101.
Ný starfsemi.
Með vísun til ákvæða mengunarvarnareglugerða er starfsleyfi samþykkt til 12 ára.
Lögð fram umsókn Guðmundar Hallvarðssonar f.h. Hrafnistu Kópavogi kt. 480210-2040,
dags. 10.02.2010, þar sem sótt er um leyfi til rekstur hjúkrunarheimilis að Boðaþingi 5-7, Kópavogi. Húshluti: 2. álma 4 deildir. Ný starfsemi.
Með vísan til ákvæða
matvæla- og hollustuháttareglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 12 ára að lokinni
úttekt heilbrigðisfulltrúi.
Lögð fram umsókn Kristbjörns Bjarnasonar f.h. Ís cafe ehf., kt. 450110-0190, dags.
8.02.2010, þar sem sótt er um leyfi til rekstur ísbúðar og kaffihúss að
Bæjarlind 14-16, Kópavogi. Húshluti:
02-05 og 02-06. Ný starfsemi.
Með vísan til ákvæða
matvæla- og hollustuháttareglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 12 ára með fyrirvara um
að starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar og að lokinni úttekt
heilbrigðisfulltrúa.
Lögð fram umsókn Önnu Ingu Rögnvaldsdóttur, kt. 081250-7319,
dags. 9.02.2010, þar sem sótt er um leyfi til daggæslu barna fyrir allt að 10
börn að Digranesvegi 54, 3. hæð, Kópavogi.
Ný starfsemi
Með vísun til ákvæða matvæla- og
hollustuháttareglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 12 ára með fyrirvara um að
starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar og að lokinn úttekt
heilbrigðisfulltrúa.
Lögð fram umsókn Guðrúnar K. Aðalsteinsdóttur f.h. Snyrtistofunnar Hrundar, kt .520379-0109,
dags. 8.02.2010, þar sem sótt er um leyfi til reksturs snyrtistofu og
snyrtivöruverslunar að Grænatúni 1, Kópavogi. Húshluti: Í hluta 01 0101. Endurnýjun.
Með vísan til ákvæða
hollustuháttareglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 12 ára með fyrirvara um að
starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar.
Lögð fram umsókn Önnu Maríu Ragnarsdóttur f.h. Signatures of nature, kt. 460209-0720,
dags. 22.01.2010, þar sem sótt er um leyfi til reksturs verslunar með fegrunar-
og snyrtivörur að Hagasmára 1, Kópavogi. Húshluti: 2. hæð- bil U 063. Ný starfsemi.
Samkvæmt aðalskipulagi Kópavogs, 2000-2012, er starfsemin á miðsvæði. Ho(D II).
Með vísan til ákvæða
hollustuháttareglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 12 ára.
Lögð fram umsókn Sverris Friðbjörnssonar, f.h.
Íslandspósts hf, kt.701296-6139, dags. 27.01.2010, þar sem sótt er um leyfi til
sölu á innpökkuðu sælgæti í pósthúsinu að Hamraborg 3, Kópavogi. Ný starfsemi
Með vísun til ákvæða matvælareglugerðar er starfsleyfi
samþykkt til 12 ára með fyrirvara um að starfsemin sé í samræmi við samþykkta
notkun fasteignar og að lokinn úttekt heilbrigðisfulltrúa.
Lögð fram umsókn Friðriks M. Bergsveinssonar f.h. Parketbúðarinnar ehf, kt. 690609-1180,
dags. 22.02.2010, þar sem sótt er um leyfi til reksturs verslunar með efnavörur
tengdar parketslípun og lökkun að Hlíðarsmára 9, Kópavogi. Húshluti: 01 0101 og 01 0102.
Ný starfsemi.
Með vísan til ákvæða
hollustuháttareglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 12 ára með fyrirvara um að
starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar
Lögð fram umsókn Sverris Friðbjörnssonar, f.h.
Íslandspósts hf, kt .701296-6139, dags. 27.01.2010, þar sem sótt er um leyfi
til sölu á innpökkuðu sælgæti í pósthúsinu að Hamraborg 3, Kópavogi. Ný starfsemi
Með vísun til ákvæða matvælareglugerðar er starfsleyfi
samþykkt til 12 ára með fyrirvara um að starfsemin sé í samræmi við samþykkta
notkun fasteignar og að lokinn úttekt heilbrigðisfulltrúa.
Lögð fram að nýju umsókn Stefáns Ara
Guðmundssonar f.h. S. Helgasonar ehf,.
kt. 540269-0689, dags. 19.10.2009, þar sem sótt er um leyfi til grjótnáms, frágangs
á grjótnámu og landmótun í Lækjarbotnum, Kópavogi. Endurnýjun.
