HEILBRIGÐISNEFND

HAFNARFJARÐAR- OG KÓPAVOGSSVÆÐIS

115. fundur –29. maí 2007

 

Fundargerð

Fundur var haldinn í heilbrigðisnefnd Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, þriðjudaginn 29. maí 2007, að Garðatorgi 7, Garðabæ og hófst hann kl. 17:15. Mættir voru undirritaðir nefndarmenn auk Guðmundar H. Einarssonar, framkvæmdastjóra, sem ritaði fundargerð

Eftirfarandi mál voru tekin fyrir samkvæmt dagskrá:

1        Fundargerð 113. fundar heilbrigðisnefndar frá 7. maí 2007 og fundargerð 114. fundar heilbrigðisnefndar frá 14. maí 2007. Samþykktar.

2        Fundargerð 99. starfsmannafundar frá 24. maí 2007

2.1           Starfsleyfi

Álftanes

2.1.1          Breiðamýri, Álftanes  -  veitingastaður.

Lögð fram umsókn Óskars Gunnarssonar, f.h. Breiðumýri ehf., kt. 570407-2010, dags. 04.05.2007, þar sem sótt er um leyfi til reksturs veitingastaðar að Breiðumýri, Álftanesi. Eigendaskipti.

Með vísun til ákvæða matvæla- og hollustuháttareglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 12 ára, að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa og með fyrirvara um að innra eftirliti verði komið á innan 2 mánaða.

2.1.2          Fálkastígur 4, Álftanes  -  heimagisting.

Lögð fram umsókn Elsu Bjartmarsdóttur, kt. 131050-2409, dags. 16.05.2007, þar sem sótt er um leyfi til reksturs heimagistingar að Fálkastíg 4, Álftanesi. Ný starfsemi.

Með vísun til ákvæða hollustuháttareglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 12 ára, að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa, með fyrirvara um að innra eftirliti verði komið á innan 2 mánaða og að starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar.

Garðabær

2.1.3          Suðurhraun 12b, Garðabæ  -  matvöruverslun.

Lögð fram umsókn Rúnars Sigurkarlssonar, f.h. Yggdrasils ehf., kt. 440286-1279, dags. 08.05.2007, þar sem sótt er um leyfi til reksturs matvöruverslunar ásamt verslun með fegrunar- og snyrtivörur að Suðurhrauni 12b, Garðabæ. Ný starfsemi.

Með vísun til ákvæða matvæla- og hollustuháttareglugerða er starfsleyfi samþykkt til 12 ára, að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa, með fyrirvara um að innra eftirliti verði komið á innan 2 mánaða og að starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar.

2.1.4          Miðhraun 14, Garðabæ  -  matvöruverslun.

Lögð fram umsókn Hákonar Óttarssonar, f.h., Víntríó ehf., kt. 700103-3660, dags. 16.05.2007, þar sem sótt er um leyfi vegna innflutnings á matvælum, með lögheimili að Miðhrauni 14, Garðabæ. Vörugeymsla verður á hafnar- eða athafnasvæði. Ný starfsemi.

Með vísun til ákvæða matvælareglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 12 ára, að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa, með fyrirvara um að innra eftirliti verði komið á innan 2 mánaða.

Hafnarfjörður

2.1.5          Fornubúðir 5, Hafnarfjörður  -  vörugeymsla.

Lögð fram umsókn Hauks Þórs Haraldssonar, f.h. Mest ehf., kt. 620269-7439, dags. 10.05.2007, þar sem sótt er um leyfi til reksturs vörugeymslu, verkstæðis og matstofu að Fornubúðum 5, Hafnarfirði. Ný starfsemi.

Með vísun til ákvæða hollustuhátta- matvæla- og mengunarvarnareglugerða er starfsleyfi samþykkt til 12 ára, með fyrirvara um að innra eftirliti verði komið á innan 2 mánaða, að starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar.

