Ársskýrsla Heilbrigðiseftirlits
Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis 2006
Heilbrigðisnefnd
Heilbrigðisnefnd var þannig skipuð til
sveitarstjórnakosninga:
Aðalfulltrúar:
Andrés
Pétursson varaformaður
Loftur
Þ. Pétursson
Varafulltrúar:
Hafsteinn Þórðarson
Ólafía
Ragnarsdóttir
Sigurveig
Sæmundsdóttir
Steingrímur
Steingrímsson
Páll
Árnason
Guðmundur
Unnþór Stefánsson
Eftir
sveitarstjórnarkosningar var heilbrigðisnefnd skipuð á eftirfarandi hátt:
Aðalfulltrúar:
Halla
Halldórsdóttir varaformaður
Steingrímur
Steingrímsson
Varafulltrúar:
Sævar Helgason
Margrét
Halldórsdóttir
Auður
Hallgrímsdóttir
Svala
Heiðberg
Guðrún
Þóra Magnúsdóttir
Brynja
Valsdóttir
Heilbrigðiseftirlit tekur til hollustuhátta og
mengunarvarna og ber heilbrigðisnefnd að vinna að bættu heilbrigðiseftirliti á
svæði sínu, annast fræðslu fyrir almenning og efla samvinnu við önnur yfirvöld
og aðila sem vinna að þessum málum. Með
vísun til þessara markmiða er eftirlit, vöktun og fræðsla þeir grunnþættir sem
unnið er út frá í þverfaglegu starfi stofnunarinnar. Fjárhagsáætlun og eftirlitsáætlun mynda ramma
um starfsemi hvers árs en jafnframt er unnið að viðfangsefnum sem
heilbrigðisnefnd ákveður til lengri eða skemmri tíma.
Heilbrigðisnefnd hélt 12 (13) fundi á árinu. Innan sviga eru tölur frá 2005. Samkvæmt fundagerðum komu 503 (534) dagskrárliðir til umfjöllunar. Mörg mál tengjast fleiri en einum málaflokk
og koma til umræðu á fleiri en einum fundi.
Í eftirfarandi töflu hafa dagsskrárliðir verið greindir
samkvæmt fjórum helstu málefnaflokkum sem starfsemi heilbrigðiseftirlitsins
tekur til. Það eru helst starfsleyfi og
umsagnir sem flokkast í fleiri en einn málefnaflokk. Sjá nánar fylgiskjal.
|
Almenn mál um
hollustuhætti, málefni sem tengjast hollustuháttareglugerð, snyrtivörum,
varasömum efnum, gæludýrahaldi, tóbaksvörnum
o.þ.h. |
291 (321) |
|
Matvælamálefni |
209 (100) |
|
Umhverfismál |
142 (149) |
|
Rekstur
heilbrigðiseftirlitsins og stjórnsýsla |
50 (37) |
Í lok árs 2006 voru á skrá heilbrigðiseftirlitsins 1265 staðir eða
starfsemi sem á að lúta reglubundnu eftirliti og í eftirlitsáætlun ársins var
reiknað með alls 1286 eftirlitsferðum tengdum slíkum rekstri. Farið var í 1274 eftirlitsferðir á árinu til
þessara 1265 fyrirtækja og stofnana. Til viðbótar voru farnar 153 eftirlitsferðir
vegna tilfallandi eftirlits og verkefna til eftirlitsstaða sem eru á skrá en
lúta ekki reglubundnu eftirliti. Auk
þess var farið í 151 (150) eftirlitsferðir á árinu þar sem í ljós kom að
starfsemin var annað hvort hætt, starfsemin hafði breyst á þann veg að eftirlit
ætti ekki lengur við eða tilkynnt var um síðar á árinu að starfseminni væri
hætt. Heildarfjöldi eftirlitsferða vegna
tiltekinnar starfsemi var alls 1578 á árinu.
Starfsleyfi í árslok í gildi hjá virkri starfsemi voru 1013 (1089) og 153 (135) starfsleyfi til viðbótar voru í vinnslu.
Jafngildir það að 92% (91%) starfsleyfisskyldrar starfsemi væri með leyfi eða
starfsleyfi í vinnslu. Markmiði um að
yfir 95% væri með starfsleyfi eða starfsleyfi í vinnslu var því ekki náð.
Matvælaeftirlit
Um málaflokkinn gilda lög um matvæli nr. 93/1995
með síðari breytingum, og reglugerðir settar samkvæmt þeim. Tilgangur laganna er að tryggja, svo sem
kostur er, gæði, öryggi og hollustu matvæla og að merkingar og aðrar
upplýsingar um þau séu réttar og fullnægjandi.
