HEILBRIGÐISNEFND

HAFNARFJARÐAR- OG KÓPAVOGSSVÆÐIS

140 fundur – 15. júní 2009

 

Fundargerð

Fundur var haldinn í heilbrigðisnefnd Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, mánudaginn 15. júní 2009, og hófst hann kl. 17:15 að Garðatorgi 7, Garðabæ . Mættir voru undirritaðir nefndarmenn auk Guðmundar H. Einarssonar, framkvæmdastjóra, sem ritaði fundargerð. 

Eftirfarandi mál voru tekin fyrir samkvæmt dagskrá:

Jón Bjarni Þorsteinsson boðaði forföll.

 

1                 Fundargerð 139. fundar heilbrigðisnefndar frá 25. maí 2009

Samþykkt

2                 Fundargerð 121. starfsmannafundar frá 10. júní 2009

2.1           Starfsleyfi

Garðabær

2.1.1          Lyngás 18, Garðabær -  Nuddstofa

Lögð fram umsókn Bryndísar Böðvarsdóttur, f.h. Nuddstofu Bryndísar kt. 130265-5029, dags. 29.05.2009, þar sem sótt er um leyfi til reksturs nuddstofu að Lyngási 18, Garðabæ.

Húshluti: 2 hæð til vinstri. Ný starfsemi.

Með vísun til ákvæða hollustuháttareglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 12 ára með fyrirvara um að starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar og að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.

Hafnarfjörður

2.1.2          Eyrartröð 8, Hafnarfjörður, verkstæði og gasbirgðastöð

Lögð fram umsókn Geirs Þórs Zoega f.h. Ísaga ehf kt. 490293-2059, dags. 3.06.2009, þar sem sótt er um leyfi til reksturs verkstæðis með sandblæstri og gasbirgðastöðvar að Eyrartröð 8, Hafnarfirði.  Húshluti: 01 0101.  Breyting á starfsemi

Með vísun til ákvæða mengunarvarnarreglugerðar er samþykkt að auglýsa tillögu að starfsleyfi til 12 ára, þegar fyrir liggur umsögn byggingafulltrúa og slökkviliðs.

2.1.3          Rauðhella 3, Hafnarfjörður -  sandblástur og vélaverkstæði

Lögð fram umsókn Gunnars Árnasonar, f.h. Verkvíkur - Sandtaks kt. 491190-1409, dags. 20.05.2009, þar sem sótt er um leyfi til reksturs vélaverkstæðis og sandblásturs  að Rauðhellu 3, Hafnarfirði.  Endurnýjun

Frestað þar sem unnið er að úrbótum.

2.1.4          Rauðhella 5, Hafnarfjörður -  viðgerðaverkstæði

Lögð fram umsókn Skarphéðins Ómarssonar, f.h. Háfells ehf kt. 690186-1609, dags. 8.06.2009, þar sem sótt er um leyfi til reksturs verkstæðis vegna þjónustu við vörubíla, vinnuvélar og tæki að Rauðhellu 5, Hafnarfirði.  Ný starfsemi. 

Með vísun til ákvæða mengunarvarnareglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 12 ára með fyrirvara um að starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar og að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.

2.1.5          Reykjavíkurvegur 48, Hafnarfjörður, kjötvinnsla, pökkun og geymsla

Lögð fram umsókn Kristjáns Loftssonar f.h. Hvals hf. kt. 650169.- 6549 dags. 15. júní 2009, þar sem sótt er um leyfi til rekstur kjötskurðar, -pökkunar og geymslu matvæla að Reykjavíkurvegi 48, Hafnarfirði.  Ný starfsemi.

Með vísun til ákvæða matvælareglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 12 ára með fyrirvara um að starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar og að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.

2.1.6          Reykjavíkurvegur 62, Hafnarfjörður, veitingaverslun

Lögð fram umsókn Guðmundar Arnfjörð f.h. G. Arnfjörð ehf kt. 420502-4940, dags. 29.05.2009, þar sem sótt er um leyfi til reksturs veitingaverslunar, (pizzusala) að Reykjavíkurvegi 62, Hafnarfirði.  Húshluti: 01 0101.  Eigendaskipti

Með vísun til ákvæða matvælareglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 12 ára með fyrirvara um að starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar og að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.

Kópavogur

2.1.7          Bæjarlind 12,  Kópavogur  snyrtistofa

Lögð fram umsókn Helgu Bjarnadóttur, f.h. Líkamsmótunar  kt. 490908-0210, dags. 30.04.2009, þar sem sótt er um leyfi til reksturs snyrtistofu að Bæjarlind 12, Kópavogi.

Húshluti: Hluti af 010202.  Ný starfsemi.