2.1.6          Fornubúðir 8, Hafnarfjörður  -  verslun með fegrunar- og snyrtiefni.

Lögð fram umsókn Jóns Vigfússonar, f.h. Hafnarsport ehf., kt. 440202-3060, dags. 10.05.2007, þar sem sótt er um leyfi til reksturs verslunar með fegrunar- og snyrtiefni að Fornubúðum 8, Hafnarfirði. Ný starfsemi.

Með vísun til ákvæða hollustuháttareglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 12 ára með fyrirvara um að innra eftirliti verði komið á innan 2 mánaða og að starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar.

2.1.7          Lónsbraut 6, Hafnarfjörður  -  trésmiðja.

Lögð fram að umsókn Stefáns Guðfinnssonar, f.h. S. Guðfinnsson ehf., kt. 690304-3410, dags. 22.05.2007, þar sem sótt er um leyfi til reksturs trésmiðju og verkstæðis að Lónsbraut 6, Hafnarfirði. Ný starfsemi.

Með vísun til ákvæða mengunarvarnareglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 12 ára, fyrirvara um að starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar.

2.1.8          Skúlaskeið 12, Hafnarfjörður  -  matvöruverslun.

Lögð fram umsókn Ragnars Unnarssonar, f.h., Norðurbrúar ehf., kt. 470706-1040, dags. 10.05.2007, þar sem sótt er um leyfi vegna innflutnings á matvælum með lögheimili að Skúlaskeiði 12, Hafnarfirði. Vörugeymsla verður á hafnar- eða athafnasvæði. Ný starfsemi.

Með vísun til ákvæða matvælareglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 12 ára með fyrirvara um að innra eftirliti verði komið á innan 2 mánaða og að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.

2.1.9          Stekkjarberg 9, Hafnarfjörður  -  niðurrif á húsnæði.

Lögð fram umsókn Sigurjóns Gunnarssonar, kt. 201256-2919, dags. 09.05.2007, þar sem sótt er um leyfi til niðurrifs á húsi að Stekkjarbergi 9, Hafnarfirði. Tímabundin starfsemi.

Með vísun til ákvæða mengunarvarnareglugerðar er staðfesting starfsleyfis samþykkt. Leyfið gildir frá 09.05.2007–01.07.2007

Kópavogur

2.1.10      Akralind 2, Kópavogur  -  viðgerðaraðstaða.

Lögð fram umsókn Lárusar Árnasonar, f.h. Dieselviðgerða ehf., kt. 440902-2190, dags. 27.04.2007, þar sem sótt er um leyfi til reksturs viðgerðaraðstöðu að Akralind 2, Kópavogi.

Ný starfsemi.

Með vísun til ákvæða mengunarvarnareglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 12 ára.

2.1.11      Akralind 7, Kópavogur  -  viðgerðaraðstaða.

Lögð fram umsókn Viðars Finnssonar, f.h. Véla og viðgerðaþjónustunnar ehf., kt. 690600-2690, dags. 09.05.2007, þar sem sótt er um leyfi til reksturs viðgerðaraðstöðu að Akralind 7, Kópavogi.

Ný starfsemi.

Með vísun til ákvæða mengunarvarnareglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 12 ára.

2.1.12      Bæjarlind 14-16, Kópavogur  -  matsölustaður

Lögð fram umsókn Yupin Lumpa, f.h., Thailenska eldhússins ehf., kt. 600701-2150, dags. 21.05.2007, þar sem sótt er um leyfi til reksturs matsölustaðar að Bæjarlind 14-16, Kópavogi.

Eigendaskipti.

Með vísun til ákvæða hollustuhátta- og matvælareglugerða er starfsleyfi samþykkt til 12 ára, með fyrirvara um að innra eftirliti verði komið á innan 2 mánaða og að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.

2.1.13                  Dalvegur 10-14, Kópavogur  -  verslun með vörur sem innihalda varasöm efni.

Lögð fram umsókn Júlíusar Hafsteinssonar, f.h. Parka ehf., kt. 561188-1659, dags. 09.05.2007, þar sem sótt er um leyfi til reksturs verslunar með vörur sem innihalda varasöm efni að Dalvegi 10-14, Kópavogi. Endurnýjun.