Meðfylgjandi eru loftmyndir af fyrirhuguðu grjótnámi
í Lækjarbotnum og tillaga um stækkun og frágangi grágrýtisnámu S. Helgasonar
ehf. sbr. uppdrátt bæjarskipulags Kópavogs 20.02.2009.
Fyrir liggur samningur um grjótnám í Lækjarbotnum
milli Kópavogsbæjar og S. Helgasonar ehf,. dags 14.10.2009.
Samkvæmt aðalskipulagi Kópavogs, 2000-2012,
sveitarfélagsuppdrætti er starfsemin á efnistökusvæði sem tilheyrir fjarsvæði B
samkvæmt skipulagi vatnsverndar
Málið var kynnt fyrir framkvæmdastjórn um vatnsvernd
þann 28.10.2009 er lagðist ekki gegn erindinu.
Á fundi heilbrigðisnefndar þann 31.08.2009 var samþykkt, með vísun til ákvæða mengunarvarnareglugerða, að auglýsa tillögu að starfsleyfi til 12 ára.
Kynning fór fram dagana 19.12.2009 til 18.01.2010,
engar athugasemdir bárust.
Með vísun til ákvæða mengunarvarnareglugerða er starfsleyfi samþykkt til 4 ára.
Lögð fram umsókn Hafdísar Jónsdóttur f.h. Lauga ehf, kt. 631098-2079, dags. 23.02.2010, þar sem sótt er um leyfi til reksturs líkamsræktarstöðvar í Turninum Smáratorgi 3, Kópavogi.
Eigendaskipti
Með vísun til ákvæða hollustuháttareglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 12 ára með fyrirvara um að starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar og að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.
Lögð fram umsókn Helgu M. Jóhannsdóttur f.h. Pólýhúðunar ehf kt. 461108-0400,
dags.18.01.2010, þar sem sótt er um leyfi til duftlökkunar á málmhlutum og
gleri að Smiðjuvegi 3, Kópavogi. Húshluti:
01 0101. Breyting á húsnæði.
Með vísun til ákvæða mengunarvarnareglugerða er starfsleyfi
samþykkt til 12 ára.
Lögð fram að nýju umsókn Daníels V. Elíassonar f.h. Hundahreystis ehf. kt. 471108-1030,
dags.27.11.2009, þar sem sótt er um leyfi til framleiðslu á ferskfóðri fyrir
hunda að Smiðjuvegi 4a, Kópavogi. Húshluti:
Hluti efri hæðar, (01 0204). Ný
starfsemi.
Með vísun til ákvæða mengunarvarnareglugerða er starfsleyfi
samþykkt til 12 ára.
Lögð fram umsókn Jóhanns R. Gunnarssonar f.h. Sláttuvélamarkaðsins kt. 590209-0150,
dags.16.02.2010, þar sem sótt er um leyfi fyrir viðgerðaverkstæði á reiðhjólum
og sláttuvélum að Smiðjuvegi 11,
Kópavogi. Húshluti: 02 0001. Ný starfsemi.
Fyrir liggur eftirlitsskýrsla dags. 16.02.2010.
Með vísun til ákvæða mengunarvarnareglugerða er starfsleyfi
samþykkt til 12 ára með fyrirvara um að starfsemin sé í samræmi við samþykkta
notkun fasteignar.
Lögð fram umsókn Hjartar P. Jónssonar f.h. Iðnvéla ehf kt. 590209-0150,
dags.16.02.2010, þar sem sótt er um leyfi til sölu á merkingaskildum efnum að Smiðjuvegi 11, Kópavogi.
Húshluti: 01 0201 og 0202 í 44 og 01 0201 í 46. Breyting á húsnæði.
Fyrir liggur eftirlitsskýrsla dags. 14.01.2010.
Með vísun til ákvæða hollustuháttareglugerðar er starfsleyfi
samþykkt til 12 ára með fyrirvara um að starfsemin sé í samræmi við samþykkta
notkun fasteignar.
Lögð fram umsókn Helga Þórissonar f.h. Sólningar hf, kt. 700169-0149, dags.
3.02.2010, þar sem sótt er um leyfi til
reksturs hjólbarðaverkstæðis að Smiðjuvegi 68-70 og 72, Kópavogi.
Húshluti: Smiðjuvegur 68-70, 01 0101, 01 0102 og á
Smiðjuvegi 72, 01 0101. Endurnýjun.
Með vísun til ákvæða mengunarvarnareglugerða er starfsleyfi samþykkt til 12 ára.
Lögð fram umsókn Jóhanns J. Bergmann f.h. Vegagerðarinnar kt. 680269-2899, dags.
23.02.2010, þar sem sótt er um leyfi til breikkunar Suðurlandsvegar frá
Fossvöllum að Draugahlíðum sem er innan fjarsvæðis A á vatnsverndarsvæði
höfuðborgarsvæðisins. Lögð verður ný akbraut norðan núverandi vegar.
