HEILBRIGÐISNEFND

HAFNARFJARÐAR- OG KÓPAVOGSSVÆÐIS

131. fundur – 29. september 2008

 

Fundargerð

Fundur var haldinn í heilbrigðisnefnd Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, mánudaginn 29. september 2008, og hófst hann kl. 17:15 að Garðatorgi 7, Garðabæ . Mættir voru undirritaðir nefndarmenn auk Guðmundar H. Einarssonar, framkvæmdastjóra, sem ritaði fundargerð. 

Júlíus Kr. Björnsson og Steingrímur Steingrímsson boðuðu forföll.

 

Eftirfarandi mál voru tekin fyrir samkvæmt dagskrá:

1                 Fundargerð 130. fundar heilbrigðisnefndar frá 10. september 2008

Samþykkt

2                 Fundargerð 113. starfsmannafundar frá 24. september 2008

2.1          Starfsleyfi

Garðabær

2.1.1     Við Hafnarfjarðarveg, Garðabær  - bensínstöð og verslun

Lögð fram umsókn Arnars Franssonar f.h. Olíuverslunar Íslands kt. 500269-3249, dags. 26.08.2008, þar sem sótt er um leyfi til að reksturs bensínstöðvar og verslunar við Hafnarfjarðarveg í Garðabæ. Endurnýjun

Með vísun til ákvæða mengunarvarnareglugerða er starfsleyfi samþykkt til 3ja. ára með fyrirvara um að starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar og að umhverfisráðuneytið veiti undanþágu frá ákvæði 1. mgr. 99. gr. í reglugerð nr. 35/1994 um varnir gegn olíumengun frá starfsemi í landi er varðar niðurgrafna geyma.

Hafnarfjörður

2.1.2     Ásvellir 2, Hafnarfjörður  -  sjúkraþjálfun

Lögð fram umsókn Guðlaugar Kristjánsdóttur, f.h. Ásmegin sjúkraþjálfun kt. 600608-1340, dags. 04.09.2008, þar sem sótt er um leyfi til reksturs sjúkraþjálfunar að Ásvöllum 2, Hafnarfirði.  Húshluti: 01 0208.  Ný starfsemi.

Með vísun til ákvæða hollustuháttareglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 12 ára að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.

2.1.3     Drangahraun 1b, Hafnarfjörður  -  Gasbirgðastöð

Lögð fram umsókn Barkar Gunnarssonar, f.h. Strandmöllen ehf kt. 430108-0260, dags. 11.09.2008, þar sem sótt er um leyfi til reksturs gasbirgðastöðvar að Drangahrauni 1b, Hafnarfirði.  Húshluti : 01 0101 og 02 0101.  Ný starfsemi.

Með vísun til ákvæða mengunarvarnareglugerða er samþykkt að auglýsa tillögu að starfsleyfi til 12 ára.

2.1.4     Dalshraun 13, Hafnarfjörður  -  starfsmannabústaður  

Lögð fram umsókn Stefáns Kjærnested, f.h. Húsaleigunnar ehf., kt. 490306-0210, dags. 15.04.2008, þar sem sótt er um leyfi til reksturs starfsmannabústaðar, að Dalshrauni 13, Hafnarfirði. Húshluti, 2 hæð í húsi meðfram Dalshrauni.  Fastanúmer 2074338.  Ný starfsemi.

Lagður fram að nýju tölvupóstur dags. 16.06.2008 um breyttar aðstæður og sótt um leyfi til 31.12.2008. 

Fyrir liggur neikvætt svar byggingafulltrúa dags. 18.08.2008.

Frestað þar sem umsækjanda hefur óskað eftir skoðun á aðstæðum vegna breyttra forsenda.

2.1.5     Tjarnavellir 15, Hafnarfjörður  -  fisk-og kjötverslun

Lögð fram umsókn Valgeirs Stefánssonar f.h. Nordic Sea ehf kt. 510205-1110, dags. 22.09.2008, þar sem sótt er um leyfi til reksturs fisk- og kjötverslunar að Tjarnarvöllum 15, Hafnarfirði.  Eigendaskipti.

Með vísun til ákvæða matvælareglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 12 ára að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.