Með vísun til ákvæða hollustuháttareglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 12 ára, með fyrirvara um að innra eftirliti verði komið á innan 2 mánaða.

2.1.14      Dalvegur 16c, Kópavogur  -  efnalaug.

Lögð fram umsókn Steinþóru Guðmundsdóttur, f.h. Efnalaugarinnar Geysis ehf., kt. 550198-2239, dags. 14.05.2007, þar sem sótt er um leyfi til reksturs efnalaugar að Dalvegi 16c, Kópavogi. Endurnýjun.

Með vísun til ákvæða mengunarvarnareglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 12 ára.

2.1.15      Hamraborg 7, Kópavogi  -  efnalaug.

Lögð fram umsókn Arnmundar Jónassonar, f.h. Purgo ehf., kt. 470307-1290, dags. 14.05.2007, þar sem sótt er um leyfi til reksturs efnalaugar að Hamraborg 7, Kópavogi. Eigendaskipti.

Með vísun til ákvæða mengunarvarnareglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 12 ára.

2.1.16      Hagasmári 4, Kópavogi  -  tívolí og sælgætissala.

Lögð fram umsókn Evu Hrundar Willatzen, f.h. Taylors Tivoli Funland, kt. 610703-2320, dags. 07.05.2007, þar sem sótt er um tímabundið leyfi til reksturs tívolítækja og sölu sælgætis á lóð gömlu Zinkstöðvarinnar, áður Gokart að Hagasmára 4, Kópavogi. Ný starfsemi.

Með vísun til ákvæða matvæla- hollustuhátta- og mengunarvarnareglugerða er starfsleyfi samþykkt fyrir tímabundna starfsemi frá 29. júní til og með 6. ágúst nk. með fyrirvara um fullnægjandi úttekt heilbrigðisfulltrúa og að fyrir liggi að starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun lóðar.

2.1.17              Kársnesbraut 82a, Kópavogi  -  matvöruverslun.

Lögð fram umsókn Jóns Ásgeirssonar, f.h. Locum Export ehf., kt. 490606-1220, dags. 11.05.2007, þar sem sótt er um leyfi til reksturs matvöruverslunar, með lögheimili að Kársnesbraut 82a, Kópavogi. Vörugeymsla verður á hafnar- eða athafnasvæði. Ný starfsemi.

Með vísun til ákvæða matvælareglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 12 ára, að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa og með fyrirvara um að innra eftirliti verði komið á innan 2 mánaða.

2.1.18      Kópavogsbraut 77, Kópavogi  -  niðurrif á húsnæði.

Lögð fram sóknar Jóhanns Sigurðarsonar, kt. 210456-0079, dags. 09.05.2007, þar sem sótt er um leyfi til niðurrifs á húsi að Kópavogsbraut 77, Kópavogi. Tímabundin starfsemi.

Með vísun til ákvæða mengunarvarnareglugerðar er staðfesting starfsleyfis samþykkt. Leyfið gildir frá 09.05.2007–01.07.2007.

2.1.19              Neðstatröð 8, Kópavogur  -  hárgreiðslustofa og snyrtivöruverslun.

Lögð fram umsókn Kristleifs Gauta Torfasonar, f.h. Rakó ehf, kt. 461004-3180, dags. 16.05.2007, þar sem sótt er um leyfi til reksturs hárgreiðslustofu, og snyrtivöruverslunar að Neðstutröð 8, Kópavogi. Einnig sótt um leyfi til verslunar með matvæli. Eigendaskipti.

Með vísun til ákvæða matvæla- og hollustuháttareglugerða er starfsleyfi samþykkt til 12 ára, með fyrirvara um að innra eftirliti verði komið á innan 2 mánaða.

2.1.20      Salavegur 2, Kópavogur  -  samkomustaðar.

Lögð fram umsókn Elísabetar Gunnarsdóttur, f.h. EGI ehf, kt. 560603-2310, dags. 12.05.2007, þar sem sótt er um leyfi til reksturs félagsaðstöðu, kennsluhúsnæðis og samkomustaðar að Salavegi 2, Kópavogi. Ný starfsemi.