Alls voru 110 umsóknir um starfsleyfi teknar til
umfjöllunar. Í sumum tilvikum verður starfsleyfið einnig að taka til ákvæða í
öðrum lögum og reglugerðum en matvælalögum:
44 (28) umsóknir fyrir
nýja starfsemi
66 (57) umsóknir vegna endurnýjunar eða breytinga
á rekstri.
Reglugerð um
matvælaeftirlit og hollustuhætti við framleiðslu og dreifingu matvæla. Fjöldi
umsókna um starfsleyfi flokkuð eftir starfsemi og staðsetningu 2006.
|
|
Álftanes |
Garðabær |
Hafnarfjörður |
Kópavogur |
Alls. |
|
Vinnslur |
|
1 |
2 |
3 |
6 |
|
Verslanir |
|
3 |
4 |
12 |
19 |
|
Veitingastaðir |
|
2 |
19 |
21 |
42 |
|
Mötuneyti |
2 |
4 |
13 |
19 |
38 |
|
Annað |
|
|
1 |
4 |
5 |
|
Alls |
2 |
10 |
39 |
59 |
110 |
Umsögn var gerð til Alþingis vegna lagafrumvarps
um matvælarannsóknir.
Umsögn var veitt til Umhverfisstofnunar um
framkvæmd matvælaeftirlits og um lista yfir matvælafyrirtæki sem háð skulu
starfsleyfi.
Veitingastaðir eru flokkaðir sem matvælafyrirtæki
en slík starfsemi á að hafa starfsleyfi samkvæmt hollustuháttareglugerð og
matvælalögum:
25 (15) beiðnir um umsagnir bárust vegna umsókna
um leyfi til áfengisveitinga.
52 (26) beiðnir um umsagnir bárust vegna umsókna
um skemmtana- og veitingaleyfi.
Heilbrigðisfulltrúi
hefur starfað í samstarfshópi heilbrigðiseftirlitssvæðanna og
Umhverfisstofnunar um matvælaeftirlit. Í
samstarfshópnum er rædd framkvæmd og skipulagning eftirlitsverkefna ásamt
samræmingu matvælaeftirlits milli eftirlitssvæða.
Hópurinn kom saman
þrisvar á árinu. Auk þess stóð
Umhverfisstofnun fyrir tveimur fræðslufundum með heilbrigðiseftirlitinu um
væntanlegar reglur samkvæmt EES samningi.
Það hefur verið markmið að taka virkan þátt í
samræmdum eftirlitsverkefnum sem hægt er að tengja starfsemi í umdæminu.
Samstarfsverkefni sem unnið var að á árinu voru
eftirfarandi:
-
Örveruástand fiskafurða, september- október 2006.
-
Sjálfsafgreiðsla í smásöluverslunum 2006. Könnun á
hreinlæti í og við sjálfsafgreiðslustaði/-standa og búnað.
-
Úttekt á innihaldsefnum, merkingu og markaðssetningu
fæðubótarefna, mars – apríl 2006.
-
Örveruástand á unnum kjötvörum 2006.
-
Örverufræðilegt ástand á osta 2006
Skýrslur vegna þessara verkefna hafa verið teknar
saman og eru birtar á heimasíðu Umhverfisstofnunar. Ekki var tekið þátt í tveimur verkefnum
haustið 2006.
Sérstök verkefni vegna matvælaeftirlits í umdæminu
á árinu voru:
-
Þrifasýni í eldhúsum leikskóla og
hjúkrunarheimila.
-
Örveruástand í ís úr vél yfir sumarmánuði.
Fjöldi matvælafyrirtækja á skrá í lok árs 2006
voru 435 (370). Eftirlitsferðir í
fyrirtæki sem framleiða eða dreifa matvöru voru í eftirlitsáætlun ársins 768
(714). Skráðar eftirlitsferðir urðu alls
697 (748) samkvæmt flokkun í eftirfarandi töflu. Eftirlitsferðir í fyrirtæki og stofnanir sem
hættu rekstri á árinu eru ekki meðtaldar í þessum tölum. Vakin er athygli á að eftirlit vegna
tóbaksvarna, mengunarvarna og sölu á vörum sem innihalda hættuleg efni fer
samhliða fram hjá þeim fyrirtækjum þar sem það á við.