Lagður fram tölvupóstur umsækjanda um að búið væri að setja vélræn loftræstitæki í herbergi sem notuð eru lokuð og ekki hafa glugga.  Heilbrigðisnefnd áréttar að öll vinnu- og dvalarrými fyrir fólk skal loftræsa.  Vinnu- og dvalarherbergi skulu því hafa opnanlegan glugga eða beina aðfærslu útilofts.  Þeirri kröfu hefur ekki verið fullnægt í öllum herbergjum.

Með vísun til ákvæða hollustuháttarreglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 4 ára með fyrirvara um að óloftræst rými verið ekki nýtt sem dvalar- eða meðferðarými.

2.1.8          Núpalind 1, Kópavogur, veitingaverslun

Lögð fram umsókn Guðmundar Arnfjörð f.h. G. Arnfjörð ehf kt. 420502-4940, dags. 29.05.2009, þar sem sótt er um leyfi til reksturs veitingaverslunar, (pizzusala), að Núpalind 1, Kópavogur.  Húshluti: 01 0103.  Eigendaskipti

Með vísun til ákvæða matvælareglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 12 ára með fyrirvara um að starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar og að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.

2.2           Umsagnir

Álftanes

2.2.1          Hliðsvegur 1, Álftanes –Gullnahliðið,  rekstrarleyfi fyrir samkomusal

Lagt fram afrit af umsókn Boga Jónssonar, dags. 5. júní 2009 til Sýslumannsins í Hafnarfirði, vegna breytinga á rekstrarleyfi. Sótt er um breytingu rekstrarleyfi úr flokki I í flokk II.

Umsögn um rekstrarleyfi var veitt á fundi Heilbrigðisnefndar nr. 138, sjá lið 2.2.1.

Mælt er með veitingu rekstrarleyfis fyrir veitingastofu í flokki II.

Hafnarfjörður

2.2.2          Hjallahraun 15, Hafnarfjörður  - KFC,  rekstrarleyfi

Lagt fram bréf sýslumannsins í Hafnarfirði dags 25.05.2009, þar sem óskað er umsagnar á umsókn Kristínar Helgadóttur, f.h KFC kt. 540198-3149  þar sem sótt er um rekstrarleyfi fyrir veitingastað.

 

Eftirfarandi samþykkt var gerð:

“Heilbrigðisnefnd samþykkti þann 24.01.2000 starfsleyfi fyrir veitingahús að Hjallahrauni 15. skv. matvælareglugerð. Í fyrirliggjandi umsókn er sótt um rekstrarleyfi, samkvæmt I. flokki reglugerðar nr. 585/2007.  Mat m.t.t. grenndaráhrifa er að ólíklegt verði að teljast, að hávaði frá starfseminni valdi ónæði í nágrenninu.

Mælt er með veitingu rekstrarleyfis fyrir veitingastofu.”

2.2.3          Strandgata 50,  Hafnarfjörður, Íþróttahús v/víkingahátíðar, gisting

Lagður fram tölvupóstur sýslumannsins í Hafnarfirði frá 2. júní 2009 þar sem óskað er umsagnar um umsókn Ásbjargar Unu Björnsdóttur sem óskar eftir tímabundnu leyfi vegna gistingar í Íþróttahúsinu við Strandgötu vegna Víkingahátíðarinnar í Hafnarfirði sem fram á að fara dagana 9. júní til 21. júní 2009.

Jákvæð umsögn staðfest.

2.2.4          Strandgata 50,  Hafnarfjörður,  Íþróttahús v/bjartir dagar, dansleikur

Lagt fram erindi sýslumannsins í Hafnarfirði dags. 29. maí 2009 þar sem óskað er umsagnar á umsókn Páls Eyjólfssonar, f.h. Prime ehf, kt. 640602-2790,  dags. 29.05.2009, þar sem sótt er um leyfi til dansleiks þann 6. júní  n.k. frá kl.  23:00-04:00 í íþróttahúsinu Strandgötu í tilefni Bjartra daga. Óskað er eftir leyfi fyrir 1100 manns.

Jákvæð umsögn staðfest.

Kópavogur

2.2.5          Bæjarlind 18, Kópavogur  -  KFC, rekstarleyfileyfi

Lagt fram bréf sýslumannsins í Kópavogi dags 25.05.2009, þar sem óskað er umsagnar á umsókn Kristínar Helgadóttur, f.h KFC kt. 540198-3149 þar sem sótt er um rekstrarleyfi fyrir veitingastað.

Mælt er með eftirfarandi samþykkt:

“Heilbrigðisnefnd samþykkti starfsleyfi fyrir veitingahús að Bæjarlind 18, þann 11.12.2000. skv. matvælareglugerð. Í fyrirliggjandi umsókn er sótt um rekstrarleyfi, samkvæmt I flokki reglugerðar nr. 585/2007. Mat m.t.t. grenndaráhrifa er að ólíklegt verði að teljast, að hávaði frá starfseminni valdi ónæði í nágrenninu.