Með vísun til ákvæða hollustuháttareglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 12 ára, með fyrirvara um að innra eftirliti verði komið á innan 2 mánaða, að starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar og að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.

2.1.21      Smiðjuvegur 4a, Kópavogur  -  verslun með vörur sem innihalda varasöm efni.

Lögð fram umsókn Sigfúss Cassata, f.h. Kísils ehf., kt. 701294-7859, dags. 16.05.2007, þar sem sótt er um leyfi til reksturs verslunar með vörur sem innihalda varasöm efni að Smiðjuvegi 4a, Kópavogi. Einnig sótt um leyfi til verslunar með matvæli. Vörugeymsla verður á hafnar- eða athafnasvæði. Ný starfsemi.

Með vísun til ákvæða matvæla- og hollustuháttareglugerða er starfsleyfi samþykkt til 12 ára, að lokinni fullnægjandi úttekt heilbrigðisfulltrúa og með fyrirvara um að innra eftirliti verði komið á innan 2 mánaða og að starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar.

2.1.22      Suðurbraut 7, Kópavogur  -  matvöruverslun.

Lögð fram að umsókn Stephane Aubergy, f.h. Vínekrunnar Bourgogne ehf., kt.470205-0400, dags. 09.05.2007, þar sem sótt er um leyfi vegna innflutnings á matvælum, með lögheimili að Suðurbraut 7, Kópavogi. Vörugeymsla verður á hafnar- eða athafnasvæði. Ný starfsemi.

Með vísun til ákvæða matvælareglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 12 ára með fyrirvara um að innra eftirliti verði komið á innan 2 mánaða og að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.

2.1.23      Víkurhvarf 8, Kópavogur  -  verslun með vörur sem innihalda varasöm efni.

Lögð fram umsókn Lindu B. Gunnlaugsdóttur, f.h. A. Karlsson ehf., kt. 670976-0179, dags. 22.05.2007, þar sem sótt er um leyfi til reksturs verslunar með vörur sem innihalda varasöm efni að Víkurhvarfi 8, Kópavogi. Húshluti, allt húsið.  Ný starfsemi.

Bréf sent byggingafulltrúa varðandi samþykkta notkun húsnæðis dags. 22.05.2007.

Samkvæmt aðalskipulagi Kópavogs, 2000-2012, samþ. 23.04.2002, er starfsemin á stofnanasvæði.

Með vísun til ákvæða hollustuháttareglugerðar er starfsleyfi samþykkt til 12 ára, með fyrirvara um að innra eftirliti verði komið á innan 2 mánaða, að starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun fasteignar og að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.

2.2           Umsagnir.

Álftanes

2.2.1          Fálkastígur 4, Álftanes  -  heimagisting.

Lagt fram bréf sýslumannsins í Hafnarfirði, dags. 03.05.2007 þar sem óskað er umsagnar á umsókn Elsu Bjartmarsdóttur, kt. 131050-2409, um leyfi til að leigja út herbergi á heimili sínu, Fálkastíg 4, Álftanesi. Jákvæð umsögn samþykkt að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.

Hafnarfjörður

2.2.2          Brekkugata 19, Hafnarfjörður  -  veitingaleyfi.

Lagt fram bréf sýslumannsins í Hafnarfirði, dags. 02.05.2007 þar sem óskað er umsagnar á umsókn Einars Birgis Steinþórssonar, f.h. Flensborgarskóla, kt. 611175-1919, um veitingaleyfi fyrir Hamrasal í Flensborgarskóla, Brekkugötu 19, Hafnarfirði, tvö kvöld 1. júní til 3. júní n.k.

Jákvæð umsögn staðfest.