Matvælareglugerðir
Fjöldi staða 31.12. 2006, áætlaður fjöldi
eftirlitsferða og skráðar eftirlitsferðir.
|
|
Framleiðsla, pökkun |
Heildsala, flutningur |
Stór-eldhús |
Smásala |
Annað |
Vatns-veitur |
Alls |
|
Fj. staða
31.12.2006 |
50 |
29 |
247 |
84 |
18 |
7 |
435 |
|
Fj. áætlaðra
eftirlitsferða |
76 |
23 |
415 |
186 |
14 |
45 |
759 |
|
Fj.
eftirlitsferða |
88 |
23 |
330 |
206 |
8 |
42 |
697 |
Í liðnum annað eru fjölnota íþróttahús, minniháttar matvæladreifing í
sérvöruverslunum o.þ.h.
Kvartanir og ábendingar frá almenningi vegna
matvæla voru 51(49) á árinu. Einkum voru
kvartanirnar tengdar meðferð matvæla 12 (18), hugsanlegum matarsýkingum 5 (6),
innihaldsmerkingum 4 (4) og hreinlæti 23
(13).
Þar sem tóbakssala fer aðallega fram í verslunum
og söluturnum sem selja matvæli og í veitingahúsum er gerð grein fyrir þeim
þætti hér í skýrslunni. Endurnýjuð voru
10 (43) leyfi til smásölu á tóbaki samkvæmt ákvæðum tóbaksvarnalaga og veitt 6
(5) ný tóbakssöluleyfi. Þann 31.12.2006
voru smásölustaðir tóbaks alls 71 (70) í umdæminu. Samkomustaðir 21 og verslanir 50.
Á árinu 2006 voru 7 (7) kvartanir skráðar vegna
tóbaksmálefna. Í 5 (2) tilvikum var
kvartað undan reykingum en 2 (5) kvartanir tengdust annars vegar sölu til
unglinga eða að ungmenni væru látin afgreiða tóbak. Við könnun fjölskyldusviðs Hafnarfjarðarbæjar
kom fram að unglingum var selt tóbak hjá 7 útsölustöðum og var haft samband við
þá söluaðila um úrbætur.
Hollustuhættir
Starfleyfisumsóknir þar sem eftirlit byggist á
ákvæðum hollustuháttareglugerðar voru 152.
Í sumum tilvikum er í starfsleyfi einnig vísað til annarra laga og
reglugerða:
56 (74) umsóknir fyrir nýja starfsemi.
96 (100) umsóknir vegna endurnýjunar eða breytinga
á rekstri.
Meðhöndlun og dreifing matvæla á sér stað í sumum
fyrirtækjum sem flokkast hér s.s. í skólum, leikskólum, sjúkrahúsum,
vistheimilum og félagsmiðstöðvum.
Veitingastaðir sem þurfa að hafa starfsleyfi samkvæmt
hollustuháttareglugerð og matvælalögum eru einnig flokkaðir sem
matvælafyrirtæki. Þar sem tóbakssala fer
nær eingöngu fram í veitingahúsum og verslunum sem selja matvæli er gerð grein
fyrir þeim þætti í kafla um matvæli.
Vegna kröfu um mengunarvarnabúnað við tannlæknastóla eru tannlæknastofur
flokkaðar bæði vegna hollustuhátta og mengunarvarna.
Hollustuháttareglugerð
Fjöldi umsókna um starfsleyfi, flokkuð eftir
starfsemi og staðsetningu 2006.
|
|
Álftanes |
Garðabær |
Hafnarfjörður |
Kópavogur |
Alls. |
|
Gisti-,
veitinga- og samkomustaðir |
1 |
|
23 |
22 |
46 |
|
Snyrtistofur hvers konar |
|
2 |
13 |
11 |
26 |
|
Heilbrigðis- og
meðferðarstofn. |
|
|
6 |
8 |
14 |
|
Daggæsla,
leikvellir, skólar, leikskólar kennslustaðir |
1 |
5 |
7 |
18 |
31 |
|
Íþróttastarfsemi |
1 |
|
2 |
1 |
4 |
|
Verslun |
|
7 |
8 |
13 |
28 |
|
Annað |
|
1 |
2 |
|
3 |
|
Alls |
3 |
15 |
61 |
73 |
152 |
Umsögn var gerð til Alþingis vegna lagafrumvarps
um tóbaksvarnir, reykingabann.