Kópavogur

2.1.6     Búðakór 1, Kópavogur  -  fisk-og kjötverslun

Lögð fram umsókn Valgeirs Stefánssonar f.h. Nordic Sea ehf. kt. 510205-1110, dags. 22.09.2008, þar sem sótt er um leyfi til reksturs fisk- og kjötverslunar að Búðakór 1, Kópavogi.

Eigendaskipti.

Með vísun til ákvæða matvælareglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 12 ára með fyrirvara um að starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar.

2.1.7     Dalvegur 4, Kópavogur  -  fisk-og kjötverslun

Lögð fram umsókn Valgeirs Stefánssonar f.h. Nordic Sea ehf. kt. 510205-1110, dags. 22.09.2008, þar sem sótt er um leyfi til reksturs fisk- og kjötverslunar að Dalvegi 4, Kópavogi.

Eigendaskipti.

Með vísun til ákvæða matvæla- og hollustuháttareglugerða er starfsleyfi samþykkt til 12 ára með fyrirvara um að starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar og að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.

2.1.8     Fannborg 8, Kópavogur  fótaaðgerðastofa

Lögð fram umsókn Hjördísar Þorbjörnsdóttur, f.h. Betri fætur kt. 250258-4539, dags. 04.09.2008, þar sem sótt er um leyfi til reksturs fótaaðgerðastofu að Fannborg 8, Kópavogi.

Eigendaskipti

Með vísun til ákvæða hollustuháttareglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 12 ára með fyrirvara um að starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar.

2.1.9     Hamraborg 1-3, Kópavogur  kaffihús – veitingastaður

Lögð fram umsókn Gunnars Friðbjörnssonar, f.h. JVG MB ehf. kt. 450608-0250, dags. 28.08.2008, þar sem sótt er um leyfi til reksturs kaffihúss – veitingastaðar með léttum veitingum að Hamraborg 1-3, Kópavogi.  Húshluti: 01 0105.  Ný starfsemi.

Með vísun til ákvæða matvælareglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 12 ára að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.

2.1.10  Hamraborg 6, Kópavogur  Tónlistaskóli

Lögð fram umsókn Árna Harðarsonar, f.h. Tónlistarskóla Kópavogs. kt. 660269-0299, dags. 24.09.2008, þar sem sótt er um leyfi til reksturs tónlistarskóla að Hamraborg 6, Kópavogi.

Endurnýjun.

Með vísun til ákvæða hollustuháttareglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 12 ára og með fyrirvara um að starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar.

2.1.11  Skemmuvegur 16, Kópavogur  -  bón og þvottastöð

Lögð fram umsókn Vytautas Latanauskas, f.h. Clean car ehf. kt.. 920908-1290, dags. 16.09.2008, þar sem sótt er um leyfi til reksturs bón – og þvottastöðvar að Skemmuvegi 16, Kópavogi.  Ný starfsemi

Með vísun til ákvæða mengunarvarnareglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 12 ára og að  lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.

2.1.12  Smáratorg 3, Kópavogur  -  Tannlæknastofa

Lögð fram umsókn Jóhönnu Bryndísar Bjarnadóttur f.h. Tannlæknastofunnar Turnsins, kt. 590508-2680, dags. 22.09.2008, þar sem sótt er um leyfi til reksturs tannlæknastofu að Smáratorgi 3, Kópavogi.  Húshluti: 14. hæð NV-horn.   Ný starfsemi

Með vísan til ákvæða hollustuháttareglugerðar og mengunarvarnareglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 12 ára að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa og með fyrirvara um að starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar.

2.1.13  Smiðjuvegur 4a, Kópavogur  -  poppkornsframleiðsla 

Lögð fram umsókn Sæþórs Matthíassonar, f.h. Maxi heildsala ehf. kt.. 660808-0270, dags. 17.09.2008, þar sem sótt er um leyfi til reksturs poppkornsframleiðslu að Smiðjuvegi 4a.

Með vísun til ákvæða matvælareglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 12 ára með fyrirvara um að starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar.