Fyrir liggur matsskýrsla Vegagerðarinnar, gerð af
EFLU verkfræðistofu, dagsett júlí 2009, álit Skipulagsstofnunar dagsett
9.7.2009 og framkvæmdalýsing dagsett 2.2010.
Fyrir liggur bréf heilbrigðiseftirlits dags.
16.02.2010 sem sent var Vegagerðinni eftir fund með hönnuðum.
Með vísun til ákvæða mengunarvarnareglugerða og 30.
greinar samþykktar nr. 636/1997, er varðar vatnsverndarsvæði
höfuðborgarsvæðisins, er starfsleyfi samþykkt með gildistíma til áætlaðra
verkloka 2011.
Hafnarfjörður
Lagt fram bréf sýslumannsins í Hafnarfirði dags 18.02.2010, þar sem óskað er umsagnar á umsókn Knattspyrnufélagsins Hauka kt. 600169-0419, þar sem sótt er um tækifærisleyfi fyrir herrakvöld þann 27.02.2010 frá kl. 19.30 -02.00 í íþróttahúsi Hauka Ásvöllum, Hafnarfirði.
Jákvæð umsókn staðfest.
Lagt fram bréf sýslumannsins í Hafnarfirði dags 10.02.2010, þar sem óskað er umsagnar á umsókn G. Arnfjörð ehf. kt. 420502-4940, þar sem sótt er um rekstrarleyfi í flokki I fyrir veitingastofu að Reykjavíkurveg 68, Hafnarfirði.
“Heilbrigðisnefnd
samþykkti 15.06.2009 starfsleyfi fyrir veitingaverslun skv. matvælareglugerðum.
Í fyrirliggjandi umsókn er sótt um rekstrarleyfi, samkvæmt I flokki reglugerðar
nr. 585/2007. Mat m.t.t. grenndaráhrifa er að ólíklegt verði að teljast, að
hávaði frá starfseminni valdi ónæði í nágrenninu. Mælt er með veitingu
rekstrarleyfis fyrir veitingaverslun.”
Kópavogur
Lagt fram bréf sýslumannsins í Kópavogi dags 2.01.2010, þar sem óskað er umsagnar á umsókn G. Arnfjörð ehf, kt. 420502-4940, þar sem sótt er um rekstrarleyfi fyrir veitingastofu í flokki l, að Núpalind 1, Kópavogi.
“Heilbrigðisnefnd
samþykkti 15.06.2009 starfsleyfi fyrir veitingaverslun skv. matvælareglugerðum.
Í fyrirliggjandi umsókn er sótt um rekstrarleyfi, samkvæmt I flokki reglugerðar
nr. 585/2007. Mat m.t.t. grenndaráhrifa er að ólíklegt verði að teljast, að
hávaði frá starfseminni valdi ónæði í nágrenninu. Mælt er með veitingu
rekstrarleyfis fyrir veitingaverslun.”
Lagt fram bréf sýslumannsins í Kópavogi dags 9.02.2010, þar sem óskað er umsagnar á umsókn Ís café ehf, kt. 450110-0190, þar sem sótt er um rekstrarleyfi fyrir veitingastofu í flokki l, að Bæjarlind 14-16, Kópavogi.
“Heilbrigðisnefnd
samþykkti 01.03.2010 starfsleyfi fyrir ísbúð og kaffihús skv. matvæla og
hollustuháttarreglugerð. Í fyrirliggjandi umsókn er sótt um rekstrarleyfi,
samkvæmt I flokki reglugerðar nr. 585/2007. Mat m.t.t. grenndaráhrifa er að
ólíklegt verði að teljast, að hávaði frá starfseminni valdi ónæði í nágrenninu.
Mælt er með veitingu rekstrarleyfis fyrir kaffihús.”
Lagt fram bréf sýslumannsins í Kópavogi dags 10.02.2010, þar sem óskað er umsagnar á umsókn Jóa í Stíghúsi ehf kt. 571209-0980, þar sem sótt er um rekstrarleyfi fyrir veitingastofu í flokki l, að Ögurhvarfi 2, Kópavogi.
“Heilbrigðisnefnd
samþykkti 25.01.2010 starfsleyfi fyrir veitingastað skv. matvæla og
hollustuháttarreglugerð. Í fyrirliggjandi umsókn er sótt um rekstrarleyfi,
samkvæmt I flokki reglugerðar nr. 585/2007. Mat m.t.t. grenndaráhrifa er að
ólíklegt verði að teljast, að hávaði frá starfseminni valdi ónæði í nágrenninu.
Mælt er með veitingu rekstrarleyfis fyrir veitingastofu.”
Lögð fram umsókn 10-11, kt. 450199-3629, dags. 8.02.2010, þar sem sótt er um endurnýjun á leyfi til tóbakssölu í 10-11 verslun Engihjalla 8, Kópavogi.