Umhverfisráðuneytis voru veittar 8 umsagnir. Í 7 tilvikum vegna beiðna um undanþágu frá
ákvæðum reglugerðar um hollustuhætti sem bannar að fara með hund inn á
meðferðastofnanir og í einu tilviki vegna beiðni um undanþágu frá því að setja upp
salernisaðstöðu aðgengilega hreyfihömluðum í hjólastól.
Veitt var umsögn til úrskurðarnefndar samkvæmt lögum um hollustuhætti og
mengunarvarnir vegna stjórnsýslukæru vegna meints reksturs hárgreiðslustofu án
starfsleyfis.
Umsagnir voru gerð til Hafnarfjarðarbæjar um drög
að lögreglusamþykkt og tillögu að reglum um málsmeðferð við veitingu leyfa til áfengisveitinga.
Veittar voru þrjár
umsagnir vegna gistileyfa til Sýslumannsins í Hafnarfirði.
Almennar kvartanir voru 308 (268). Flestar eða 194 (161) voru vegna farartækja
sem skilin voru eftir í misjöfnu ástandi á almannafæri og voru nálægum íbúum
til ama eða leiðinda.
Starfsmenn þjónustumiðstöðva sveitarfélaganna hafa
jafnframt afskipti af nokkrum hundruðum bifreiða án númera. Á árinu voru skráð
slík afskipti af 845 (750) bifreiðum o.þ.h. hlutum sem skildir hafa verið eftir
á almannafæri. Sveitarfélögin neyddust
til að láta fjarlægja 262 bifreiðar sem skyldar hafa verið eftir í hirðuleysi á
almannafæri.
Einnig bar nokkuð á kvörtunum undan slæmri ásýnd
lóða eða í 35 (45) tilvikum og vegna sorps og úrgangsmála 44 (36)
kvartanir. Í tveimur síðast töldu
flokkunum er margar kvartanir vegna starfsemi sem að fellur ekki undir almennt
eftirlit heilbrigðisnefndar að öðru leyti.
11 kvartanir bárust vegna óþæginda vegna bifreiða á númerum en slík mál
falla sjaldnast að verksviði heilbrigðiseftirlitsins
Um áramótin 2006-2007 voru á skrá 1571(1459)
hundur í umdæmi heilbrigðisnefndar. Um
fjölgun hunda er að ræða frá árinu áður en hafa verður í huga að leiðréttingar
berast oftast upp úr áramótum um afskráningar.
Kvörtunum vegna hunda og hundahalds er haldið aðgreindum frá öðrum
kvörtunum vegna dýrahalds og hollustuháttamála.
Alls bárust 243 (177) kvartanir vegna hunda á árinu. Aðal umkvörtunarefnið var í flestum tilvikum
lausaganga hunds eða í 147 (125) tilvikum.
8 (12) mál voru til meðferðar á árinu vegna árásar hunds á fólk þar sem
lögregluskýrsla hafði verið gerð um atvik.
Kvartanir vegna hollustuháttamála voru 177
(167). Flestar voru vegna dýrahalds eða
flækingsdýra (47),
meindýra 31 (23), varasamra efna 33 (7), þá vegna óþæginda frá eða óþrifnaðar
við rekstur fyrirtækja eða þjónustu 17 (29) og íbúðarhúsnæðis 12 (11).
Heilbrigðisfulltrúi sótt námskeið í Kaupmannahöfn um eftirlit með
sundlaugum og rekstri opinberra baðstaða og fór og kynnti sér framkvæmd
eftirlits með leiklóðum hjá sveitarfélaginu Helsingør.
Á vegum Umhverfisstofnunar og heilbrigðiseftirlits
sveitarfélaga störfuðu tveir vinnuhópar á sviði hollustuháttamála. Hollustuháttahópur og efnavöruhópur. Heilbrigðiseftirlitið leggur til einn
starfmann í hvorn hóp.
Í vinnuhóp um hollustuhætti eru unnar tillögur að
samræmdum verklagsreglum, leiðbeiningum og starfsleyfisskilyrðum. Hópurinn kemur saman að jafnaði mánaðarlega
fyrir utan sumarið. Jafnframt hefur starfshópurinn
árlega kynnisferð til að samræmingar á framkvæmd eftirlits milli svæða.
Í efnavöruhóp er rætt um eftirlit með eiturefnum
og hættulegum efnum og vörum sem innihalda slík efni og ýmis framkvæmd og
skipulagning samstarfs- og eftirlitsverkefna á þeim málum undirbúin. Jafnframt er af hálfu hópsins tekið þátt í
norrænu samstarfi vegna eftirlits með þessum málum. Efnavöruhópurinn kemur saman 8 til 10 sinnum
á ári.