2.2          Umsagnir

Hafnarfjörður

2.2.1     Flatahraun 21, Hafnarfjörður  -  veitingastaður

Lagt fram bréf sýslumannsins í Hafnarfirði, dags. 03.09.2008 þar sem óskað er umsagnar á umsókn Aleksandru Janczynska, f.h. Warszawa ehf. kt. 580607-0210 um endurnýjun á rekstrarleyfi Bar Polonia Flatahraun 21

Meðfylgjandi bréfi sýslumannsins í Hafnarfirði eru mótmæli dags. 20.08.2008, þar sem farið er fram á að opinberir leyfisveitendur hafni endurútgáfu á rekstrarleyfi í III flokki til rekstraraðila.

Lögð fram andmæli rekstraraðila dags. 19.09.2008 við mótmælabréfi.

Eftirfarandi umsögn er gerð:

“Alvarlegar athugasemdir hafa ekki verið gerðar af hálfu heilbrigðisnefndar við reksturinn. Ítrekað er sem fram kemur í umsögn til sýslumannsins í Hafnarfirði í bréfi dags. 4. september 2007 að mælt er með rekstrarleyfi fyrir veitingahús og skemmtistað þar sem tónlistarflutningur verði takmarkaður á þann hátt að önnur starfsemi í húsinu verði ekki fyrir ónæði”.

2.2.2     Reykjavíkurvegur 68, Hafnarfirði  -  veitingastaður

Lagt fram bréf sýslumannsins í Hafnarfirði, dags. 19.08.2008 þar sem óskað er umsagnar á umsókn Bin Dong, um rekstrarleyfi að Reykjavíkurvegi 68, Hafnarfirði.  Rekstraraðili er. DT veitingar ehf kt. 500801-2550. 

Eftirfarandi samþykkt var gerð:

“Heilbrigðisnefnd samþykkti 24.09.2001 starfsleyfi skv. matvælareglugerð fyrir veitingahús. Í fyrirliggjandi umsókn er sótt um rekstrarleyfi, samkvæmt II flokki reglugerðar nr. 585/2007. Mat m.t.t. grenndaráhrifa er að ólíklegt verði að teljast, að hávaði frá starfseminni valdi ónæði í nágrenninu. Jákvæð umsögn veitt vegna rekstrarleyfis fyrir veitingahús.

2.2.3     Strandgata 50, Hafnarfirði  -  -tækifærisleyfi

Lagt fram bréf sýslumannsins í Hafnarfirði, dags. 25. september 2008 þar sem óskað er umsagnar á umsókn Péturs Ó. Stephensen f.h. Knattspyrnudeildar FH, kt. 410687 1359, ar sem sótt er um leyfi fyrir skemmtun í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði laugardaginn 4. október n.k.

Jákvæð umsögn samþykkt.

Kópavogur

2.2.4     Hamraborg 3, Kópavogur  - kaffihús

Lagt fram bréf sýslumannsins í Kópavogi, dags. 29.08.2008 þar sem óskað er umsagnar á umsókn Gunnars Friðbjörnssonar, f.h. JVG MB ehf kt. 450608-0250 um rekstrarleyfi fyrir kaffihús að Hamraborg 3, Kópavogi.

Starfsleyfi sjá lið 1.9.

Eftirfarandi samþykkt var gerð:

“Heilbrigðisnefnd samþykkti, 29.09.2008 að JVG MB ehf, kt. 450608-0250 starfsleyfi fyrir veitingastað, kaffihús að Hamraborg 3, Kópavogi . Í fyrirliggjandi umsókn er sótt um rekstrarleyfi, samkvæmt II flokki reglugerðar nr. 585/2007. Mat m.t.t. grenndaráhrifa er að ólíklegt verði að teljast, að hávaði frá starfseminni valdi ónæði í nágrenninu.

Jákvæð umsögn vegna rekstrarleyfis fyrir kaffihús verður veitt að lokinni úttekt.”

2.2.5     Hamraborg 7, Kópavogur  -  hotel

Lagt fram bréf sýslumannsins í Kópavogi, dags. 12.08.2008 þar sem óskað er umsagnar á umsókn Viðars Sigurðssonar,  um rekstrarleyfi fyrir Merlinhotel að Hamraborg 7, Kópavogi.  Rekstraraðili er. Eidel ehf kt. 650804-2360

Sótt er um leyfi fyrir gististað í flokki II.