2.2.3                 Flatahraun 5a, Hafnarfjörður  -  veitingaleyfi.

Lagt fram bréf sýslumannsins í Hafnarfirði, dags. 15.05.2007 þar sem óskað er umsagnar á umsókn Jóhanns Sveinssonar, um veitingaleyfi fyrir Fjöreggið, Flatahrauni 5a, var áður Bæjarvídeó. Rekstraraðili er Fjöreggið ehf., kt. 640904-2670.

Frestað þar sem úttekt hefur ekki farið fram á úrbótum.

2.2.4          Fjarðargata 13-15, Hafnarfjörður  -  veitingaleyfi.

Lagt fram bréf sýslumannsins í Hafnarfirði, dags. 03.05.2007 þar sem óskað er umsagnar á umsókn Jóns Más Guðmundssonar um endurnýjun á veitingaleyfi fyrir veitingahúsið Café Aroma, Fjarðargötu 13-15, Hafnarfirði. Rekstraraðili er Café Aroma ehf., kt. 500702-2650.

Jákvæð umsögn samþykkt að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.

2.2.5          Hjallahraun 13, Hafnarfjörður  -  veitingaleyfi.

Lagt fram bréf sýslumannsins í Hafnarfirði, dags. 03.05.2007 þar sem óskað er umsagnar á umsókn Arnar Arnarsonar um endurnýjun á veitingaleyfi fyrir veitingahúsið Hróa Hött, Hjallahrauni 13, Hafnarfirði. Rekstraraðili er Hrói ehf., kt. 650599 - 2179.

Frestað þar sem úttekt hefur ekki farið fram á úrbótum.

2.2.6          Reykjavíkurvegur 62, Hafnarfjörður  -  veitingaleyfi, breyting á ábyrgðarmanni.

Lagt fram bréf sýslumannsins í Hafnarfirði, dags. 09.05.2007 þar sem óskað er umsagnar á umsókn Brynjars Ingimarssonar, um veitingaleyfi fyrir Papinos Pizza, kt. 460306-0860, Reykjavíkurvegi 62, Hafnarfirði.

Jákvæð umsögn samþykkt að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.

2.2.7          Reykjavíkurvegur 72, Hafnarfjörður  -  veitingaleyfi.

Lagt fram að nýju bréf sýslumannsins í Hafnarfirði, dags. 21.03.2007 þar sem óskað er umsagnar á umsókn Bárðar Halldórssonar, um veitingaleyfi fyrir Hótel Hafnarfjörð, kt. 450405-1590, Reykjavíkurvegi 72, Hafnarfirði.

Jákvæð umsögn samþykkt að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.

2.2.8          Reykjavíkurvegur 72, Hafnarfjörður  -  vínveitingaleyfi.

Lagt fram að nýju bréf skrifstofustjóra Hafnarfjarðarbæjar, dags. 22.03.2007 þar sem óskað er umsagnar á umsókn Bárðar Halldórssonar, um vínveitingaleyfi fyrir Hótel Hafnarfjörð, kt. 450405-1590, Reykjavíkurvegi 72, Hafnarfirði.

Jákvæð umsögn samþykkt að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.

2.2.9          Reykjavíkurvegur 74, Hafnarfjörður  -  veitingaleyfi.

Lagt fram bréf sýslumannsins í Hafnarfirði, dags. 02.05.2007 þar sem óskað er umsagnar á umsókn Stefáns Þórarinssonar um veitingaleyfi fyrir nýjan sal að Reykjavíkurvegi 74, Hafnarfirði. Rekstraraðili er Artes ehf., kt. 601004-3720.

Jákvæð umsögn samþykkt að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.

Kópavogur

2.2.10      Bæjarlind 14-16, Kópavogi  -  veitingaleyfi.

Lagt fram bréf sýslumannsins í Kópavogi, dags. 22.05.2007 þar sem óskað er umsagnar á umsókn Yupin Lumpa, f.h. Thailenska eldhússins ehf. kt. 600701-2150, til að reka veitingastofu að Bæjarlind 14-16, Kópavogi. (áður Mekong)

Jákvæð umsögn samþykkt að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.