Það hefur verið markmið að taka virkan þátt í
samræmdum eftirlitsverkefnum sem hægt er að tengja starfsemi í umdæminu.
Samstarfsverkefni sem unnið var að á árinu á vegum
Umhverfisstofnunar og eftirlitssvæðanna voru eftirfarandi:
-
Könnun
í grunnskólum á vanmerktum efnavörum,
-
Sjálfsafgreiðsla
í smásöluverslunum 2006. Könnun á hreinlæti í og við sjálfsafgreiðslustaði og
búnað.
Auk þess var samstarf á höfuðborgarsvæðinu um verkefni tengt gæðum og
framkvæmd sótthreinsunar í hitaofnum og gufuofnum, hjá nokkrum hópum fyrirtækja
í heilbrigðisþjónustu og hjá fótaðgerðastofum.
Búfjáreftirlit samkvæmt ákvæðum laga um búfjárhald
er í umsjón heilbrigðiseftirlitsins. Við
talningu búfjár samkvæmt 12. gr. búfjárhalds nr. 103/2002 voru vorið 2006,
rúmlega 12300 (12300) alifuglar, 4042 (3878) hross og 227 (333) sauðfjár.
Tíðni reglubundins eftirlits til fyrirtækja í þessum flokki er algengust
ein eftirlitferð á ári. Til fyrirtækja í
nokkrum flokkum eru þó áætlaðar fleiri ferðir og allt að fimm eftirlitsferðir
til stórra sundstaða. Einnig er
eftirlitstíðni ein eftirlitsferð á tveggja til fjögurra ára fresti í nokkrum
tilvikum. Eftirlitsferðir vegna
fyrirtækja og stofnana í þessum flokki voru áætlaðar í eftirlitsáætlun (531).
Skráðar eftirlitsferðir urðu alls 352 (567) samkvæmt eftirfarandi
flokkun. Eftirlitsferðir í fyrirtæki og stofnanir
sem hættu rekstri á árinu eru ekki meðtaldar.
Fjöldi staða 31.12.2006, áætlaður fjöldi
eftirlitsferða og skráðar eftirlitsferðir.
|
Fegrunar- og snyrti-starfsemi |
Verslun, varasöm efni |
Gisti-starfsemi |
Fræðsla-, íþróttir og menning |
Heilbrigðis-þjónusta |
Annað |
Alls |
|
|
Fj. staða 31.12.2006 |
113 |
70 |
12 |
156 |
96 |
26 |
473 |
|
Fj. áætlaðra eftirlitsferða |
75 |
44 |
18 |
194 |
56 |
47 |
468 |
|
Fj. eftirlitsferða |
47 |
22 |
13 |
183 |
81 |
6 |
352 |
Til fegrunar og
snyrtistarfsemi telst hársnyrting, snyrtistofur, nudd, ljósastofur, húðflúr og
húðgötun.
Heildsala og
smásala á vörum sem innihalda eiturefni og hættuleg efni og er flokkuð sem
verslun með merkingaskylda efnavöru.
Matvöruverslanir sem selja slíkar vörur eru aðeins skráðar í töflu um
matvælaeftirlit.
Gististaðir,
skólar og félagsaðstaða þar sem matvælum er dreift flokkast bæði m.t.t.
hollustuháttaeftirlits og matvælaeftirlits.
Læknastofur,
heilsugæsla, sjúkrahús, sjúkraþjálfun, endurhæfing, fótaaðgerðastofur og
tannlæknastofur eru skráðar sem heilbrigðisþjónusta.
Veitingastaðir og
mötuneyti eru flokkaðir sem matvælafyrirtæki.
Umhverfiseftirlit
Alls 89 (97) umsókn um starfsleyfi var til meðferðar,
þar sem eftirlit byggist á ákvæðum í mengunarvarnareglugerðum. Í sumum tilvikum er í starfsleyfi einnig
vísað til annarra laga og reglugerða:
53 (53) umsóknir fyrir nýjar starfsemi.
26 (36) umsóknir vegna endurnýjunar.
10 (8) fyrir tímabundna starfsemi.