Lagt fram afrit af bréf til sýslumannsins í Kópavogi dags 09.09.2008 um að afgreiðslu væri frestað þar sem umsókn um starfsleyfi hefði ekki borist.

Umsókn um starfsleyfi hefur ekki borist og mun erindið verða endursent berist umsókn ekki innan 14 daga.

2.2.6     Skálaheiði 2, Kópavogur - tækifærisleyfi  

Lagt fram bréf sýslumannsins í Kópavogi, dags. 18.09.2008 þar sem óskað er umsagnar á umsókn,  Birgis Bjarnasonar, f.h. Handknattleiksfélags Kópavogs, kt. 630981-0269  um

tækifærisveitingaleyfi þann 27. september n.k. fyrir skemmtun Handknattleiksfélags Kópavogs.

Jákvæð umsögn staðfest.

2.3          Tóbakssöluleyfi

Hafnarfjörður

2.3.1     N1 verslun, Hafnarfjörður  - verslun   

Lögð fram umsókn N1 verslun, 540206-2010, dags. 14.09.2008, þar sem sótt er um leyfi til tóbakssölu að Dalshrauni 17, Hafnarfirði.  Ný starfsemi.

Leyfisveiting samþykkt.

Kópavogur

2.3.2     N1 verslun, Kópavogur  - verslun   

Lögð fram umsókn N1 verslun, 540206-2010, dags. 14.09.2008, þar sem sótt er um leyfi til tóbakssölu að Smiðjuvegi 4a, Kópavogi.  Ný starfsemi

Leyfisveiting samþykkt.

2.3.3     Borgarholtsbraut 19, Kópavogur  - söluturn, ísbúð 

Lögð fram umsókn Arnar Helgasonar, f.h. Bettís grill ehf. Kt. 670808-0330, dags. 02.09.2008, þar sem sótt er um leyfi til tóbakssölu að Borgarholtsbraut 19, Kópavogi.

Leyfisveiting staðfest

3           Loftgæði

Tore Skjenstad heilbrigðisfulltrúi fór yfir mælingar á umhverfisgæðum undanfarna mánuði.  Skýrði hann mælingar og skráning á einstökum þáttum í umhverfinu á höfuðborgarsvæðinu og mengunarspár fyrir Evrópu en mengun þaðan er greinilega að hafa áhrif hér.  Færanleg mælistöð hefur nú verið í notkun við Marbakkabraut í Kópavogi í nokkurn tíma og auðvelt er að skoða mælingar þar og í samhengi við mælingar í mælistöðinni á Hvaleyrarholti.

4           Fjárhagsáætlun 2009

Lagðar fram fjárhags- og eftirlitsáætlana vegna ársins 2009 og tillögur að gjaldskrám. 

Samþykkt.

5           Skipulagsmál í Bláfjöllum

Lagt fram erindi skipulagsstjóra Kópavogsbæjar dags 17. september 2008 um breytingu á deiliskipulagi í Bláfjöllum vegna viðbyggingar við skíðaskála Ármanns við Sólskinsbrekku.

Samþykkt að óska umsagnar framkvæmdastjórnar um vatnsvernd.

6           Bakkabraut 9 Kópavogi - Einingaverksmiðja

6.1          Endurupptaka máls með vísun til úrskurðar frá 18. júlí 2008

Lagt fram að afrit af bréfi heilbrigðiseftirlitsins til Einingarverksmiðjunnar Borgar ehf. frá 28. ágúst 2008 ásamt álitsgerð heilbrigðisnefndar frá 25. ágúst 2008.

Lagt fram erindi Einingaverksmiðjunnar Borgar ehf. dags. 15. september 2008 varðandi bréf heilbrigðiseftirlitsins frá 28. ágúst 2008 og álitsgerð frá 25. ágúst 2008.

 

Lagt fram að nýju erindi Guðmundar Óla Björgvinssonar hrl. frá 16. október 2007 ásamt um umsókn Einingarverksmiðjunnar Borgar ehf. um starfsleyfi til að framleiða, selja og dreifa steinsteypu á almennum byggingarmarkaði.

