|
Dýravernd
Í lögum um dýravernd nr. 15/1994, með síðari breytingum er fjallað um
meðferð dýra, vistarverur og umhirðu. Þar er m.a. kveðið á um að skylt
sé að fara vel með dýr. Óheimilt er að hrekkja dýr eða meiða. Forðast
skal að ofbjóða kröftum þeirra og þoli.
Leyfi Umhverfisstofnunar þarf
fyrir dýrahaldi í atvinnuskyni, öðru en í landbúnaði.
http://www.ust.is/dyravernd/
Í lögum og reglugerðum um
hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998,
með síðari breytingum, og
samþykktum settum samkvæmt þeim lögum, er kveðið á um hollustuhætti og
mengunarvarnir m.a. við gæludýraverslanir, dýragæslu, dýralæknastofur,
dýraspítala, dýragarða, umfangsmiklar dýrasýningar, dýrasnyrtistofur,
hesthald, loðdýrarækt, alifuglarækt, svínarækt og kanínurækt.
2. nóvember 2009
Flensuna: Hugum að
gæludýrunum
|