Reglugerð um
starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun og
reglugerð um varnir gegn olíumengun frá starfsemi í landi. Fjöldi umsókna um starfsleyfi flokkuð eftir
starfsemi og staðsetningu 2006.
|
|
Álftanes |
Garðabær |
Hafnarfjörður |
Kópavogur |
Alls. |
|
Bílgrein |
|
5 |
16 |
12 |
33 |
|
Efnaiðnaður,
prentun og framköllun |
|
1 |
7 |
3 |
11 |
|
Fiskvinnsla |
|
|
3 |
|
3 |
|
Málmiðnaður og
verkstæði |
|
3 |
9 |
2 |
14 |
|
Trésmíðaverkstæði |
|
|
1 |
3 |
4 |
|
Tannlæknastofur |
|
|
1 |
3 |
4 |
|
Jarðefna,
steinvinnsla og einingaverksmiðja |
|
0 |
|
1 |
1 |
|
Annað |
|
|
7 |
2 |
9 |
|
Alls |
|
9 |
44 |
26 |
79 |
|
Tímabundin
starfsemi* |
|
3 |
2 |
5 |
10* |
*Í
umboði nefndarinnar voru auk þess veitt nokkur leyfi fyrir brennur,
flugeldasýningu, niðurrif á húsum og smærri framkvæmdir.
Umsagnir voru gerðar til:
Umhverfisráðuneytis
um drög að reglugerð um varnir gegn mengun hafs og stranda.
Kópavogsbæjar um:
Hafnarfjarðarbæjar
um:
Garðabæjar um:
Sveitarfélagsins
Álftaness um:
Skipulagsstofnunar
vegna undirbúnings eða mats á umhverfisáhrifum fyrir:
Sýslumannsins í
Hafnarfirði vegna fælinga á mávum, tveggja bílaleigu fyrirtækja og einnar
bílasölu.
Heilbrigðisnefnd fór í vettvangsferð til móttökustöðvar
Sorpu bs í Gufunesi og á förgunarstað byggðasamlagsins í Álfsnesi.
Lóðahreinsun á einstökum lóðum og svæðum er stöðugt verkefni sem
skilar oftast tímabundnum árangri. Fyrri
reynsla hefur sýnt að slæm umgengni á athafnasvæðum hefur sterka tilhneigingu
til að leita aftur í sama farið. Ástæður
þessa hafa oft verið skýrðar með óljósri tilfinningu umráðaaðila fyrir ábyrgð
sinni og hægagangi uppbyggingu og frágangi atvinnusvæða.
Framkvæmdastjórn um vatnsvernd á
höfuðborgarsvæðinu hélt 8 fundi á árinu 2006 og tók fyrir 24 mál. Um er að ræða bæði erindi og samræmingu á
störfum eftirlits. Framkvæmdastjórnin
gerir skýrslu um störf sín. Fundagerðir
framkvæmdastjórnarinnar eru teknar til umræðu á fundum heilbrigðisnefndar.
Heilbrigðisfulltrúi sótti fimmtu norræðnu
neysluvatnsráðstefnuna sem haldin var í Reykjavík 8. til 10. júní 2006.
Eftirtalin vöktunarverkefni voru í gangi á árinu:
- mælingar á mengun í skurðum, lækjum og vötnum til undirbúnings flokkun
ferskvatns sbr. ákvæði reglugerðar nr. 796/1999 og til að finna hugsanlegar
rangtengingar fráveitu.
- mælingar á áhrifum mengunar skólps við og á ströndum.
- mælingar á loftgæðum á Hvaleyrarholti.
Þar eru gerðar sólarhringsmælingar á brennisteinstvíildi, flúor og ryki.
Lokið var mengunarflokkun Urriðakotsvatns og efri hluta Stórakrókslækjar í
Garðabæ og birt um verkefnið skýrsla.
Með vísun til ákvæða reglugerðar um hávaða nr.
933/1999, með síðari breytingum var fjallað þrisvar um heimild til notkunar
fráviks frá almennum viðmiðunarreglum fyrir nýbyggingarsvæði í eldri byggð eða
endurnýjun byggðar sem fyrir er.
Óskir aukast frá almenningi um nauðsyn þess að
bregðast við hávaða frá starfsemi og umferð.
Á síðast liðnum tveimur árum hafa þannig 11 slík mál verið í skoðun
vegna umferðarhávaða.
Heilbrigðisfulltrúi sótti ráðstefnu í Danmörku á árinu um dreifingu hávaða
frá umferð og kynnti sér hjá sveitarfélaginu Helsingør, framkvæmd mælinga og
meðferð erinda vegna kvartana um óþægindi vegna hávaða í íbúðarhúsnæði frá
starfsemi í nágrenninu.