Mælt er með veitingu rekstrarleyfis fyrir veitingastofu.”

2.2.6          Smiðjuvegur 68-72, Kópavogur  -  Econostey guesthouse, rekstrarleyfi

Lagt fram erindi Sýslumannsins í Kópavogi dags. 11. júní 2009 þar sem óskað er umsagnar á umsókn Björns Þórs Baldurssonar, kt. 021060 – 4109, þar sem sótt er um rekstrarleyfi fyrir gististað að Smiðjuvegi 68-72, Kópavogi.

Umsókn fylgdi afrit af erindi bæjarskipulags Kópavogsbæjar dags. 27. apríl 2009 þar sem athygli er vakin á að sækja þurfi um byggingarleyfi.

Afgreiðslu frestað og óskað er eftir afriti af samþykktum byggingarnefndarteikningum.

2.3           Annað

Hafnarfjörður

2.3.1          Strandgata 52-54,  Hafnarfjörður  tímabundið leyfi, tattoo bás  ÞEG

Lögð fram umsókn Össurar Hafþórssonar, f.h. Lindu Mjallar kt. 430305-0180, dags. 8.06.2009, þar sem sótt er um tímabundið leyfi fyrir tattoo – bás fyrir sýningu sem haldin verður að Strandgötu 55, Hafnarfirði dagana  12. – 18. júní n.k .

Leyfisveiting staðfest.

Kópavogur

2.3.2          Borgarholtsbraut, Kópavogur - tímabundið leyfi sælgæti og gosdrykkir.

Lögð fram umsókn Aldísar Gunnarsdóttur, f.h. Dansfélagsins Hvannar, kt. 541195-2549,  dags. 28.05.2009, þar sem sótt er um leyfi til sælgætissölu  í fjáröflunarskyni þann 17. júní n.k. milli kl. 14-16 á Rútstúni við Borgarholtsbraut, Kópavogi.

Leyfisveiting staðfest.

2.3.3          Borgarholtsbraut, Kópavogur -tímabundið leyfi, pylsur, kaffi, sælgæti og gosdrykkir.

Lögð fram umsókn Elfu Bjarkar Sævarsdóttur, f.h. Handknattleiksfélags Kópavogs, kt., 630981-0269.  dags. 11.06.2009, þar sem sótt er um leyfi til sælgætissölu  í fjáröflunarskyni þann 17. júní n.k. milli kl. 14-16 á Rútstúni við Borgarholtsbraut, Kópavogi.

Leyfisveiting staðfest.

2.3.4          Borgarholtsbraut, Kópavogur -tímabundið leyfi, pylsur, kaffi, sælgæti og gosdrykkir.

Lögð fram umsókn Sólveigar Jónsdóttur, f.h. Íþróttafélagsins Gerplu, kt., 700672-0428 dags. 15.06.2009, þar sem sótt er um leyfi til sælgætissölu  í fjáröflunarskyni þann 17. júní n.k á Rútstúni við Borgarholtsbraut, Kópavogi.

Leyfisveiting staðfest.

2.3.5          Borgarholtsbraut, Kópavogur – tímabundið leyfi.- sælgæti og gosdrykkir

Lögð fram umsókn Guðmundar Sigurbergssonar, f.h. Körfuknattleiksdeildar Breiðabliks kt. 630692-2109,  dags. 9.06.2009, þar sem sótt er um leyfi til sælgætissölu  í fjáröflunarskyni þann 17. júní n.k. milli kl. 14-16 á Rútstúni við Borgarholtsbraut, Kópavogi.

Leyfisveiting staðfest.

2.3.6          Borgarholtsbraut, Kópavogur  tímabundið leyfi - sælgæti og gosdrykkir.

Lögð fram umsókn Ásu Clausen, f.h. Dansíþróttafélags Kópavogs  kt. 410201-3130,  dags. 5.06.2009, þar sem sótt er um leyfi til sælgætissölu  í fjáröflunarskyni þann 17. júní n.k. milli kl. 14-16 á Rútstúni við Borgarholtsbraut, Kópavogi.

Leyfisveiting staðfest.

3                 Vatnsvernd á höfuðborgarsvæðinu

3.1           Fundargerð framkvæmdastjórnar um vatnsvernd frá 20. maí 2009

Lögð fram fundargerðir 78. fundar framkvæmdastjórnar um vatnsvernd á höfuðborgarsvæðinu þann 20. maí 2009.