2.2.11      Bæjarlind 14-16, Kópavogi  -  vínveitingaleyfi.

Lagt fram bréf bæjarlögmanns Kópavogs, dags. 24.05.2007 þar sem óskað er umsagnar á umsókn Yupin Lumpa, f.h. Thailenska eldhússins ehf. kt. 600701-2150, um áfengisveitingar á veitingastaðnum Krúa Thai að Bæjarlind 14-16, Kópavogi. (áður Mekong)

Jákvæð umsögn með tilliti til sviðmóts samþykkt að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.

2.2.12      Dalvegur 16c, Kópavogi  -  vínveitingaleyfi.

Lagt fram bréf bæjarlögmanns Kópavogs, dags. 24.05.2007 þar sem óskað er umsagnar á umsókn Gunnars Schevings Thorsteinssonar, kt. 130447-2609 um áfengisveitingar í söluturninum Smára Dalvegi 16c, Kópavog.

Heilbrigðisnefnd vekur athygli á að sótt er um leyfi til áfengisveitinga í söluturni. Upplýst er að bygginganefnd Kópavogs hafi samþykkt breytingar á húsnæðinu í veitingastað. Samkvæmt 13. gr. laga nr. 75/1998 verður aðeins veitt leyfi til áfengisveitinga á veitingastað og skal heilbrigðisnefnd meta innréttingar og annað svipmót veitingarekstrar. Afgreiðslu umsagnar er frestað þar til húsnæðið er tilbúið til úttektar.

2.2.13      Engihjalli 8, Kópavogi  -  vínveitingaleyfi.

Lagt fram bréf bæjarlögmanns Kópavogs, dags. 15.05.2007 þar sem óskað er umsagnar á umsókn Kristins Magnússonar f.h. Sorada ehf., kt. 610307-1320 um almennar áfengisveitingar á veitingastaðnum Hercules að Engihjalla 8, Kópavog.

Jákvæð umsögn staðfest.

2.2.14      Dalsmári 5, Kópavogi  -  skemmtanaleyfi.

Lagt fram að bréf sýslumannsins í Kópavogi, dags. 04.05.2007 þar sem óskað er umsagnar á umsókn Svavars Jósefssonar, f.h., Knattspyrnufélagsins Breiðabliks, kt. 410284-1389 um skemmtanaleyfi í íþróttahúsinu Smáranum að Dalsmára 5, Kópavogi, 5. maí 2007.

Jákvæð umsögn staðfest.

2.2.15      Hamraborg 11, Kópavogi  -  veitingaleyfi.

Lagt fram bréf sýslumannsins í Kópavogi, dags. 27.04.2007 þar sem óskað er umsagnar á umsókn Sigríðar Samsonardóttur, f.h. Catalinu ehf., kt. 460598-3709, til að reka veitingastaðinn Catalinu að Hamraborg 11 í Kópavogi. Undanfarið hefur staðið yfir stækkun á staðnum Jákvæð umsögn samþykkt að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.

2.2.16      Hlíðasmári 3, Kópavogi  -  vínveitingaleyfi.

Lagt fram bréf bæjarlögmanns Kópavogs, dags. 10.05.2007 þar sem óskað er umsagnar á umsókn Karls Georgs Ragnarssonar, f.h. Barkabús ehf., kt. 701294-2119, um almennar áfengisveitingar í veitingastofunni Amokka, Hlíðasmára 3 í Kópavogi.

Jákvæð umsögn samþykkt lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.

2.2.17      Núpalind 1, Kópavogi  -  veitingaleyfi.

Lagt fram bréf sýslumannsins í Kópavogi, dags. 22.05.2007 þar sem óskað er umsagnar á umsókn Brynjars Ingimarssonar, f.h. Papinos pizza ehf. kt. 460306-0860, til að reka veitingastofu að Núpalind 1, Kópavogi.

Jákvæð umsögn samþykkt að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.

2.3           Tóbakssöluleyfi

Hafnarfjörður

2.3.1          Breiðamýri, Álftanes  -  veitingastaður.

Lögð fram umsókn Óskars Gunnarssonar, f.h. Breiðumýri ehf., kt. 570407-2010, dags. 04.05.2007, þar sem sótt er um leyfi til tóbakssölu að Breiðumýri, Álftanesi. Eigendaskipti.