Kvartanir sem skráðar eru sem mengun voru 120
(76). Þar af 108 (65) vegna ákveðinna fyrirtækja. Flestar voru vegna malbikunarframleiðslu 31,
en sem fyrr nokkrar vegna ólyktar við fiskþurrkun eða 22 (19) en aðrar
kvartanir dreifðust á ýmiss konar starfsemi.
Kvartanir eða ábendingar um mengunarslys og óhöpp voru 2 (4). Þá sinnti Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
mengunarslysum og óhöppum til viðbótar sem ekki eru í þessum tölum og sama
gildir um fáein tilvik þar sem viðkomandi fyrirtæki tilkynntu um mengunarslys
eða óhapp og unnið var að lausn í samráði við heilbrigðiseftirlit.
Í ljósi vandamála vegna malbikunarframleiðslu kynnti heilbrigðisfulltrúi
sér mengunarvarnir við slíka starfsemi í nágrenni Kaupmannahafnar.
Tíðni reglubundins eftirlits til fyrirtækja í
þessum flokki er algengust ein eftirlitsferð á ári. Til fyrirtækja í ákveðnum flokkum bílgreinar
eru þó áætlaðar tvær ferðir.
Eftirlitsferðir vegna fyrirtækja og stofnana í þessum flokki voru í
eftirlitsáætlun 433. Skráðar
eftirlitsferðir urðu alls 364 samkvæmt eftirfarandi flokkun. Eftirlitsferðir í fyrirtæki og stofnanir sem
hættu rekstri á árinu eru ekki meðtaldar.
Mengunarvarnaeftirlit
Fjöldi staða 31.12.2006. áætlaður fjöldi eftirlitsferða og skráðar eftirlitsferðir
|
|
Málm og bílgrein |
Efna- og timburiðn. |
Fiskvinnsla |
Jarðefna-vinnsla |
Annað |
Samtals |
|
Fj. staða 31.12.2006 |
274 |
125 |
23 |
16 |
32 |
470 |
|
Fj. áætlaðra
eftirlitsferða |
264 |
9 |
35 |
18 |
27 |
433 |
|
Fj. eftirlitsferða |
248 |
52 |
|
11 |
|
364 |
Fjármál
Kostnaði er haldið aðgreindum vegna heilbrigðis- og mengunarvarnaeftirlits
annars vegar og eftirlits með hundahaldi hins vegar. Í fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir að
sértekjur næmu um 64% af rekstrarkostnaði við heilbrigðis- og
mengunarvarnaeftirlit og að um 36% kostnaðar yrði mætt með beinu framlagi af
sveitarfélögunum. Í sértekjum eru allar
tekjur s.s. vegna þjónustuverkefna, eftirlitsgjalda, starfsleyfigjalda,
vottorða o.þ.h. Allur kostnaður vegna
eftirlits með hundahaldi á að greiðast af sértekjum. Í niðurstöðutölum rekstrareiknings árið 2006
eru sértekjur vegna heilbrigðis- og mengunarvarnaeftirlits kr. 39.776.247
(34.504.059) eða um 67,9% (68,8%) af rekstrarkostnaði við þann þátt
rekstursins. Kostnaður vegna eftirlits
með hundahaldi var á árinu kr. 14.126.441 (12.118.195) og tekjur kr. 13.574.824
(12.791.975).
Í meðfylgjandi töflu eru samburðartölur milli áranna 2001, 2002, 2003,
2004, 2005 og 2006 vegna heilbrigðis- og mengunarvarnaeftirlits. Íbúatölur er sömu og við uppgjör
ársreiknings.
Samanburður á fjölda fyrirtækja, stöðugilda, kostnaði, kostnaði pr. íbúa,
kostnaði pr. fyrirtæki og kostnaði pr. stöðugildi árin 2001, 2002, 2003, 2004,
2005 og 2006.