 

Eftirfarandi samþykkt var gerð:

“Með vísun til úrskurðar úrskurðarnefndar skv. 31. gr. l. nr. 7/1998 frá 18. júní 2008 tekur heilbrigðisnefnd til meðferðar að nýju ákvarðanir sínar frá:

·         9. nóvember 2007 um að hafna viðurkenningu á kröfum Einingaverksmiðjunnar Borgar ehf. um viðurkenningu á því að núgildandi starfsleyfi fyrirtækisins nái til allrar starfsemi þess þ.m.t. framleiðslu og sölu á steinsteypu á almennum markaði.

·         22. janúar 2008 um að hafna varakröfu Einingaverkmiðjunnar Borgar ehf. um að starfsleyfi verði breytt þannig að það taki til allrar núverandi starfsemi fyrirtækisins. þ.m.t. framleiðslu og sölu á steinsteypu á almennum markaði.

Fyrirtækinu er hér með veittur 14 daga frestur til að koma að sínum sjónarmiðum við endurupptöku málsins.

6.2          Uppsöfnun á steypuúrgangi og hreinsun steypu úr steypubifreiðum á lóð.

Lagt fram afrit af eftirlitsskýrslu heilbrigðiseftirlits frá 18. september 2008 til Einingaverksmiðjunnar Borgar ehf. vegna uppsöfnunar á steypuúrgangi á lóð Bakkabrautar 9 í Kópavogi.

 

Eftirfarandi samþykkt var gerð:

“Heilbrigðisnefnd telur uppsöfnun á steypuúrgangi eins og nú fer fram á lóðinni að Bakkabraut 9 í Kópavogi alvarlegt brot á starfsleyfi og lögum um meðferð úrgangs.

Með vísun til 1. mgr. 27. gr. reglugerðar nr. 786/1999 um mengunarvarnaeftirlit er þess hér með krafist að hætt verði að hreinsa steypu úr steypubifreiðum á lóðinni að Bakkabraut 9 í Kópavogi og að hætt verði að safna upp steypuúrgangi í hrúgu á sömu lóð.  Jafnframt er þess krafist með vísun til 2. mgr. 27. gr. reglugerðar nr. 786/1999, að lóðin verði hreinsuð samkvæmt tímasettri áætlun sem lögð verði fram innan 14 daga.  Heilbrigðisnefnd metur ástandið það alvarlegt að heimilt sé að afturkalla fyrirliggjandi starfsleyfi án frekari fyrirvara gangi úrbætur ekki eftir.”

6.3          Breytingar á eignaraðild að tækjum

Lagt fram erindi Einingaverksmiðjunnar Borgar ehf. frá 23. september 2008 þar sem tilkynnt er að fyrirtækið hafi selt steypustöðvar hluta úr sínum rekstri og að eftirleiðis muni fyrirtækið eingöngu nota litlu steypuhrærivélina sem staðsett er innandyra.

Lagt fram erindi Kaupangurs ehf. frá 23. september 2008 þar sem tilkynnt er að Kaupangur ehf. eða félag í hans eigu hafi keypt Steypustöðina Borg af Einingaverksmiðjunni Borg ehf.

 

Eftirfarandi samþykkt var gerð:

“Samkvæmt ofangreindum erindum verður ekki betur séð en að hafin hafi verið af nýjum aðila rekstur steypustöðvar á lóðinni.  Ekki hefur verið sótt um starfsleyfi fyrir þann rekstur og ber því að stöðva hann nú þegar sbr. 5. gr. a. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir með síðari breytingum.”

7           Sala á tóbaki í smásölu

Lagt fram til kynningar erindi Umhverfisráðuneytis frá 17. september 2008 um sölu tóbaks í verslunum þar sem unglingar yngri en 18 ára vinna ásamt áliti Heilbrigðisráðuneytis frá 2. september 2008.

8           Önnur mál

Engin

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:45

 

 

Birna Ólafsdóttir                                                                         Jón Bjarni Þorsteinsson

 

 

Sigurgeir Ólafsson                                                                      Gestur Pétursson

 

 

Halla Halldórsdóttir