Mælt með samþykkt leyfisveitingar að lokinni úttekt heilbrigðisfulltrúa.

3                    Gildistími starfsleyfa

Rætt um gildistíma starfsleyfa sem heilbrigðisnefnd veitir.

Samþykkt að starfsleyfi verði almennt veitt til 12 ára. Þegar fullnægjandi, húsnæði, aðstaða, frágangur eða mengunarvarnabúnaður er ekki til staðar eða hætta á að starfsemi verði ónæðissöm verður frávik frá þessari almennu reglu.

4                    Skipulagsmál

4.1           Kjóavellir – Deiliskipulag í Garðabæ og Kópavogi

Lagt fram að nýju erindi Landforms ehf. dags. 23. apríl 2007 f.h. Garðabæjar, ásamt uppdrætti sem er í vinnslu og drögum að skilmálum

Heilbrigðisnefnd tekur jákvæða afstöðu til málsins og leggur áherslu á að vegna nálægðar við íbúðarbyggð verða boðaðar mengunarvarnir að ná bæði til eldri og nýrra hesthúsa.

4.2           Vatnsendi – Heimsendi.  Breytt deiliskipulag, Kópavogi

Lagt fram að nýju erindi Smára Smárasonar, skipulagsstjóra f.h. Kópavogsbæjar, dags. 22. mars 2007 varðandi breytt deiliskipulag “Vatnsendi – Heimsendi.”

Heilbrigðisnefnd tekur jákvætt í erindið með vísun til liðar 4.1.

4.3           Breyting á hafnarsvæði á Kársnesi, Kópavogsbæ

Lagt fram erindi Skipulagsstofnunar dags. 24. maí 2007 þar sem óskað er umsagnar um tilkynningu frá VGK – Hönnun f.h. Kópavogsbæjar dags. 18. maí 2007, um matsskyldu ofangreindrar framkvæmdar skv. 6. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum n. 106/2000 m.s.b.

Heilbrigðisnefnd telur að svara eigi betur hvernig staðið verði að framkvæmdum og vöktun til að koma í veg fyrir úrgangslosun á svæðinu á framkvæmdatíma.

5                    Malbikunarstöð

Lagt fram erindi Hlaðbæjar – Colas hf. dags. 15. maí 2007 þar sem farið er fram á endurupptöku afgreiðslu heilbrigðisnefndar frá 7. maí 2007 á starfsleyfisumsókn fyrirtækisins fyrir malbikunarstöð með breytilega staðsetningu á lóðinni að Hringhellu 6, Hafnarfirði.

Heilbrigðisnefnd samþykir að taka upp fyrri afgreiðslu í ljósi framlagðra gagna.  Formanni og framkvæmdastjóra falið að ganga frá starfsleyfi.

Birna Ólafsdóttir óskar bókað að hún telji að heilbrigðisnefnd eigi að standa við fyrri afgreiðslu.

6                    Hárgreiðslustofa – Undanþága frá starfsleyfi

Lagt fram erindi Umhverfisráðuneytis frá 18. maí 2007 þar sem óskað er umsagnar um erindi Sveins Guðmundssonar hdl. hjá Juralis ehf. f.h. Ríkeyjar Pétursdóttur, dags. 14. maí 2007, þar sem sótt er um undanþágu frá starfsleyfi vegna reksturs hárgreiðslu í bílskúr við heimili að Lyngheiði 21 Kópavogi.

Heilbrigðisnefnd getur fallist á að undanþága frá umbeðnu ákvæði verði veitt enda er um minni háttar rekstur að ræða sem á að geta uppfyllt lög og reglur um hollustuhætti og mengunarvarnir að öðru leyti.

7                    Fundargerð framkvæmdastjórnar um vatnsvernd

Lögð fram fundargerð framkvæmdastjórnar um vatnsvernd á höfuðborgarsvæðinu frá 24. maí 2007.