Leyfisveiting staðfest.
Lögð fram umsókn Samkaups hf, kt. 571298-3769, dags. 24.02.2010, þar sem sótt er um endurnýjun á leyfi til tóbakssölu í Samkaup Strax, Hófgerði 30, Kópavogi.
Leyfisveiting samþykkt.
Lögð fram umsókn Samkaups hf, kt. 571298-3769, dags. 24.02.2010, þar sem sótt er um endurnýjun á leyfi til tóbakssölu í Nettó, Salavegi 30, Kópavogi.
Leyfisveiting samþykkt.
Lögð fram fundargerð framkvæmdastjórnar um
vatnsvernd á höfuðborgarsvæðinu frá 5. febrúar 2010.
Lögð fram fundargerð framkvæmdastjórnar um
vatnsvernd á höfuðborgarsvæðinu frá 26. febrúar 2010.
Lagt fram erindi Kópavogsbæjar frá 22.
febrúar 2010 þar sem kynnt er afgreiðsla bæjarráðs Kópavogs þann 18. febrúar
2010 á erindi skíðadeildar Breiðabliks varðandi snjóframleiðslu í Bláfjöllum.
“Bæjarráð beinir því til heilbrigðisnefndar
að tillaga um nýtt deiliskipulag verði afgreitt í nefndinni.”
Heilbrigðisnefnd upplýsir að drög að nýju og
breyttu deiliskipulagi hefur verið kynnt í nefndinni og umsögn verið veitt
skipulagsnefnd Kópavogs dags. 25. ágúst 2009.
Skíðasvæðið í Bláfjöllum er á aðrennslissvæði vatnsbólanna í
Vatnsendakrikum og hafa því fulltrúar skíðsvæðisins verið í viðræðum vegna
skipulagsvinnu á svæðinu. Heilbrigðisnefnd
tekur fram að tillaga að nýju eða breyttu deiliskipulagi hefur ekki borist.
Lagt fram erindi skipulagsstjóra
Kópavogsbæjar frá 24. febrúar 2010 þar sem óskað er umsagnar um fyrirspurn
vegna staðsetningar sjálfvirkrar bensínafgreiðslu og auglýsingaskiltis á
lóðinni Ögurhvarf 6, Kópavogi.
Heilbrigðisnefnd gerir ekki athugasemdir
varðandi sjálfvirka bensínafgreiðslu á lóðinni en vekur athygli á að huga þarf
sérstaklega að mengunarvörnum á fráveitu en ekki er tekin afstaða til
auglýsingaskiltis.
Lagt fram erindi dags. 27. október 2009 þar
sem lýst er áhyggjum af slysahættu sem bréfritari telur börnum stafa af lágum
glervegg og handriði í Hraunvallaskóla í Hafnarfirði.
Lögð fram gögn um vettvangsskoðun og
samskipti heilbrigðiseftirlitsins við skólann, Fasteignafélag Hafnarfjarðar og
byggingarfulltrúa vegna málsins.
Heilbrigðisnefnd telur að öryggi barna sé
ekki tryggt og nauðsynlegt sé að framkvæma úrbætur við glerveggi og handrið á
annarri og þriðju hæðum skólans.
Teknar voru fyrir að nýju kvartanir sem
borist hafa um ólykt í íbúðarhverfi frá starfsemi Svalþúfu að Óseyrarbraut 11 í
Hafnarfirði sbr. lið 8.2. í fundargerð nefndarinnar frá 25.01.2010.
Lagt var fram afrit af erindi
heilbrigðiseftirlitsins til fyrirtækisins dags. 1. febrúar 2010 og bréf fyrirtækisins
dags. 24. febrúar 2010.
Eftirfarandi samþykkt var gerð:
“Heilbrigðisnefnd telur liggja fyrir í gögnum
málsins að við rekstur fyrirtækisins í júlímánuði og desembermánuði 2009 hafi
ekki verið fylgt eðlilegum vinnubrögðum við reksturinn, sem hafi leitt til þess
að ólykt barst frá fyrirtækinu út fyrir lóðarmörk þess og íbúar í nálægum
íbúðargötum urðu fyrir verulegum óþægindum. Með vísun til þess sem fram kemur í
erindi fyrirtækisins frá 24. febrúar 2010 um notkun á þurrkklefa og hvernig
notkun hans er nú háttað megi ljúka máli þessu með áminningu samkvæmt ákvæðum
26. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, með síðari
breytingum.”
Lagt fram til upplýsingar afrit af erindi
steypustöðvarinnar Borgar til stjórnar Kópavogshafnar dags. 15. febrúar 2010.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:50
Richard Hansen Steingrímur Steingrímsson
Birna Ólafsdóttir
Sigurgeir Ólafsson Guðrún Þóra Magnúsdóttir
Halla Halldórsdóttir