3.2          Fundargerð framkvæmdastjórnar um vatnsvernd frá 5. júní 2009.

Lögð fram fundargerð 79. fundar framkvæmdastjórnar um vatnsvernd á höfuðborgarsvæðinu þann 5. júní 2009.

4                 Skipulagsmál

4.1           Glaðheimar, deiliskipulag, Kópavogi

Lagt fram að nýju erindi skipulagsstjóra Kópavogsbæjar frá 15. maí 2009 þar sem óskað er umsagnar um tillögu að deiliskipulagi Glaðheima.  Gögn sem fylgja eru umhverfisskýrsla (Mannvit verkfræðistofa dags. í maí 2009), hljóðvistarskýrsla, (Efla verkfræðistofa, minnisblað dags. 7. júní 2009) og skýrsla um mat á loftgæðum (Efla verkfræðistofa, minnisblað . dags. 5.júní 2009).

Eftirfarandi bókun var gerð:

“Heilbrigðisnefnd telur að við frágang skipulagsins þurfi að skilgreina ítarlega mótvægisaðgerðir og byggingatæknilegar lausnir þar sem reikna má með að hljóðstig liggi hærra en viðmiðunargildi fyrir íbúðarsvæði .

Jafnframt bendir heilbrigðisnefnd á að sveitarfélagið verði að reikna með að beita öllum þeim aðgerðum sem bent er á um mótvægisaðgerðir í skýrslu um loftgæði frá 5. júní 2009.”

5              Heilsuræktarstöðvar

Rædd kvörtun sem barst símleiðis þann 6. júní 2008 og staðfest var síðan með tölvupósti.  Kvartað er í tölupóstinum yfir hávaða frá hátölurum í tveimur líkamsræktarstöðvum.  Kvartað hefur verið síðan yfir vinnubrögðum heilbrigðiseftirlitsins.

Farið yfir aðkomu heilbrigðiseftirlitsins við úrvinnslu kvörtunarinnar og hlutverk heilbrigðisnefndar í eftirliti með starfsemi heilsuræktarstöðva.

Eftirfarandi bókun var gerð:

Heimildir heilbrigðisnefndar samkvæmt ákvæðum reglugerðar um hollustuhætti og/eða reglugerðar um hávaða til að gefa fyrirmæli um ekki megi flytja tónlist í hátölurum líkamsræktarstöðva eru ekki fyrir hendi.  Valdsvið heilbrigðiseftirlitsins takmarkast við afskipti með vísun til viðmiðunarmarka fyrir leyfilegan hávaða sem fram kemur í töflu V. í viðauka með reglugerð nr. 724/2008 um hávaða og er því afskiptum heilbrigðiseftirlitsins að máli þessu lokið.

6                 Alcan á Íslandi hf. Isal Straumsvík

6.1           Reglubundin samskipti

Lagt fram erindi Alcan á Íslandi hf. – Isal frá 25. maí 2009 um samræður um sameiginleg hagsmunamál og boð um að koma á reglubundnum samskiptum.

Heilbrigðisnefnd tekur jákvæða afstöðu til erindisins.

6.2           Samráðsfundur samkvæmt grein 4.10 í starfsleyfi ISAL.

Ræddur samráðsfundar Rio Tinto Alcan, Umhverfisstofnunar og Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis þann 2. júní 2009.

 

Júlíus Kr. Björnsson vék af fundi við lok þessa dagsskrárlíða.

7                 Gæði laugarvatns og öryggi á sundstöðum

Lögð fram skýrsla um samstarfsverkefni Umhverfisstofnunar og Heilbrigðiseftirlits Sveitarfélaganna sumarið 2008.  Útgáfunúmer; Ust – 2009:3.

Tillögur til úrbóta eru helstar að bæta innra eftirlit á sundstöðum.  Á það bæði við um þætti sem snúa að öryggismálum og heilnæmi vatnsins.

Heilbrigðisnefnd beinir því til rekstraraðila að halda vöku sinni í þeim málum þó svo niðurstöður úr könnuninni hafi sýnt góða útkomu hjá sundstöðum í umdæminu.

8                 Önnur mál

8.1           Bakkabraut 9, Kópavogur

Lagt fram afrit af erindi heilbrigðiseftirlitsins til Laugaakurs ehf. eiganda mannvirkja og lóðarhafa að Bakkabraut 9, dags. 4. júní s.l.

8.2           Ársskýrsla Matvælastofnunar.

Lögð fram til kynningar ársskýrsla Matvælastofnunar fyrir árið 2008

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:30

 

Júlíus Kr. Björnsson                                                                   Steingrímur Steingrímsson

 

 

Birna Ólafsdóttir                                                                         Sigurgeir Ólafsson

 

 

Gestur Pétursson                                                                       Halla Halldórsdóttir