|
|
Íbúafjöldi. |
Fyrirtæki og stofnanir (starfsleyfisskyld) |
Stöðu-gildi. |
Heildar kostnaður kr. |
Kostnaður pr. íbúa kr. |
Kostnaður pr. fyrirtæki kr. |
Kostnaður pr. stöðu kr. |
|
2006 |
60525 |
1265 |
7,2 |
58.605.054 |
968 |
46.328 |
8.139.591 |
|
2005 |
58786 |
1361 |
7,2 |
56.753.001 |
965 |
41.699 |
7.882.361 |
|
2004 |
57323 |
1448 |
7,2 |
53.215.493 |
928 |
36.751 |
7.391.041 |
|
2003 |
56096 |
1320 |
7,2 |
52.429.008 |
935 |
39.719 |
7.281.802 |
|
2002 |
54642 |
1287 |
7 |
50.355.292 |
922 |
39.126 |
7.193.613 |
|
2001 |
52764 |
1286 |
7 |
41.196.547 |
781 |
32.035 |
5.885.221 |
Í meðfylgjandi töflu er samanburðartölur áranna
2002, 2003, 2004, 2005 og 2006 vegna eftirlits með hundahaldi. Árið 2002 var stórum hluta eftirlits sinnt í
tímavinnu og miðast fjöldi stöðugilda við áætlað vinnuframlag.
Samanburður á fjölda skráðra hunda, stöðugilda,
kostnaði, kostnaði pr. íbúa, kostnaði pr. hund og kostnaði pr. stöðugildi árin
2002, 2003, 2004, 2005 og 2006.
|
|
Íbúafj. |
Fjöldi hunda |
Stöðu-gildi |
Heildar kostnaður kr. |
Kostnaður pr. íbúa kr. |
Kostnaður pr. hund kr. |
Kostnaður pr. stöðu kr. |
|
2006 |
60525 |
1571 |
1,8 |
14.126.441 |
233 |
8992 |
7.848.023 |
|
2005 |
58786 |
1459 |
1,8 |
12.118.195 |
206 |
8306 |
6.732.331 |
|
2004 |
57323 |
1295 |
1,8 |
11.723.208 |
205 |
9053 |
6.512.893 |
|
2003 |
56096 |
1162 |
1,8 |
10.536.719 |
188 |
9068 |
5.853.733 |
|
2002 |
54642 |
1106 |
2 |
10.326.215 |
189 |
9337 |
5.163.108 |
5. mars 2007
Fylgiskjal
|
|
|
Lög um meðferð
úrgangs nr. |
Lög um matvæli nr. |
Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998 |
|||
|
Tegund rekstrar |
Fjöldi umsókna |
|
|
Reglugerð um hollustuhætti |
Reglugerð um sund- og baðstaði |
Reglugerð um atvinnurekstur sem valdið getur mengun |
Reglugerð um varnir gegn olíumengun frá starfsemi í landi |
|
Bensínafgreiðsla
með eða án verslunar |
6 |
|
2 |
2 |
|
6 |
6 |
|
Bílgrein |
28 |
|
|
|
|
28 |
|
|
Daggæsla í heimahúsum og gæsluvöllur |
3 |
|
2 |
3 |
|
|
|
|
Gisti- og samkomustaðir |
4 |
|
|
4 |
|
|
|
|
Fiskvinnsla |
3 |
|
|
|
|
3 |
|
|
Heilbrigðisstofnanir |
6 |
|
|
6 |
|
|
|
|
Íþróttastöðvar, sund og baðstaðir |
4 |
|
|
4 |
2 |
|
|
|
Trésmíðaverkstæði |
3 |
|
|
|
|
3 |
|
|
Efnaiðnaður |
11 |
|
|
|
|
11 |
|
|
Einingarverksmiðja |
1 |
|
|
|
|
1 |
|
|
Málmiðnaður |
15 |
|
|
|
|
15 |
|
|
Matvælavinnsla |
7 |
|
7 |
1 |
|
|
|
|
Meðferð úrgangs |
3 |
3 |
|
|
|
3 |
|
|
Meindýraeyðing |
2 |
|
|
2 |
|
|
|
|
Snyrtistofur, nuddstofur, verslun með fegrunar- og snyrtivörur og önnur sambærileg starfsemi |
32 |
|
|
32 |
|
|
|
|
Skemmtigarður |
2 |
|
1 |
2 |
|
2 |
|
|
Stóreldhús og samkomustaður |
80 |
|
80 |
76 |
|
|
|
|
Verslun með vörur sem innhalda hættuleg efni með eða án matvæla |
30 |
|
17 |
13 |
|
|
|
|
Vistarverur fanga |
1 |
|
|
1 |
|
|
|
|
Tannlæknastofur |
6 |
|
|
6 |
|
5 |
|
|
Tímabundin starfsemi |
9 |
|
|
|
|
9 |
|
|
Vatnsból |
1 |
|
1 |
|
|
|
|
|
Ýmislegt |
4 |
|
|
|
|
4 |
|
|
Samtals |
261 |
3 |
110 |
152 |
2 |
91 |
8 |