8                    Íbúðir í atvinnuhúsnæði

Lagt fram að nýju erindi Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 22. febrúar 2007 um ólöglegar íbúðir í atvinnuhúsnæði á starfssvæði Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.

Kynnt nýsamþykkt lög um breytingu á lögum um lögheimili nr. 21/1990 og lögum um brunavarnir nr. 75/2000.

Umræðu frestað til næsta fundar.

9                    Umgengni um lóðir

Lagður fram að nýju verkefnalisti þar sem komið getur til þess að knýja þurfi á um úrbætur með þvingunarúrræðum sbr. ákvæði 26. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir.

Heilbrigðisnefnd felur heilbrigðiseftirlitinu að fylgja málum eftir með nauðsynlegum ráðstöfunum.

Umræðu frestað til næsta fundar.

10                Vorfundur Umhverfisstofnunar, Umhverfisráðuneytis og heilbrigðiseftirlits.

Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir árlegum fundi framkvæmdastjóra heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga, Umhverfisstofnunar og Umhverfisráðuneytis dagana 9 – 10. maí sl.

11    Álverið í Straumsvík, Hafnarfirði

Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir fundi þann 23. maí 2007 sem haldinn var skv. grein 4.10 í starfsleyfi ISAL Fundinn sátu  fulltrúar ÍSAL - Alcan á Íslandi hf. Umhverfisstofnunar og heilbrigðiseftirlits.

Varðandi vöktunarmælingar kom fram að Alcan á Íslandi hf. reiknar með að ný loftgæðastöð á Hvaleyrarholti verði komin í rekstur í júlí 2007.  Fyrirtækið mun þá koma í fyrsta sinn að mælingum í andrúmslofti á flúor- og brennisteinssamböndum í íbúðabyggðinni.  Þessi nýja mælistöð mun leysa af hólmi eldri stöð sem staðsett hefur verið við Leikskólann Vesturkot. Hafnarfjarðarbær hóf mælingar á brennisteinsdíoxíði á svæðinu í október 1989 og á flúorsamböndum sumarið 1990. Stóðu þær mælingar yfir til ársloka árið 1990. Mælingarnar voru síðan teknar upp að nýju árið 1994 og var þá bætt við svifryksmælingum. Mælingar hafa verið frá þeim tíma samvinnuverkefni Hafnarfjarðarbæjar og Hollustuverndar ríkisins (nú Umhverfisstofnunar) en ISAL – Alcan á Íslandi hf. kemur nú til samvinnu um mælingarnar í fyrsta sinn.

Heilbrigðisnefnd áréttar fyrri samþykkt um að stefna beri að rekstri færanlegrar mælistöðvar í umdæmi nefndarinnar og samþykkir að senda Umhverfisstofnun erindi þar að lútandi.

12    Önnur mál

12.1       Sala á tóbaki til unglinga

Kynntar kvartanir sem borist hafa í framhaldi af könnun forvarnadeildar Hafnarfjarðar á tóbakssölu til unglinga.

Umræðu vísað til næsta fundar.

12.2       Ársskýrsla Sorpu 2006

Lögð fram til kynningar ársskýrsla Sorpu fyrir árið 2006

12.3       Tilflutningur verkefna milli ráðuneyta

Rætt um boðaðar breytingar hjá stjórnarráði Íslands um að matvælaeftirlit flytjist frá Umhverfisráðuneyti til Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis.

12.4       Breytinga á tóbaksvarnalögum

Rætt um framkvæmd eftirlits í framhaldi af breytingu á tóbaksvarnalögum sem fela það í sér að veitinga- og skemmtistaðir mega ekki leyfa reykingar í þjónusturými sínu eftir 1. júní 2007.

 

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl.19:20

 

Júlíus K. Björnsson                                                                                Birna Ólafsdóttir

 

 

Jón Bjarni Þorsteinsson                                                              Steingrímur Steingrímsson

 

 

 

Halla Halldórsdóttir                                                                                 Gestur Pétursson

 

 

 

Sigurgeir Ólafsson